18.12.1947
Efri deild: 40. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (232)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Forseti (BSt):
Áður en útvarpsumr. hefjast, þykir mér rétt að geta þess, að mér hefur í dag borizt bréf frá útvarpsstjóra, þar sem hann tilkynnir, að það hafi fyrir alllöngu verið samið við danska útvarpið um að endurvarpa jólakveðjum frá Danmörku til Grænlands um kl. 10 í kvöld í gegnum útvarpsstöðina hér. En með því að ekki var unnt að gera hlustendum á Grænlandi grein fyrir breyt. á tímanum, er útvarpað verði þessum jólakveðjum, telur útvarpsstjóri nauðsynlegt að gera hlustendum á Grænlandi grein fyrir þessari breyt. á tilsettum tíma, kl. 1005. En ekki mun þetta þó taka meira en 2 til 3 mínútur. Ég tel óhjákvæmilegt að verða við þessum tilmælum útvarpsstjóra, og verður því umr. frestað á tilgreindum tíma um 2 til 3 mínútur, og verð ég að biðja þann hv. ræðumann afsökunar, sem ég e.t.v. verð að trufla, þegar að þeim tíma kemur.
Þessari útvarpsumr. verður óagað eins og gert er, þegar rætt er í útvarpi um lagafrv., annað en fjárlagafrv., að hver flokkur fær samtals 45 mínútur, og verður ræðutímanum skipt í tvær umferðir, þannig að í fyrri umferð fær hver flokkur 2.í mínútur, en í síðari umferð 20 mínútur.
Ræður flokkanna í báðum umferðum verða í þeirri röð sem hér segir: Fyrst talar fulltrúi Alþfl., sem verður að skoða sem flm. þessa máls. Hinir flokkarnir hafa dregið um röðina á ræðunum, og varð niðurstaðan þannig, að fyrst á eftir Alþfl. talar fulltrúi Sameiningarflokks alþýðu sósfl., þá fulltrúi Framsfl. og þá fulltrúi Sjálfstfl.
Samkvæmt þessu tekur nú til máls hæstv. forsrh., Stefán Jóh. Stefánsson, og hefur til umráða 25 mínútur.