29.01.1948
Efri deild: 50. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í C-deild Alþingistíðinda. (2318)

139. mál, útsvör

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Það eru nokkur atriði í þessu frv., sem ég vildi vekja sérstaka athygli á fyrir þá n., sem fær frv. til meðferðar. Ég hef að vísu ekki lesið frv. svo ýtarlega. að ég geti gert neinar tæmandi athugasemdir við frv. nú, ég hef aðeins hlaupið yfir að lesa það, og þess vegna veit ég, að það mun vera margt fleira, sem ég vil gera athugasemdir við, þegar til kemur. Það eru tvö atriði sérstaklega. sem ég vildi vekja athygli n. á nú. Annars vegar er það 6. tölul. 5. gr., það er, eins og hæstv. forsrh. sagði, gengið út frá því, að útsvörum verði hér eftir ekki skipt, heldur fái atvinnusveitin rétt til þess undir vissum skilyrðum að leggja á útsvar, þó að þar sé ekki um leið lögheimili hlutaðeiganda. Eftir þessum 6. lið má leggja útsvar á leiguskip, ef það hefur samband við annan stað heldur en heimilissveitina um óákveðinn tíma.

Nú hefur þróunin orðið sú síðustu árin, að það eru að koma fleiri og fleiri skip, m. a. togarar, sem eiga heima hingað og þangað utan Reykjavíkur. Um einn af þessum togurum liggur það fyrir nú þegar, að hann hefur aldrei farið heim til sín til þess að fá heiman frá sér þau gögn, sem hann hefur þurft til þess að fara með afla til Englands. Hann hefur lagt frá Reykjavík, Hafnarfirði og öðrum næstu höfnum, er hann fer frá landinu. Það hafa verið fengnir vissir menn á þessum höfnum til þess að ganga frá skipsskjölum, til þess að togarinn þyrfti sem minnst að tefjast. Eftir þessu frv. mætti leggja á þennan togara svo að segja á öllum stöðum, þar sem hann hefur fengið afgreiðslu. En það er svo fráleitt, að það sé tilætlunin, sem mest má vera. Ég nefni þetta dæmi af því að það er í fersku minni, að reynt hefur verið að leggja á togara, sem svona er ástatt með og ekki hafði nokkurt samband við þann stað, nema hann fékk afgr. þau skjöl, sem hann þurfti til þess að geta siglt til Englands. Ég vil biðja n. að athuga, hvort rétt sé að leggja þannig útsvar á skip, sem ekki hafa meira samband og viðskipti við þann stað en þarna hefur átt sér stað. Ef svo verður álitið, þá býst ég við, að þau láti það alveg vera að eiga heima á þeim stöðum, þar sem þau eru nú skráð. Það segir sig sjálft, að þegar Seyðisfjarðartogari hefur verið á veiðum á Halanum og siglir svo út, þá fer hann ekki að tefja sig á því að fara til Seyðisfjarðar fyrst til þess að fá sig afgreiddan, heldur semur hann við menn á öðrum höfnum til þess að fá sig afgreiddan.

Hitt atriðið er svo það í þessu frv., sem ég vildi biðja hv. n. að athuga, að þar virðist eiga að ganga inn á þá braut, að ef gift kona vinnur utan heimilis, þá skuli leggja á hana útsvar þar, sem hún vinnur utan heimilis. Þetta er alveg nýtt, að þó maður og kona hafi sameiginlegan fjárhag, þá skuli leggja á þau sitt í hvoru lagi. Það hefur verið lagt á þau sameiginlega, þó að konan vinni utan heimilisins og orðið þess vegna að hafa ráðskonu til þess að sjá um heimilið og hefur þá sá kostnaður verið dreginn frá kaupi konunnar og síðan lagt sameiginlega á tekjur hjónanna, sem þau hafa unnið inn.

Nú skal ég ekki segja um, hvort með þessu eigi að verða sú stefnubreyting, að ekki eigi að telja, að hjón hafi sameiginlegan fjárhag, heldur aðskilinn. Ef svo er, þá á kona sem vinnur að því að sjá um sitt heimili, kannske mörg börn, að fá eins mikið kaup hjá manni sínum eins og kona, sem pikkar á vél 2–3 tíma á dag á skrifstofu. Ég álít, að n. eigi að athuga þetta vel. Það er yfirleitt verið að ganga inn á þá braut, og var byrjað á því með tryggingalöggjöfinni, að lítilsvirða það starf, sem gifta konan vinnur á heimilinu. Með tryggingalöggjöfinni var byrjað á því að heiðra þær konur, sem kallaðar eru hórur, með því að láta þær fá aukastyrki fram yfir þær giftu, sem ekki fara út af sínu heimili.

Það er talað um að láta konu, sem ekki nennir að hugsa um sín börn, heldur vinnur utan heimilisins, fá aukaþóknun fyrir það að vinna utan heimilisins. Með því er þá verið að ganga inn á sama svið sem ég nefndi áðan, að lítilsvirða starf konunnar á heimilinu. Ég vil biðja n. að athuga vel, hvers virði það er að hafa góð heimili, þar sem konan sjálf er húsmóðirin, en ekki hinar og aðrar hlaupastúlkur, af því að konan telur léttara að vinna utan heimilis fyrir borgun.

Þessi tvö atriði, sem ég hef rekið mig á í frv. við ákaflega lauslegan yfirlestur, bið ég n., sem fær frv. til athugunar, að athuga mjög vel. Ég veit, að þau eru þó miklu fleiri.

Ég gleðst yfir því, að von er á frv. um lögheimili og manntal, sem hæstv. forsrh. lýsti yfir, að mundu koma, og ég gleðst alveg sérstaklega yfir því hvað lögheimili snertir, því l. um það nú eru öllum til skammar, sem riðnir voru við samningu þeirra. Það eru ákaflega ófullnægjandi l., sem um það gilda, þannig að það er brýn þörf á að taka það til athugunar. Hæstv. ráðh. vildi halda fram, að manntalið væri allra fullkomnast í Reykjavík, og að það þyrfti að sníða manntalið úti á landi eitthvað eftir Reykjavík. Ég er á þveröfugri skoðun. Það er langflest af því fólki hér í Reykjavík, sem hvergi er talið eiga heima. Og þegar maður þarf mest að elta fólk til þess að vita, hvar það á heima, þá er það hér í Reykjavík, svo að það er fjarri því, að það sem húseigendur í Reykjavík gefa upp um fólk, sem á heima í þeirra húsum, sé fullkomnara heldur en það, sem gefið er upp um heimilisfang fólks úti á landi. En það er annað mál og kemur þessu máli, sem hér liggur fyrir, lítið við. En ég sem sagt gleðst yfir því að eiga von á frv. um þetta. Það er brýn þörf á þeim báðum og alveg sérstaklega frv. um lögheimili.