06.11.1947
Neðri deild: 14. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í C-deild Alþingistíðinda. (2351)

59. mál, ölgerð og sölumeðferð öls

Pétur Ottesen:

Eins og hv. 1. flm. þessa máls hefur lýst hér, er fyrirmynd þessa frv. að finna í frv. frá árinu 1932, en á því ári flutti þáv. þm. Mýr., núv. atvmrh., frv., sem gekk í svipaða átt og þetta, sem hér um ræðir. Minna má þó á það, að sá munur var á, að þá átti að gefa ákveðnu fyrirtæki einkaleyfi á framleiðslu hins sterka öls. Vissulega er ekki tekið fram í frv. þessu, að slíkur háttur yrði hafður á, en vitað mál, að hér í Rvík er aðeins eitt fyrirtæki, sem hefur aðstæður til þessarar framleiðslu, svo að ganga má út frá því, að þetta frv. bæri að sama brunni.

Það er rétt að minnast þess, að þegar frv. var flutt hér í Nd. 1932, voru aðstæðurnar og viðhorfin þannig, að frv. komst ekki í gegnum 1. umr. Haldnar voru um það 5–6 ræður, en enginn varð til þess að bera blak af frv., og býst ég við, að flm. hafi litið svo á, að ekki væri ráðlegt að taka málið á dagskrá á ný, svo að það dagaði þannig uppi áður en 1. umr. var lokið. Þar sem hér er um að ræða frv. svipað þessu frá 1932, og aðstæður allar virðast ekki mikið breyttar, þá virðist mér ekki ástæða til að ætla, að frv. þetta hljóti hagstæðar móttökur né það blási byrlega fyrir því nú, fremur en fyrir frv. frá 1932. Þetta er ekki aðeins spá mín, heldur má sjá það á áskorunum og samþykktum. sem borizt hafa gegn þessu frv. Strax og útvarpið flutti fréttir af þessu máli, greip það landsfólkið þannig, að þeir sem áhuga hafa á bindindismálum, hafa látið í ljós álit sitt í fjöldamörgum ályktunum gegn frv., en það er sjálfsagt aðeins byrjun þeirrar mótstöðu, sem það á eftir að mæta. Auðfundið var á hv. 1. flm., að þetta hefur vakið óróa hjá honum, þótt hann hins vegar lýsti yfir að áhugi hans á frv. væri sterkari en svo, að honum dytti í hug að taka tillit til áskorana og ályktana frá kjósendum sínum eða öðrum, og talaði hv. flm. mikið um, að hann væri sterkur og staðfastur, þó að slíkur goluþytur léki honum um eyru. Hann gat þó þess, að hann tæki tillit til röksemda kjósenda sinna. Nú er það svo, að áskoranir þessar og álit manna berast með símskeytum og bréfum, svo að ég hygg, að rökin berist hv. flm. trauðla til eyrna á þann hátt, en kannske hugsar hann sér að hlýða á rök kjósenda sinna heima í héraði um mál þetta. En nú sem mér skilst, að þetta eigi sem skjótast fram að ganga, þá tefðist það víst nokkuð við það. Oft þegar um flutning hæpinna mála er að ræða, og þetta mál virðist mér í fyllsta máta hæpið, þá er gripið til ýmissa viðbóta til þess að stuðla að framgangi málanna undir því yfirskini að um fögur áform sé að ræða, og er þá ýmislegt notað til þess að fylla upp í eyður og efasemdir, sem upp kunna að rísa. Þannig er þessu frv. háttað, og það sem hér er notað sem agn, er hinn peningalegi árangur, þar sem gert er ráð fyrir, að tekjur þær sem fengjust af sölu hins sterka öls, yrðu notaðar til ýmissa nauðsynlegra framkvæmda, svo sem bygginga sjúkrahúsa o. s. frv. Ég vil benda á það, að þetta vekur strax stóra eftirtekt, því að ekki verður annað séð en þarna sé verið að fylla upp í eyður og að þetta sé tilraun til þess að drýgja hóp þeirra manna, sem greiða vildu götu þessa máls hér á Alþ.

Annars virðast það vera 3 atriði, sem einkum er stefnt að með frv. Í fyrsta lagi á að koma fram í því áhugi á bindindismálum, með því að draga úr drykkju sterkra drykkja. Í öðru lagi er það fé, sem græðist við sölu ölsins og stuðlar fjárhagslega að bættu heilbrigðisástandi í landinu með byggingu sjúkrahúsa. Og í þriðja lagi á það að skapa nýja og áður óþekkta gjaldeyrisvöru. Þær tekjur, sem ríkissjóði er ætlað að hafa af þessari ölgerð, nema kr. 0,10 á hvern lítra seldan úr landi, en kr. 1,50 á hvern lítra seldan innanlands, sem rennur ofan í landsfólkið sjálft.

Hv. 1. flm. undirstrikaði einnig að drykkjugirnd Íslendinga væri mikil, þannig að mikill hópur manna gæti ekki haft vín um hönd án þess að drekka sig fulla og hegða sér illa. Ég vil á engan hátt draga úr því, sem hv. flm. sagði um það óyndis- og vandræðaástand. sem nú ríkir í áfengismálum þjóðarinnar. Hann hefur þar áreiðanlega ekki málað myndina með of dökkum litum. Það er hvort tveggja, að Íslendingar drekka illa og að allmikill hópur manna tekur þátt í hinni óhóflegu ofdrykkju. Hinu er þó ekki að leyna, að í landinu er sem betur fer stór hópur manna, sem aldrei bragðar vín, og annar hópur, sem ekki drekkur nokkru sinni svo mikið, að hann í neinu setji blett á sjálfan sig né þjóðina í heild. Það er nú almennt talið, að þetta stafi aðallega af mismunandi upplagi manna. Annars eins og hv. 1. flm. gat um virðist aðalvínnautnin hér bundin við sterka drykki, enda langmest framboðið af þeim. Margir eru þó þeir, sem ekki byrja á því að drekka þessa sterku drykki, því að nokkuð er til af vægari vinum, þynnri vinum, eins og mig minnir, að hv. 1. flm. orðaði það og þau eru skaðminni. Nú er það vitað mál að hér er drukkið mikið af drykkjum allsendis óáfengum, og svo mikið að varla er haldin svo nokkur samkoma, að ekki sjáist einhver eða margar tegundir þessara drykkja, svo sem öl, límonaði eða hvað þær nú heita allar. Þó að menn drekki þetta, þá vekur það enga nautnasýki af því að í þessum drykkjum er enginn eiturgerill, ekkert alkóhól. Hitt hefur verið bent á, að ef farið væri að brugga áfengt öl, eins og flm. vilja, þá mundu þeir líklega vilja, að þetta öl yrði selt á sem flestum stöðum, svo að sem mestur ágóði fengist af því, og yrði það þá sem sagt einnig selt á þeim stöðum, þar sem nú eru einungis seldir óáfengir drykkir. Og þegar svo væri komið, þá væri mikil hætta á, að bæði ungir og gamlir við ýmis tækifæri færu að drekka þetta létta áfenga öl, en samkv. frv. á það að innihalda allt að 4% áfengi. Hætt er og við að fyrst í stað yrði ekki gerður mikill greinarmunur á þessu. en svo síðar mundu afleiðingarnar ótvírætt segja til sín í því, að ölið tæki að ginna og lokka og um leið að veikja menn í mótstöðunni gegn alkóhólástríðunni, og um framhaldið þarf ekki að spyrja — allir hv. þm. þekkja það svo vel. Menn mundu svo halda áfram og færa sig upp á skaftið með sífellt sterkari drykki, og með tímanum fyndist þeim kannske ekki tími til að bíða eftir áhrifum ölsins, en drykkju í stað þess hina sterkáfengustu drykki. Hættan liggur sem sagt í þessu, að fjöldi manna sem ekki drekkur, gæti fallið í þá freistni að byrja á að drekka hið áfenga öl, ef það væri á boðstólum og síðar haldið áfram lengra og lengra á drykkjuskaparbrautinni. Og það því fremur sem Íslendingar fara e. t. v. öðrum þjóðum fremur illa með vín, því hættulegra yrði þetta, eftir því sem fleiri féllu fyrir þeirri freistni að drekka hið áfenga öl, en þeir yrðu sjálfsagt margir, ekki sízt eins og ég gat um áðan, ef það á alls staðar að vera á boðstólum, en það verður það að vera, ef fást eiga af sölu þess þær tekjur, að hægt sé að byggja sjúkrahús og þess háttar. Þarna liggur hættan. og það er vegna þessarar hættu, að frv. 1932 fékk þá eindæma óvenjulegu afgreiðslu hér á Alþ. að það komst ekki einu sinni í gegnum 1. umr. Það er þess vegna áreiðanlegt að ef það er tilgangur flm. með þessu frv. að draga úr drykkjuskapnum í landinu, þá hefur þeim sézt yfir það, að fjöldi manna sem aldrei hefur bragðað vín, gæti leiðzt inn á hina þyrnum stráðu drykkjumannsbraut einmitt með tilkomu hins áfenga öls.

Árið 1941 voru hér á þingi uppi sterkar raddir um að framleiða sterkt öl í landinu og selja það hér innanlands. Þá var að vísu farið að brugga sterkt öl, en ríkisstj. var þá svo vel á verði, að það öl var ekki borið á borð fyrir Íslendinga sjálfa, heldur aðeins selt hinu erlenda herliði, sem hér dvaldi þá. Þannig var afstaðan til þessa ölgerðarmáls hér á Alþ. óbreytt frá árinu 1932–41. Hvernig afstöðu manna til þessa er nú háttað, sýna væntanlega afdrif þessa frv. hér.

Ég hef nú bent á það, sem er aðalatriðið í þessu máli, og það er að minni hyggju nægilegt til þess, að frv. þetta komist ekki eitt fótmál að því að ná fram að ganga. Hættan er svo gífurleg á því, að þeir sem hingað til hafa staðið utan hættubrautar áfengisneyzlunnar, leiðist inn á hana ef brugga á hér hið áfenga öl og selja það í landinu í stórum stíl. Í frv. er bent á það, að í flestum menningarlöndum sé bruggað áfengt öl, og sé það þar talið eðlilegt og sjálfsagt. Eru Norðurlöndin nefnd sem dæmi og Danmerkur, hins gamla sambandsríkis okkar, minnzt í því sambandi. Ég vildi leyfa mér að minna á það, að á þinginu 1932 átti þáv. og núv. landlæknir, Vilmundur Jónsson. sæti, og hafði hann þá gert sér það ómak að kynna sér hagskýrslur margra landa í því augnamiði að komast að niðurstöðum varðandi samband það, sem er á milli öldrykkju og vínnautnar. Hagskýrslur eru, eins og vitað er, öruggt plagg, og samkvæmt þeim kom í ljós, að náið samband er hér á milli á þann hátt, að eftir því sem meira var drukkið af áfengu öli, því meiri var neyzlan á sterkum drykkjum. Sem sagt, þarna stóð uppmálaður og óvefengjanlegur sá háski. sem af framleiðslu og sölu sterks öls leiðir. Sambandið á milli ölsins og vínsins er ótvírætt og óvéfengjanlegt. Og þetta er því hættulegra fyrir okkur sem Íslendingar fara yfirleitt verr með vín en aðrar þjóðir og kunna hvergi fótum sínum forráð í þeim efnum, en því þarf reyndar ekki að lýsa, því að það er flestum vel kunnugt um. Það er þess vegna alveg gefið mál, að ef þetta frv. yrði samþ., mundi það leggja grundvöll til aukins drykkjuskapar, en nú er sagan sú í þeim efnum, að þar er ekki við bætandi, og vænti ég þess, að hv. flm. geri sér það ljóst, er þeir gera sér vonir um siðbætandi áhrif á drykkjuskapinn, að reynsla sú, sem fengizt hefur annars staðar, hefur aðeins verið vonbrigði og mun einnig verða það hvað Íslendinga snertir.

Þetta eru tvær ástæðurnar, sem hv. flm. bera fram í sambandi við flutning frv., og er því ekki þörf að fjölyrða miklu frekar um málið. En með þessu frv. er verið að reyna að leggja grundvöll fyrir alveg nýju sviði til drykkjuskapar og þá sérstaklega fyrir unga fólkið, sem hingað til hefur staðizt áfengisfreistinguna, þ. e. a. s. þann hluta þess. sem haldið hefur sér frá nautn áfengis. Í sambandi við þá fögru hugsjón, sem kemur fram í frv. hjá flm., um byggingu fjórðungssjúkrahúsa, þá er ég hjartanlega sammála þeim um að bæta þurfi úr ýmsu varðandi heilbrigðismál þjóðarinnar, m. a. með því, að fjórðungssjúkrahús verði byggð. Með tilliti til þessa byggist flutningur þessa frv. á því, að það skapi ríkissjóði auknar tekjur, og er um leið gefið í skyn, að bygging þessara sjúkrahúsa geti ekki skeð nema áfengisneyzla þjóðarinnar aukist. Nú er þannig málum varið, að ríkissjóði ber skylda til að styrkja byggingu fjórðungssjúkrahúsa, og segjum nú, sem engin von er reyndar til, að áfenga ölið mundi draga úr neyzlu sterkra drykkja, þá mundi sú breyting aðeins rýra tekjur ríkissjóðs, tekjurnar mundu dragast saman af sterku drykkjunum, en aukast af ölinu. Og þar sem ríkið á að sjá um að koma þessum sjúkrahúsum upp samkvæmt fyrri lögum, þá stendur ríkissjóður ekkert betur að vígi, þótt þessi breyting yrði á þessum málum. Ég held þess vegna, að ef þetta er skoðað ofan í kjölinn, þá hafi hv. flm. yfirsézt um þetta. Hitt er annað mál, að ef drykkjuskapurinn eykst enn frá því, sem nú er, mundi það auka enn tekjur ríkissjóðs bæði af sterku drykkjunum og áfenga ölinu. en það er ekki hægt að samrýma við frv. hv. flm. Þess vegna er frv. að þessu leyti ógnar vanskapnaður og miklir bláþræðir á röksemdafærslunni.

Hv. 1. flm. þessa frv. virtist þurfa um fleira að fjalla í framsöguræðu sinni, — ég held nú, að hann sé týndur, það hefur líklega verið farið að verða heitt undir honum í sætinu. — hann þurfti um fleira að fjalla en fjórðungssjúkrahús. Hann fór að ógna hér með áfengisbanninu, sem var hér um nokkurt skeið, og hann sagði, að það hefðu ekki verið brennivínselskir menn hér á Alþ., sem afnámu bannlögin. Ég skal ekki dæma um það, hvort það voru brennivínselskir þm., sem vildu afnema bannlögin, en það var fólkið í landinu, sem vildi afnám þeirra, en munurinn var nú ekki meiri en sá, að það rétt marðist í gegn meiri hl., þannig að hægt er að byggja rök á því. Þess vegna voru það alþm., sem afnámu bannið, en það voru þá mjög skiptar skoðanir um afnám bannsins, og hefði illa verið komið hér á landi, ef allir landsmenn hefðu staðið í sporum þeirra, sem afnema vildu áfengisbannið. Það var aldrei algert áfengisbann hér á landi. og var alltaf opin leið til þess að ná í áfenga drykki meðan læknabrennivínið flaut út til almennings. En svo komu Spánarvínin vegna milliríkjaviðskipta. Spánverjar gerðu það að skilyrði fyrir því, að þeir keyptu saltfisk af okkur Íslendingum, að við keyptum af þeim vín í staðinn. Þetta ættu þeir að íhuga, sem tala um áfengisbannið, að það var aldrei algert bann hér á landi. Og vel gæti svo farið, að það þætti ekki frágangssök, að grípa þyrfti til róttækra ráðstafana, grípa þyrfti til svipaðra bannráðstafana sem fyrr og samþykkt þessa frv. mundi flýta fyrir þeim ófarnaði, sem þjóðin er þegar komin í á áfengisbrautinni. — að það yrði brýn nauðsyn að grípa til róttækra ráðstafana til þess að hefta drykkjuskap landsmanna. Íslenzka þjóðin er lítil, 130 þús. sálir, hún þolir ekki að hundruð eða þúsundir manna liggi hundflatir fyrir áfengisnautninni, eins og nú háttar, og eyðileggi þar með starfsorku sína til nytsamlegra hluta í þágu lands og þjóðar, en gerist þung byrði á þeim hluta landsmanna, sem enn heldur orku sinni óskertri til að reka þjóðarbúið. Við skulum tala heldur minna, en reyna að finna ráð til varanlegra úrbóta, en ekki vera með neina hugaróra og grillur um þetta frv. Það er því ekki hægt að ógna neinum, eins og hv. flm. frv. reyndi með banni, er við höfum enn sem komið er enga reynslu fyrir því, hvernig fullkomið bann reynist í framkvæmdinni, en tilgangslaust er að reyna aftur með þeim gloppugötum, sem voru á framkvæmd áfengisbannsins. Hv. flm. sagði, að bann hræddi sig. Ég hef þegar lýst því, hvernig það bann var. Í sambandi við hugleiðingar hv. 1. flm. frv. um bannið, þá sagði hann, að Íslendingar yrðu ekki þvingaðir til siðgæðis. Það kann vel að vera. En hvernig er haldið á þeim málum í öðrum löndum? Það þykir ekki nóg að fræða menn um siðgæði frá blautu barnsbeini, heldur er sett sterk löggjöf um brot á siðgæði, og er þannig haldinn mjög strangur vörður um siðgæði manna. Löggjafarstarf vort er byggt í þessu sambandi og eiga hér að liggja við sterk viðurlög, og þess vegna er þetta ráð frá löggjafans hálfu mikilsverður þáttur í því að halda uppi siðgæði þjóðarinnar og spyrna á móti siðgæðislausum mönnum, sem svífast einskis og að reynt sé að koma með ráð og meðul, sem framkvæmanleg eru til hins betra í framkvæmdinni.

Hv. þm. fór að tala um það. að ef t. d. vín væri selt í minni skömmtum en þriggja pela flöskum, sem nú mun vera venja, þá mundi að öllum líkindum draga mjög úr vinnautn manna. Hann hélt því fram, að of miklu víni væri haldið að þjóðinni með þessu fyrirkomulagt. Frá öndverðu mun þessi þriggja pela leið hafa verið framkvæmd, en hv. þm. hefði nú fyrir löngu getað verið búinn að standa upp og bæta úr þessum vansa, og þó sérstaklega hefði honum orðið þar hægt um vik eftir að hann tók sæti á Alþ. að beita áhrifum sínum til þess, að vínið yrði selt í hvað — pelaflöskum eða hálfpela glösum. (SigfS: Í 10 gr. glösum). Já, eða 30 eða 10 gr. glösum eftir nýju leiðinni um mál og vog. Ég get vel tekið undir það með hv. þm., að stór skammtur áfengis er hvergi heppilegur, en hv. þm. deilir á sjálfan sig með því að minnast á þessi glös. Ég veit nú ekki, á hve stórum glösum á að selja áfenga ölið. En skyldi það ekki fara eftir sömu lögum um þriggja pela flöskurnar, sem hv. þm. telur, að eigi of mikinn þátt í hinni geysilegu vínnautn landsmanna? Hv. þm. vitnaði hér til læknanna um það, að því minna sem drukkið væri af áfengi, því minni skaða gerði vínið mönnum, og hann vildi taka meira tillit til læknanna. sem þekkja hvern krók og kima í mannslíkamanum, en til hins venjulega borgara. Nú er málum þannig háttað, að álit læknanna í þessum efnum er æði misjafnt. Sumir læknar fordæma alla vinnautn í hvaða mynd sem er. Aðrir eru ekki á móti því, að víns sé neytt, en engir þeirra mæla ofdrykkjunni bót. Álit þeirra er skipt, sem hjá öðrum. En í sambandi við það álit lækna, að því þynnra sem vínið er, því skaðminna sé það, en svo er mikið hægt að drekka t. d. af áfengum bjór, að menn geta fengið þar eins mikið alkóhól í sig sem úr venjulegu brennivíni. „svarta dauða,“ þá er vert, að það komi fram, sem læknarnir segja í þessum efnum. En álit landlæknis á því öll, sem bruggað var handa setuliðinu á stríðsárunum og hafði sama styrkleika, sem það öl hefur, sem nú er gert ráð fyrir að brugga hér, var það að hann réð eindregið frá því, að slíkt öl yrði selt Íslendingum, af ótta við, að það hefði skaðleg áhrif fyrir landsmenn. Landlæknir dæmdi þetta svo út frá reynslu annarra landa og læknisþekkingu sinni á mannlegum líkama. og er hér ekki um lakari heimild að ræða en landlækni Íslands, sem var viðurkenndur á sínum tíma sem mjög góður og röggsamur læknir.

Ég skal nú ekki fjölyrða frekar um þetta, en ég ber þá von. að Alþ. hafi ekki hrakað svo frá 1932 eða 1941, að farið verði að samþykkja frv. sem þetta. Því að jafnhættulegt sem það hefði veríð 1941 og 1932, þá er enn hættulegra að samþykkja það nú.

Við erum miklu vanbúnari nú gagnvart freistingum barna og æskumanna en þá, meðal annars vegna þess, að drykkjuhópurinn er stærri nú en þá og því hættumeiri fyrir alla afkomu þjóðfélagsins, og við þolum ekki, að enn bætist við menn, sem týndir eru í þjóðfélaginu að öðru leyti en því, að þeir eru byrði á öðrum landsmönnum. Ég hef ekki mál til að mála þann sársauka og hörmung, sem aðstandendur þessara týndu drykkjumanna hafa við að búa, að sjá aldrei glaðan dag vegna þess, að sonur eða dóttir sé að glatast, þó að þeir lifi að öðru leyti áhyggjulitlu lífi. Það er fleira en tölurnar, sem við eigum að taka tillit til. Það eru tilfinningar fólks. Það á að taka tillit til þess, er talað er um einhverjar aðgerðir í þessum málum.