23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2302)
76. mál, ríkisborgararéttur
Gísli Jónsson:
Ég vil alveg mótmæla þeim ummælum. sem hv. 7. landsk. þm. hefur haft í þessu máli. Ég vissi það ekki fyrr en í dag, að það er margbúið að skýra honum frá því og margræða það við hann, hversu mikils virði það er fyrir aðila nr. tvö í frv. hæstv. ríkisstj., sem hér liggur fyrir., að frv. verði samþ. En hann hefur hvað eftir annað reynt að beita sínu valdi sem form. allshn. til þess að tefja þetta mál. Og slík ummæli, sem hann hafði hér, eru engin afsökun fyrir því né megna neitt til þess að þvo af honum sem form, n. þann blett, að n. hefur haldið málinu frá 7. nóv. og til þessa tíma, af því að hann er sjálfur á móti því, að málið nái fram að ganga. Hann hefur hvað eftir annað lýst yfir hér, að ef málið væri tekið fyrir, mundi hann halda hér uppi umr.; svo að ekki væri hægt að koma málinu í gegn, sem er hrein yfirlýsing um, að hann sé fjandsamlegur málinu sjálfu, enda væri ekki hægt af form. n. að fara svona með málið nema af því, að form. n. væri andvígur málinu. Það hafa engin rök komið fram frá hv. form. n. um það, að þessir menn, sem í frv. hæstv. ríkisstj. standa, eigi ekki að fá ríkisborgararétt. Hann er heldur ekki á móti því, sem ég hélt fram, að gagnvart þeim aðila. sem er tölul. 2 hér í frv., er það mjög mikið fjárhagslegt atriði að fá þennan ríkisborgararétt nú. En hv. form. n. hefur aðeins notað umsóknir, sem komið hafa síðan frv. var flutt hér í þinginu, sem átyllu til þess að draga málið á langinn. Ég get vel fellt mig við þá málsmeðferð, að engin umsókn um ríkisborgararétt sé tekin gild, sem ekki kemur til hæstv. ríkisstj. eða undirbúin af hæstv. ríkisstj. á hverjum tíma. En það sjónarmið átti ekki undir neinum kringumstæðum að geta stöðvað þetta mál. Og fullyrðingar hv. form. n. áðan að meiri ástæða væri eftir mína ræðu að óska eftir frestun á þessu máli, eru ekki annað en viðbót við þá garðhleðslu. sem þessi hv. þm. hleður í veg fyrir það, að þetta mál nái fram að ganga. Slík iðja er honum ekki til sóma. Og óska ég því þess mjög, að hæstv. forseti láti nú atkv. ganga um þetta mál, því að hæstv. dómsmrh. hefur fullkomið tækifæri til þess að koma að sínum aths. við frv. í Nd., þar sem þar eru eftir þrjár umr. um málið, þó að það væri afgr. frá þessari hv. d. nú. Og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á. að hæstv. forseti leyfi nú það, ofan á þann drátt, sem á afgreiðslu málsins hefur orðið til þessa. að það verði ekki látið ganga fram á þessum fundi.