23.03.1948
Neðri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (2222)

41. mál, Faxaflóasíld

Frsm. (Áki Jakobsson) :

Herra forseti. Þetta frv. sendi sjútvn. fjórum aðilum til umsagnar: Síldarútvegsn., síldarverksmiðjum ríkisins, Fiskifélagi Íslands og stjórn Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Umsagnir bárust frá þremur. Fiskifélagið og síldarverksmiðjur ríkisins leggja afdráttarlaust á móti frv. Síldarútvegsn. er á móti frv., en telur þó að það kunni að vera rétt að breyta l. þannig að auka skyldur hennar og verkefni í sambandi við hagnýtingu og markaðsöflun fyrir Faxaflóasíld. Og einmitt í sambandi við þær ábendingar síldarútvegsn. hefur orðið samkomulag í n. um það, að frv. yrði afgr. með rökst. dagskrá sem er á þskj. 616. þar sem ríkisstj. er falið að endurskoða l. um síldarútvegsn., en auk þess leggja síldarútvegsn., þær skyldur á herðar að annast frekar en nú undirbúning að því, að betur sé hægt að hagnýta Faxaflóasíldina heldur en nú er gert. Ég fyrir mitt leyti sem annar flm. þessa frv. tel, að að svo komnu máli sé sjálfsagt að fara að prófa, hvort síldarútvegsn. getur ekki leyst þetta verkefni þannig af hendi, að viðunanlegt megi teljast. Enn fremur er búizt við, að í framtíðinni verði lögð meiri áherzla á þetta mál, því að Faxaflóasíldin er nú meiri þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar heldur en áður. Í samræmi við þetta leggur n. til, að frv. verði afgr. með rökst. dagskrá sem er á þskj. 616.