23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2300)
76. mál, ríkisborgararéttur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins láta í ljós þá skoðun, að þó að það sé óviðkunnanlegt. að hæstv. dómsmrh. sé ekki viðstaddur lokaafgreiðslu þessa máls, sem hann hefur flutt hér fram, þegar það er afgr. frá þessari hv. d., þá sé það upplýst, að hæstv. dómsmrh. hafi fylgzt með allri meðferð málsins í þinginu og sé að öllu leyti kunnugt um það, sem hv. n. leggur til. Það er ekki efi á hans samþykki fyrir því, að frv. þetta nái fram að ganga. Og ég hygg, að tryggt sé, að hann legðist ekki á móti því, að þær brtt. nái fram að ganga. sem öll allshn. þessarar hv. d. leggur til, að samþ. verði við frv. till., sem eru bornar fram í samráði við hæstv. dómsmrh., að mér skilst. Það gegnir öðru máli í þessu sambandi um þá menn, sem n. hefur ekki orðið sammála um að mæla með. Ég hygg því, að afgreiða beri þetta mál, hvort sem hæstv. dómsmrh. verður viðstaddur afgreiðslu þess nú eða ekki, þó að viðkunnanlegast væri, að hann gæti verið við. En það er ekki hægt að draga þetta mál á langinn nú, þegar það er búið að velkjast svo lengi fyrir hv. þd. Og það er ekkert réttlæti í því að hafa af því fólki að fá nú ríkisborgararétt, sem að öllum rétti á tilkall til hans, og fresta því um heilt ár, að það fái að njóta þessa réttar. Og ég er á móti því að draga málið með því að fresta því nú af því, að hæstv. dómsmrh. sé ekki viðstaddur. (PZ: Og afgreiðsla þess í Nd. er eftir líka.)