27.02.1948
Efri deild: 70. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í C-deild Alþingistíðinda. (2202)

38. mál, iðnaðarmálastjóri og framleiðsluráð

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara mjög mikið út í að ræða efnt þessa frv. í einstökum atriðum, heldur en ég aðeins segja nokkur orð til þess að undirstrika af minni hálfu það, sem að vísu kom mjög greinilega fram í framsöguræðu hv. frsm. minni bl. nefndarinnar (PZ).

Sá ágreiningur. sem er fyrir hendi innan n., stafar engan veginn af því. að nm. séu ekki sammála um það, að ástæða væri til og réttmætt að veittur væri meiri stuðningur af hálfu ríkisvaldsins til iðnaðarmála í landinu heldur en gert hefur verið. Það fór beinlínis fram atkvgr. um það í n. að frumkvæði form., hvort n. væri ekki „principleit“ með því, að slíkur stuðningur yrði veittur, sem frv. gerir ráð fyrir, og ég man ekki betur en að allir nm. greiddu atkv. með því. Ágreiningur er því aðeins um það, að þótt nm. telji að það sé rétt að veita þessari vaxandi atvinnugrein meiri stuðning heldur en gert hefur verið, þá álítum við í minni hl., að það sé ekki sama með hverjum hætti það sé gert. Og það því síður sem þetta mál er svo þýðingarmikið. Og við álítum, að iðnaðinum sé gerður meiri greiði með því að láta það dragast um eitt ár að koma heildarskipun á þessi mál heldur en ef nú yrði sett um þau ný löggjöf, sem mundi sýna sig í framkvæmd, að væri slíkum annmörkum háð, að gagn af henni yrði ákaflega lítið eða jafnvel ekki neitt.

Eins og hv. frsm. minni hl. hefur þegar bent greinilega á eru í þessu frv. ákvæði, sem rekast mjög á aðra löggjöf, sem þegar er sett og mundi slíkt leiða til þess að þegar iðnaðarmálastjóri og framleiðsluráð iðnaðarins færu að starfa samkv. þessum l., ef frv. yrði samþ., yrðu störf þessara stofnana áreiðanlega mjög torveld, og mér er nær að halda, að þeir árekstrar, sem hlytu að koma í ljós milli þessarar stofnunar og þeirra annarra stofnana sem þegar eru fyrir hendi og þó sérstaklega fjárhagsráðs, mundu leiða til þess, að sáralítill árangur — eða miklu minni árangur heldur en æskilegt hefði verið — næðist af starfsemi þessarar stofnunar. Hins vegar er það alveg augljóst, ef frv. verður samþ. og farið yrði að framkvæma ákvæði þess, að sett yrði upp stofnun, sem yrði mjög umfangsmikil, og mér finnst alveg fráleitt það, sem hv. frsm. meiri hl. sagði í sinni ræðu, að hægt mundi að byrja þetta með einum starfsmanni, þ. e. iðnaðarmálastjóra. Vil ég t. d. benda á það, sem talað er um, hvað eigi að verða sameiginleg verkefni iðnaðarmálastjóra og framleiðsluráðs samkv. 2. tölul. 5. gr. frv., — en þar segir svo — með leyfi hæstv. forseta: „Að gera árlega tillögur til ríkisstjórnarinnar um heildartilhögun á sviði iðnaðarmála með það fyrir augum:

a. að eðlileg og holl hlutföll haldist á milli atvinnuvega þjóðarinnar um skiptingu á vinnuafli, rekstrarfé, fjárfestingu og opinberri aðstoð,

b. að framleiðslunni sé beint að þeim greinum, sem hagfelldastar eru fyrir þjóðina og samrýmast bezt þörfum hennar á hverjum tíma.“

Er þetta aðeins nokkur hluti af þeim verkefnum, sem þessari stofnun eru ætluð — og sé ég ekki, að hægt sé að gera þetta nema með fjölda starfsmanna, bæði skrifstofufólki og alls konar tæknilegum ráðunautum, enda benti hv. frsm. meiri hl. á það og vildi færa það sem rök fyrir því, að þetta yrði ekki kostnaðarsamt, að fjárhagsráð hefði þegar sett upp sérstaka deild skipaða fagmönnum til þess að annast m. a. þessa hluti. En þrátt fyrir þetta mundi verða sett upp annað skrifstofubákn ef frv. verður samþ., til þess að framkvæma þau verkefni, er þeirri stofnun eru ætluð, er frv. fjallar um, en eiga að miða að sama marki og fjárhagsráði er ætlað. Það eru einmitt slíkir árekstrar sem þessir, sem við í minni hl. teljum að reyna beri að sneiða hjá, þegar sett yrði löggjöf um yfirstjórn iðnaðarmálanna, og að forðast með því þann aukakostnað, sem af því yrði að hafa þessi sömu verkefni á mörgum höndum og á mörgum skrifstofum. Hins vegar teljum við að stefna beri að því, sem felst í dagskrártill. okkar, að ríkisstj. láti semja frv. um heildarskipun iðnaðarmálanna og aðstoð ríkisins við þau er lagt verði fyrir næsta Alþ. Meining okkar með þessu er ekki sú að fella niður úr þessu frv. öll þau verkefni, sem það ætlast til að iðnaðarmálastjóri og framleiðsluráð eigi að hafa með höndum, heldur að reynt verði að finna heppilega verkaskiptingu milli þessarar nýju stofnunar og þeirra stofnana, sem nú starfa að þessum verkefnum samkv. eldri 1., til þess að tryggja, að þessi starfsemi geti gengið með sem eðlilegustum hætti og ná sem beztum árangri fyrir atvinnuvegi landsmanna.

Ég álit að það sé síður en svo rétta leiðin, sem kemur fram í brtt. hv. meiri hl. n., sem miða allar að því að draga úr völdum hins væntanlega framleiðsluráðs, heldur eigi að skapa því sterkari aðstöðu til þess að leysa þessi verkefni af hendi heldur en í frv. felst, en til þess verður að breyta öðrum l., þ. á m. l. um fjárhagsráð og tel ég nauðsynlegt að gera það. Hins vegar er það ekki á valdi n. að fara út í slíkt, enda þarf til þess meiri undirbúning heldur en hægt væri að framkvæma áður en þessu þingi lýkur.