29.01.1948
Efri deild: 50. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (2325)

139. mál, útsvör

Forseti (BSt) :

Það er nú engin skýr markalína milli þeirra mála, sem eiga að fara í allshn. og heilbr.- og félmn., en mér virðist eftir þeirri venju, sem ríkt hefur hér í þessu, að heilbr.- og félmn. eigi fyrst og fremst að fá heilbrigðismál, þar að auki bein félagsmál, mál eins og tryggingamál og annað slíkt og mál, sem fjalla um félagsrétt borgaranna. Útsvarslög hafa aftur á móti jafnan verið í allshn. Að vísu er ekkert almennt frv. til, þar sem útsvarslög hafa verið borin fram, síðan heilbr.- og félmn. varð til, en þó má nefna frv. um breyt. á útsvarsl. Öllum stórvægilegum breyt., sem bornar hafa verið fram síðan, hefur verið vísað til allshn.

Úr því að hæstv. ráðh. gerir ekki neina till. um, í hvaða n. frv. verði vísað, þá ber ég það fyrst upp, að málinu verði vísað til allshn. samkvæmt því. sem ég hef nú greint.