30.10.1947
Neðri deild: 10. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í C-deild Alþingistíðinda. (2338)

49. mál, brunatryggingar á Akureyri og Siglufirði

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af ræðu hv. þm. Ak. Ég held, að þessi hv. þm. hafi ekki kynnt sér rækilega brunatryggingarnar í Reykjavík, því að það félag, sem hefur þær með höndum nú og er einkafyrirtæki, hefur aðeins haft þær í 2–3 ár, en brunatryggingarnar í Reykjavík voru lengi hjá dönsku félagi, síðan þýzku, svo íslenzkum félögum, svo ensku félagi, og nú er það hjá íslenzku einkafélagi. Brunabótafélag Íslands treysti sér ekki til, þegar það var stofnað, að taka á sig jafnstórvægilega áhættu og brunatryggingar í Reykjavík, og þó hafði það brunatryggingu í Rvík um skeið.

Hvað því viðvíkur, að það ætti að vera gleði fyrir Brunabótafélag Íslands að losna við svo slæman viðskiptavin sem Akureyri, þar sem það hefur tapað á tryggingum þar í 10 ár, þá er alls ekki um það að ræða hjá brunabótafélaginu, sem er heildarsamtök landsmanna, að það kippi sér upp við það, þó að það hafi á tímabili óhag af tryggingum á einhverjum stað, og ég dokumentera það, að s. 1. 10 ár hefur félagið haft tap af tryggingunum á Akureyri. En við vitum, til hvers félagið er stofnað og hvað mikla þýðingu það hefur fyrir íslenzkt þjóðfélag, og það má alls ekki rjúfa þau samtök á þennan hátt, að einstök bæjarfélög fari að ganga út úr samtökunum.

Hvað því viðvíkur, að annað íslenzkt félag hafi undirboðið Brunabótafélag Íslands, þá vil ég ekki vefengja það. Ég hef enga ástæðu til að vefengja þennan hv. þm. um rangmæli, því að hann er reyndur að því að vera mjög ábyggilegur maður, en þó hygg ég nú, að frá þjóðfélagslegu sjónarmiði sé nokkuð annars eðlis félag nokkurra einstaklinga, sem hefur vitanlega verið stofnað í gróðaskyni, eða allsherjar félagsskapur íslenzku þjóðarinnar, eins og Brunabótafélag Íslands er. Ég er ekki alveg viss um það, að kjörin yrðu hjá hinu nýja brunabótafélagi betri en hjá Brunabótafélagi Íslands, því að ég get upplýst hv. þm. um það, að Brunabótafélag Íslands hefur ekki aðeins haft þýðingu við að bjóða niður tryggingargjöld af fasteignum um allt land, heldur líka iðgjöld af lausafjármunum hér á landi. Það tók að sér slíkar tryggingar fyrir nokkrum árum, og það varð til þess, að öll iðgjöld af slíkum fjármunum lækkuðu. Ég gæti vel trúað, að það væri hægt að koma þessu félagi þjóðarinnar úr sögunni með því, að sterkt einstaklingafélag tæki af því tryggingarnar á tímabili, og þá byrjar aftur sama sagan á ný, að það er áhugi fyrir gróðanum, sem mun sýna sig, en Brunabótafélag Íslands hefur engan slíkan áhuga, heldur aðeins, að tryggingarnar geti orðið sem hagkvæmastar fyrir þá, sem tryggja þar sínar eignir. Þar græðir enginn einstaklingur. Það fær enginn einstaklingur eyris hagnað af tryggingunum, eins og ég hef margtekið fram, því að félagið er eign íslenzku þjóðarinnar.

Ég vil því endurtaka varnaðarorð mín og vænta þess, að n. kynni sér rækilega alla málavexti og íhugi þá, áður en hún skilar áliti sínu um frv.