12.02.1948
Efri deild: 60. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í C-deild Alþingistíðinda. (2189)
90. mál, landshöfn í Þórshöfn
Björn Kristjánsson:
Það kann að þykja skrýtið, að ég hef fallizt á þessa meðferð máls þessa, þar sem lagt er til að vísa frv. frá. Ástæðan er sú, að meðan n. fjallaði um málið, barst henni skrifleg umsögn vitamálastjóra, auk þess sem hún átti tal við hann, og gat hann þess, að sér hefði dottið í hug ný lausn á þessu máli, sem sé að grafa í gegnum malarrif það, sem liggur fyrir utan hafnarsvæðið. Þar sem þetta var nýtt og stórkostlega þýðingarmikið og hefur það í för með sér, ef vel tekst að þetta verður miklu ódýrara, þótti mér rétt að fallast á að fresta efnislegri afgreiðslu málsins.
Ég vil taka það skýrt fram, að mér hefði verið kærast, að frv. hefði fengið samþykki þessarar hv. d., en þar sem þess var enginn kostur og n, viðurkenndi, að það væri ekki eðlilegt að hafnarsjóður Þórshafnar kostaði tilraunina, vildi ég vinna það til fyrir þessa viðurkenningu, að málinu væri frestað. Mér þótti svo mikils virði að fá þessa viðurkenningu. að ég féllst á þetta.
Þetta vildi ég láta koma fram, áður en gengið er til atkvæða.