23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (2307)

76. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (BSt) :

Út af þessum síðustu ummælum vil ég geta þess, að 2. umr. um þetta mál fór fram 10. febr. Síðan hef ég hvað eftir annað tekið það á dagskrá og af henni aftur samkv. beiðni form. allshn., ýmist á þingfundum eða hann gert mér aðvart áður, vegna þess að málið þyrfti nánari athugunar við. Ég spurði form. og frsm. allshn. um það, hvort hann hefði þessa beiðni fram að bera í nafni dómsmrh., og var það ætlun mín að taka málið af dagskrá, ef svo væri. Nú vil ég spyrja hv. þm. Dal., hvort hann geti ekki náð í dómsmrh. í síma og vitað, hvort hann óski eftir því að málið sé tekið af dagskrá, og mun ég bíða með atkvgr. um þetta á meðan.