18.11.1947
Neðri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (2372)
59. mál, ölgerð og sölumeðferð öls
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Um þetta mál, sem hér liggur fyrir, hafa nú þegar farið fram alllangar umr., og er það vissulega ekki ófyrirsynju, þar sem þetta mál snertir tvö mjög veigamikil og þýðingarmikil þjóðfélagsmál. Það er sem sé gert ráð fyrir, að það eigi að miða að því að ráða bót á áfengismálum þjóðarinnar og í annan stað eigi þetta að miða að því að afla ríkissjóði tekna. Það er nú kunnara en frá þurfi að segja hér á þingi, í hvert ófremdarástand nú er komið áfengismálum þjóðarinnar og það er þm. líka kunnugt að fjárhag ríkisins er nú þann veg háttað að ástæða er til að gefa því máli gaum. En þegar litið er á frv., verður ljóst, að það er ekki þannig úr garði gert, að gera megi ráð fyrir eða ala vonir um, að það nái á nokkurn hátt þeim tilgangi, sem látið er uppl. að að sé stefnt, heldur stefnir það þvert á móti í öfuga átt við það, sem látið er. Ég hef til þessa verið áheyrandi að þeim umr., sem farið hafa fram um þetta mál, og mér dylst ekki, að mjög hallast á um allar röksemdir í þessu máli af hálfu formælenda þess, enda ekki óeðlilegt þar sem málstaður flm. er slíkur sem raun ber vitni um. Af andmælendum málsins hefur verið rakið glögglega með skýrum rökum, að aukið frjálsræði um sölu og úthlutun áfengis hefur ævinlega leitt af sér aukna áfengisnautn og vaxandi siðspillingu í þessu þjóðfélagi. Þessum rökum hefur ekki verið hnekki.
Af hálfu flm. málsins talaði hv. 2. flm., hv. 1. þm. Skagf. (StgrSt) nokkur orð sem voru að vissu leyti drengilega flutt. Það er líka það eina, sem fram hefur komið, sem nokkra athygli vekur. En ég fékk ekki betur skilið en meginþátturinn í ræðu hv. 1. þm. Skagf. væri jafnvel á móti þessu frv. Meginþátturinn í ræðu hans markaðist af því að hann væri óánægður með það ástand, sem nú ríkti í áfengismálunum. Hann vildi fá einhverja bót þar á, viðurkenndi að þeirra bóta væri þörf, og til þess að koma fram með eitthvað nýtt fylgdi hann þessu frv., sem hér liggur fyrir. En hann gaf jafnframt í skyn, að hann væri á engan hátt ánægður með frv. eins og það er nú úr garði gert, taldi koma til álita að gerbreyta því í n. og sagði að síðustu, að ef færð yrðu gild rök fyrir því, að sú ráðstöfun, sem frv. gerir ráð fyrir, mundi verða til þess að auka áfengisneyzlu í landinu einkum meðal æskumanna, mundi hann jafnvel snúast á móti þessu máli. — Þegar þetta er frá tekið hafa þær röksemdir sem fram hafa verið færðar í ræðum hv. flm., verið harla léttvægar, og sýndi það sig bezt á fundinum hér í gær, þegar hv. 1. flm., þm. N-Ísf. (SB) greip til þess í varnarskyni að segja meðal annars, að kommúnistar væru þeir einu á þessu landi. sem mundu æsa sig upp á móti þessu frv., og af því mætti draga þá ályktun, að það væru kommúnistar einir í þessu landi, sem væru hlynntir bindindisstarfsemi meðal þjóðarinnar. Þetta er hreinasta firra. Sem betur fer er það stór hluti þjóðarinnar í þessu landi, sem vill hamla gegn aukinni áfengisneyzlu, hamla gegn þeirri siðspillingu. sem slík neyzla hefur haft í för með sér. Sem betur fer er sú fylking miklu stærri en kommúnistarnir í þessu landi.
Meginatriði frv. eru þau, að einstaklingum og fyrirtækjum skuli leyft að framleiða áfengt öl, er innihaldi 4% áfengisstyrkleika. Svo er þetta rökstutt á þann furðulega hátt, að með þessu eigi að draga úr neyzlu áfengra drykkja í landinu og með auknu frjálsræði á þessu sviði eigi að bæta menninguna og jafnframt afla ríkissjóði nýrra tekna. Það hefur verið dregið fram í þessum umr., einkum af hv. þm. Borgf. (PO) og hv. 6. þm. Reykv. (SigfS), að það væri nokkuð torskilið, á hvaða hátt það gæti farið saman að draga úr neyzlu sterkra drykkja og afla ríkissjóði tekna, þar sem gera mætti ráð fyrir, eftir því sem fyrir liggur í frv., að það þyrfti 40 lítra af áfengu öli til þess að jafngilda einni flösku af sterku áfengi um tekjuöflun til ríkissjóðs. Ég hef einnig veitt því athygli, að gert er ráð fyrir, ef til útflutnings á sterku öli kæmi, að í hlut ríkissjóðs féllu 10 aurar af hverjum lítra. Mér skilst, að þá þyrfti að framleiða 600 lítra af sterku öli til sölu á erlendum markaði, til þess að afla ríkissjóði jafnmikilla tekna og hann fær nú af einni brennivínsflösku. Það má segja, að mikil sé trú hv. flm. á þessari framleiðslu, ef þeir búast við því, að af þeirri breytingu, sem þeir telja, að frv. eigi að orka í áfengismálum þjóðarinnar, leiði auknar tekjur ríkissjóði til handa. Við þetta bætist svo, að ég hef það fyrir satt, að fræðimenn telja að ókleift sé af efnafræðilegum ástæðum að framleiða fyrir erlendan markað öl með 4% áfengisstyrkleika, því að það muni ekki þola þá geymslu, sem nauðsynleg sé, ef dreifa eigi vörunni svo víða og á svo löngum tíma sem óhjákvæmilegt er í því sambandi. Ég hef það og fyrir satt að öl, er eigi að framleiða fyrir slíkan markað, megi ekki vera veikara en 10% hvað áfengisstyrkleika snertir. Einnig þetta, sem flm. segja í frv. og grg. þess fær þá ekki heldur staðizt álit fræðimanna.
Það hefur verið á það bent í þessum umr., að þegar sams konar mál hafi verið flutt hér á Alþ. fyrr á árum, hafi landlæknir, sem þá átti sæti á þingi, kynnt sér málavexti alla mjög rækilega og lagt þá fyrir í skilmerkilegum ræðum hér á þingi. Þær tölur, sem hann þá bar fram, munu fela í sér samanburð á ölneyzlu og áfengisneyzlu meðal margra nágrannaþjóða okkar og þeim tölum hefur ekki verið hnekki í þessum umr. og meira að segja ekki gerð tilraun til að reyna að hnekkja þeim. Þessar tölur liggja að sjálfsögðu fyrir í þskj. frá fyrri árum, og skal ég ekki lengja mál mitt með því að lesa þær upp, þar sem allir hv. þm., sem vilja kynna sér málið til hlítar, geta haft aðgang að þeim í prentuðum þingtíðindum. En það er ekki ófróðlegt að draga fram nokkrar tölur, sem í sjálfu sér standa okkur nær en þær tölur, sem landlæknir dró fram á sínum tíma og fjölluðu um áfengis- og ölneyzlu annarra þjóða. Hins vegar leitaðist 1. flm. þessa máls. hv. þm. N-Ísf. (SB), ekki við að koma fram með nokkrar tölur máli sínu til stuðnings í ræðum sínum í gær, er sannað gætu nokkuð af því, sem hann vildi sanna. Þær tölur, sem hann kom með, fjölluðu um áfengis- og ölneyzlu Dana annars vegar og áfengisneyzlu Íslendinga hins vegar. Hv. 2. landsk. þm. (KTh) hefur þegar sýnt fram á, að sterkir drykkir eru nú skammtaðir í Danmörku og þess vegna sé þar ekki frjáls sala á þeim, en á hinn bóginn frjáls sala á áfengu öli. Það sannar, að neyzla sterkra drykkja annars vegar og öls hins vegar í því landi er ekki sambærileg, ef rétt er á málinu haldið. Þar með er í rauninni hruninn grundvöllurinn undan þeim röksemdum, sem hv. 1. flm. vildi bera fram um það atriði.
Það er ekki hægt að dyljast þess, að það sem fyrst og fremst skiptir máli í þessu sambandi, er afstaða okkar eigin þjóðar til áfengis. Kjarni þessa máls er: Verður framleiðsla áfengs öls til þess að auka áfengisneyzluna eða verður hún til þess að draga úr henni? Til þess að komast að raun um þetta þurfum við ekki að bera saman tölur frá Danmörku annars vegar og Íslandi hins vegar, heldur þurfum við að bera saman tölur, sem um þetta eru í okkar eigin skýrslum, og meta samhengi þeirra og þar með gang málsins frá ári til árs.
Ég hef átt þess kost að kynna mér nokkuð þær tölur, sem fyrir liggja um þetta efni í reikningum og skýrslum Áfengisverzlunar ríkisins um undanfarin ár. Í viðbót við það eru á hverju ári birt í verzlunarskýrslum, sem hagstofan gefur út, yfirlit yfir neyzlu á munaðarvörum í landi okkar. Þetta tvennt mun ég leggja til grundvallar þeim tölum, sem ég mun nú draga fram. en til skýringar vil ég benda á það, áður en ég fer lengra út í málið, að þessar tölur eru að nokkru leyti byggðar á ólíkum grundvelli, þannig að áfengisverzlunin miðar annars vegar í skýrslum sínum við áfengismagn, sem selt hefur verið í lítratali, og þá ekki tekið tillit til áfengisstyrkleikans, hins vegar hefur hún tölur yfir áfengismagn umreiknað í hreinan vínanda. Hagstofan hefur dregið tölur sínar skýrt fram í töflum, sem birtar hafa verið í verzlunartíðindum. Öl er tekið út af fyrir sig og sýnt eins og það hefur verið framleitt og selt. Veiku vínin eru einnig tekin út af fyrir sig, án þess að umreikna það lítramagn sem þar kemur til greina, en sterk vín eru umreiknuð í hreinan spíritus. Það er m. ö. o. deilt með tveimur í þá raunverulegu lítratölu, sem seld hefur verið og lætur nærri, að það sé hið sama og að umreikna sterku drykkina í hreint alkóhól. Þetta mun ég láta nægja til skýringar þeim tölum, sem ég mun hér bera fram, en það haggar ekki því, að séu þær bornar saman í réttu samhengi innbyrðis, sýna þær alla þróun þessa máls í þjóðfélagi okkar og hvort þjóðin er í framför eða afturför á þessu stigi.
Ég tek þá fyrst tölur frá Áfengisverzlun ríkisins um vínanda, sem seldur hefur verið í þessu landi, og er hann umreiknaður í hreinan spíritus. Árið 1939 seldi áfengisverzlunin hér 99800 lítra, árið 1940 139600 lítra, árið 1941 aðeins 68500 lítra, árið 1942 76900 lítra, árið 1943 164800 lítra, árið 1944 198300 lítra, árið 1945 215500 lítra, árið 1946 269200 lítra, en lengra ná reikningar og skýrslur áfengisverzlunarinnar ekki, þar sem árið 1947 er ekki heldur liðið. Okkur er það ákaflega tamt að miða tölur við vísitölu, þar sem vísitalan er fundin á þann hátt, að verðlag á árinu 1939 er miðað við 100. Ef við nú athugum þessar tölur og miðum við 100 lítra neyzlu af hreinu áfengi árið 1939 og berum síðan saman tölurnar frá árunum, sem liðið hafa síðan, getum við fundið út eins konar vísitölu áfengisneyzlu í landinu. Verður sú vísitala þannig: Ár 1939: 100, ár 1940: 140, ár 1941: 69, ár 1942: 77, ár 1943: 165, ár 1944: 198, ár 1945: 215, ár 1946: 269. — Þessar tölur sýna allar glöggt þá þróun, sem átt hefur sér stað í áfengismálunum hér á landi undanfarin ár. Það hlýtur að vekja athygli að áfengisvísitalan fyrir árin 1941 og 1942 er miklu lægri en hin árin og kemst meira að segja niður fyrir árið 1939, en til þess að gera sér ljóst, af hverju það stafar, verðum við að hafa í huga, að einmitt á þeim árum var takmörkuð sala áfengis. Þá var hér á landi áfengisskömmtun, þótt hún væri að vísu ekki nægilega ströng og ekki í því formi, sem ég og aðrir mundu hafa kosið. En engu að síður verður ekki dulið, hvaða áhrif slík skömmtun hefur haft á áfengisneyzlu þjóðarinnar í heild. og gefur þetta nokkra bendingu um, hvaða áhrif áfengisskömmtun mundi hafa, sem betur væri úr garði gerð, ef hún væri ákveðnari og henni röggsamlega fram fylgt.
Þá ætla ég að leyfa mér að lesa hér upp nokkrar tölur, sem hagstofan hefur skrásett í verzlunarskýrslur og fjalla um þessi mál einnig. Þá er rétt að gera sér ljóst, hver þróunin hefur verið um neyzlu öls í landinu undanfarin ár. Árin fyrir stríð var öldrykkja landsmanna miklu minni en hún er nú. Hún var þá 3–5 lítrar á mann, en á stríðsárunum og síðan, svo langt sem skýrslur hagstofunnar ná, hefur öldrykkja landsmanna numið því, sem nú skal greina: Ár 1941: 12,9 lítrum, ár 1942: 13,3 lítrum, ár 1943: 13,1 lítra, ár 1944: 13,2 lítrum, ár 1945: 13,5 lítrum, en lengra ná skýrslur hagstofunnar ekki enn þá. Þetta sýnir, að ölneyzlan hefur vaxið mjög síðan á árunum fyrir stríð og að þróunin er sú, að hún fer sívaxandi enn þá, þótt ekki sé í mjög stórum mæli frá ári til árs. — Þá er fróðlegt að líta á það, hvort neyzla áfengis, þ. e. brennivíns. hefur aukizt eða minnkað samhliða vaxandi ölneyzlu undanfarinna ára eða ekki. Skýrslur hagstofunnar gefa líka bendingu um þetta og þær eru svo glöggar, að þær miða neyzluna við hvern mann í landinu,og er þar tekin til greina sú fólksfjölgun, sem átt hefur sér stað á því tímabili, sem um er að ræða. Þessar skýrslur sýna, að neyzla hinna léttari vína hefur aukizt úr 0.7 lítrum á mann upp í 1,5 lítra frá 1941 til 1945. Neyzlan hefur m. ö. o. fyllilega tvöfaldazt á þessum árum. Neyzla sterku vínanna, sem eru umreiknuð í hreinan spíritus, hefur á sama tímabili aukizt úr 0,7 lítrum í 2,5 l. á mann, eða fyllilega þrefaldazt á þessum fáu árum. — Svona er þá þróunin hvað viðvíkur neyzlu sterkra drykkja á sama tíma sem ölneyzla landsmanna fer vaxandi. Af þessari þróun, þessari síauknu áfengisneyzlu meðal þjóðarinnar, hefur leitt margs konar siðspilling og mikil bágindi, sem hefði verið mikils virði fyrir þjóðfélag okkar, að hefðu ekki átt sér stað. Þetta er sem betur fer fjöldamörgum mönnum meðal þjóðarinnar úr öllum stéttum og öllum stjórnmálaflokkum ljóst. Það mætti færa fram þessum orðum til stuðnings mörg og margháttuð ummæli skólamanna í þessu landi, en þeir hafa þá sögu að segja, hvar sem þeir ræða mál sín, hvort heldur er á mannfundum eða á sérstökum þingum kennarastéttarinnar eða í tímaritum, sem kennarastéttin gefur út, að samfara þessari auknu áfengisneyzlu komi auknir erfiðleikar í skólastarfseminni, og eru til margar greinargóðar og ýtarlegar lýsingar á því, hvaða erfiðleikum það er bundið að halda uppi fræðslu og menningu í þeim fræðslustofnunum, sem þjóðin hefur komið upp með ærnum kostnaði æskumönnum sínum til handa, til þess að þeir geti þar öðlazt sem bezta menntun, þegar áfengismagnið hefur aukizt frá ári til árs.
En ég get farið út fyrir kennarastéttina til þess að leita að vitnisburði í þessum efnum. Hv. 2. landsk. þm. (KTh) talaði hér frá sjónarmiði læknisins fyrst og fremst og dró fram nokkrar staðreyndir um þessi mál frá læknisfræðilegu sjónarmiði. Ég ætla samt sem áður til viðbótar við það að leyfa mér að draga hér fram vitnisburð eins mjög þekkts og velmetins læknis, þ. e. hr. Níels Dungals, en hann hefur látið svo um mælt á prenti, sem ég ætla að lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef mikils er neytt af áfengi að staðaldri, einkum af sterkum drykkjum, eins og brennivíni, hefur það skaðleg áhrif á lifrina, svo að óeðlilega mikil fita safnast á hana. Á síðastliðnum vetri kom það fyrir þrjá menn hér í Rvík, að þeir neyttu svo mikils áfengis um langt skeið, að þeir drukku sig bókstaflega í hel. Við krufningu fannst lifur þeirra allra bókstaflega eyðilögð af fitu, sem safnazt hafði fyrir í svo stórum stíl, að lifrarvefurinn var óstarfhæfur. Slíkur dauðdagi er það sjaldgæfur erlendis, að nýlega birtist ritgerð í einu þekktasta læknatímariti Bandaríkjanna, þar sem lýst var 6 slíkum tilfellum, þar af einu í vetur frá borg, sem er 10 sinnum stærri en Rvík, og virðist hafa þótt viðburður þar.“
Enn fremur vil ég leyfa mér að lesa hér upp úr vitnisburði annars manns. hr. Sveins Sæmundssonar, yfirlögregluþjóns í Rvík, sem hefur starfað hér að lögreglumálum um nálega 20 ára skeið, og hef ég ekki heyrt annars getið en að hann hafi rækt þau mál við góðan orðstór. Hann hefur birt ummæli sín á prenti, er gefa góða hugmynd um það, hvernig ástatt er í áfengismálunum og ekki hvað sízt í höfuðstað landsins. Hann segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Það er orðinn stór hópur manna hér í Rvík. sem ekki er annað sjáanlegt en orðið hafi áfengisnautninni að bráð. Allir Reykvíkingar þekkja fleiri eða færri af þessum mönnum og vita, að meðal þeirra er víða um góðar gáfur og annað atgervi að ræða. Sumir þessara manna eru raunverulega reköld, sem hrekjast um heimilislausir, klæðlitlir og matarlitlir og öll þeirra hugsun og athafnir snúast um það eitt að ná í áfengi.“
Og síðan segir hann:
„Það er vitað að hópur þeirra manna, sem ég hef nú lítillega lýst, hefur stórum aukizt síðustu árin, að minnsta kosti hér í Rvík, og það, sem út yfir tekur, er sú staðreynd að það eru ungu mennirnir, æskumenn vorir sem sjá um þá aukningu. — Á kreppuárunum var atvinnuleysinu kennt um flest það, sem aflaga fór, og það með réttu. Það er því alvarlegt umhugsunarefni, að þegar tímarnir batna og atvinnan eykst, skuli áfengisnautnin ná að taka stóran hóp af æskumönnum vorum þeim heljartökum, að segja má, að hin meðfædda athafna- og framfaraþrá æskunnar sé drepin í dróma. Í stað skapandi og starfandi manna er þjóðfélag vort þarfnast nú frekar en nokkru sinni áður, verða hér í framtíðinni, ef ekki er breytt um stefnu,vaxandi hópar þeirra manna, sem í Rvík hafa verið nefndir „rónar“.
Þetta er um áhrif áfengisneyzlu almennt. Geri ég ráð fyrir, að í raun og veru greini þá, sem þetta mál flytja, og hina sem andmæla því ekki svo mjög á um þetta atriði út af fyrir sig enda hafa flm. frv. látið það uppi, að þeir vilji með flutningi þess spyrna fæti við óhæfilegri áfengisneyzlu, en við getum ekki lokað augunum fyrir því, að eins og sannað hefur verið með tölum hagstofunnar, þá hafa þessir hlutir gerzt á sama tíma sem ölneyzla hefur stóraukizt meðal landsmanna.
Þá komum við að þeirri spurningu, sem í raun og veru er kjarni þessa máls: Eru líkur til þess, að sala á áfengu öli í viðbót við það, sem fyrir er bæði af óáfengu öli og sterkum drykkjum af ýmsum gerðum, muni leiða til aukinnar eða minnkandi áfengisneyzlu?
Þegar litið er á þær skýrslur og þau gögn, sem liggja fyrir um neyzlu áfengis og öls, þá kemur það greinilega og ótvírætt í ljós að eftir því sem meira er drukkið af léttu öli og öðrum lítið áfengum drykkjum, því meira er einnig drukkið af sterkum drykkjum, hinum svo nefndu brenndu drykkjum. Þar sem þarna er farið eftir skýrslum og öruggum heimildum er þetta ekki sagt út í bláinn, heldur er það rökrétt ályktun af forsendum, og samkvæmt því er ekki hægt að draga aðra ályktun í þessu máli en að framleiðsla og sala áfengs öls hér á landi mundi auka drykkjuskapinn, og því hlýtur mönnum að vera það ljóst, að frv. það sem hér liggur fyrir, er stórkostlega viðsjárvert.
Í sambandi við þetta mál hefur nokkuð verið um það rætt, að hollara væri fyrir áfengisneytendur að neyta hinna svo kölluðu daufu drykkja, þ. e. a. s. áfengs öls og annars slíks, heldur en hinna sterku drykkja. Læknisfróðir menn eru ekki alveg á því. T. d. liggur fyrir á þskj. umsögn landlæknis um þetta, en hún er byggð á læknisfræðilegri þekkingu og reynslu hana. Landlæknir segir svo í nál. frá minni hl. allshn. árið 1941, með leyfi hæstv. forseta:
„Því greiðari sem er aðgangurinn að áfengum drykkjum og því fleiri tegundir þeirra, sem um er að velja, því meiri og almennari verður drykkjuskapurinn og að sama skapi eykst hvers konar siðleysi, böl og óhamingja, sem af áfenginu leiðir. Hver hinna þriggja tegunda áfengra drykkja, þ. e. öl, vín og brenndir drykkir, á sinn söfnuð: Ölið unglinga (jafnvel börn) og erfiðismenn, vínið konur og annað tízkufólk og veizlulýð, brenndu drykkirnir drykkjusjúkt fólk að eðlisfari svo og þá, sem orðnir eru óhófsmenn og meiri og minni rónar fyrir vanadrykkju, sem að jafnaði hefst á hinum veikari tegundum. Það er fánýt kenning, að veikar áfengistegundir komi í staðinn fyrir sterku drykkina og útrými þeim. Þær vísa miklu fremur leiðina út í ófæruna og gera margan manninn að drykkjumanni, sem aldrei hefði farið flatt á sterkum drykkjum. Það væri jafnvel vafasamur ávinningur, þó að unnt væri með öllu að útrýma sterku drykkjunum og láta öl og veik vín koma í þeirra stað. Hið verkandi eitur er hið sama í öllum tegundum áfengis, aðeins í mismunandi þynningum. Nú er það kunnugt, að menn hænast, að áfengi eitursins vegna og norrænar þjóðir einkum vegna sterkra áhrifa þess. Erum vér Íslendingar þar sízt eftirbátar og drekkum yfirleitt til þess að verða ölvaðir og vel drukknir. En því fer fjarri, að hollara sé að iðka slíkan drykkjuskap með því að neyta fremur veikra áfengistegunda en sterkra. Ofdrykkja öls er ein hin óhollasta áfengisnautn, því að þar koma ekki einungis til greina beinar verkanir áfengiseitursins á taugakerfið, heldur ofreynsla nýrna og blóðrásarfæra, er leiðir til ömurlegs orkutjóns og illkynjaðs heilsuleysis.“
Þetta segir landlæknir fyrst og fremst sem læknir um neyzlu öls að staðaldri.
Nokkuð hefur verið blandað inn í mál þetta þeim áhrifum, sem talið er, að bannlögin hafi haft á sínum tíma. Menn hafa haldið því fram, að á þeim tíma, sem þau giltu, hafi áfengisneyzla lítið minnkað frá því, sem áður var og sízt verið siðsamlegri. Ég er maður ekki gamall að árum og man því ekki glöggt hvernig ástandið í áfengismálunum var þá í landinu yfirleitt, og ég skal ekki mæla bannlögunum bót, en það man ég, að t. d. var það viðburður heima í mínu héraði á þessum bannárum, að það sæist ölvaður maður og ég var orðinn vel stálpaður unglingur, þegar ég í fyrsta sinn sá drukkinn mann.
Með því að lesa hagskýrslur geta menn bezt komizt að raun um, hversu áfengisneyzlan hefur aukizt í landinu. Vil ég nefna hér dæmi. Frá árunum 1916–1920 var tekið meðaltal áfengisneyzlu, og sýndi sú tala, að neytt var að meðaltali 0.4 l. á mann, en árið 1945 sýndu skýrslur, að neytt var þá ca. 4 1. á mann. Með öðrum orðum, áfengisneyzlan nú er margföld miðað við það, sem hún var meðan bannið var. — Einnig má á það benda, að hagfræðilegar athuganir og rannsóknir hagstofustjóra sjálfs sanna, að með auknum undanþágum frá áfengislögunum stóreykst það áfengismagn, sem neytt er á ári hverju. Eins og áfengislögin eru nú, má segja, að þau feli ekki í sér miklar takmarkanir, en það leynir sér ekki, að þær takmarkanir, sem áfengisl. heimila nú, eiga ekki að vera lengur í gildi, ef þetta frv. nær fram að ganga. Þau ákveða, að ríkið eitt skuli annast sölu áfengis og hafa útibú úti um landið, en þó aðeins þar, sem fjölmenni er. Nú á að brjóta þetta fyrirkomulag niður, með því að leyfa einstaklingum að verzla með áfengt öl um allt landið. Það á að veita einkafyrirtækjum og einstaklingum leyfi til að verzla með þessa áfengistegund í stórum stíl, sem sagt nota einstaklingsframtakið út í æsar og velta einkafjármagni í þennan farveg. Á sama tíma og þetta á að gerast ber mjög á því. að erfitt reynist að fá fjármagn til nauðsynlegustu framkvæmda á sviði atvinnulífsins.
Nú er það í lögum, að áfengissala megi aðeins vera opin á þeim stað, þar sem meiri hluti íbúanna leyfi það. Nú er svo háttað, að engin vínsala er með allri ströndinni frá Rvík til Seyðisfjarðar að Vestmannaeyjum undanteknum. Skyldi breyting á þessu verða til þess að draga úr drykkjuskapnum? Enn fremur er gert ráð fyrir að gera að engu það fyrirmæli, að íbúar ráði sjálfir. hvort áfengissala er á staðnum.
Nú er það augljóst mál, að ef frv. þetta nær fram að ganga og verður að lögum, svo að um allt land verði selt þetta áfenga öl, þá verða héraðabönn gagnslítil eða gagnslaus og er það ein hlið þessa máls.
Í núgildandi áfengislögum er svo kveðið á, að lögreglustjórar hafi heimild til þess að loka áfengisverzlunum um tíma, ef ástæða þykir til. Þá er ekki til neyzlu nema það, sem ferðapelinn veitir. Hér á einnig að gera þessa reglu einskis verða, ef í hverri verzlun á að fást áfengur bjór, svo að drýgja megi áhrif þau, sem ferðapelinn kann að veita. Í áfengisl. er ákveðið. að stj. megi veita aðeins einu veitingahúsi leyfi til að hafa áfengi á boðstólum. Með frv. þessu er stefnt að því að gera þetta ákvæði einnig að litlu eða engu. Till. hafa komið fram um að veita fleiri veitingahúsum, t. d. öðru veitingahúsi hér við Austurvöll, vínveitingaleyfi svo að beggja megin við völlinn megi vera vínútsölustaðir, eða jafnvel öllum megin, ef sú hugsjón kemst í framkvæmd að setja upp barinn sem hann Jónas sagði frá!
Allt þetta miðar að því að draga úr þeim takmörkunum, sem áfengislögin fela nú í sér, og gera ókleift að hafa nokkurn hemil á áfengissölunni í landinu.
Ég hygg að ekki verði með rökum mælt á móti því, sem fram kemur glögglega í áliti landlæknis, að sala á áfengu öli mundi verða til þess að leiða margan æskumanninn, í viðbót við þá allt of mörgu, sem nú falla fyrir áfengisnautninni, út á drykkjumannsbrautina. — Hv. flm. talaði um það að neyzla þessa áfenga öls mundi verða til þess að bæta umgengnisvenjur þeirra, sem áfengra drykkja neyta. Ég verð að segja það, að mér finnst næsta furðulegt, að skynsamir menn skuli leyfa sér að bera slíkt á borð, þar sem allt efni frv. miðar að því að útvega fleiri tegundir áfengis og fleiri útsölustaði. Ég hygg því, að undir engum kringumstæðum geti það orðið til að bæta menningu okkar á neinn hátt að gefa upprennandi Íslendingum tækifæri til þess að drekka áfengt öl. Þeirra er framtíðin, og það eru þeir, sem eiga að varðveita menninguna og auka hagsældina í landi voru. Það er viðurkennt af læknum og öðrum, sem sérstakt vit hafa á þessu. að menn drekka ekki áfengi vegna bragðsins, og þá sízt unglingar, heldur vegna áhrifanna, og það er algeng þróun, að menn byrja fyrst á hinum veikari áfengistegundum, en fika sig svo upp stigann. Þar til hámarki er náð í ofdrykkju sterkra drykkja. Hv. flm. hafa viljað halda því fram hér í ræðum sínum, að unglingum mundi ekki þykja ölið bragðgott og því mundu þeir ekki drekka það. Það má vel vera að þeim þætti ölið ekki gott á bragðið í fyrstu, en hætt er við, að áhrif áfengisins yrðu nokkuð lokkandi fyrir þá og eins þau áhrif, sem koma fram við neyzlu áfengs öls, og það er í því, sem hættan er e. t. v. aðallega fólgin. Eins og ástandið er nú í áfengismálum þjóðarinnar, þá hygg ég að mönnum ætti fyrir löngu að hafa skilizt, að nú er nóg komið og því full ástæða til að stinga fótum við, en auka ekki vandræðaástand það, sem nú ríkir með að samþykkja þetta frv. Það er vissulega í gildi enn þann dag í dag, sem spekingurinn forni sagði : „Færra veit es fleira drekkur síns til geðs gumi.“ Þótt tilgangurinn með þessu frv. kunni að vera góður, hnígur allt efni þess í þá átt að brjóta niður þær allt of veiku varnir, sem fyrir hendi eru nú í þessum málum.
Það er ljóst, að flm. tala ekki af raunsæi og þekkingu um þetta frv. Þeir segja, að frv. eigi að vera til tekjuaukningar fyrir ríkissjóð. Það fær ekki staðizt, eins og frv. er nú úr garði gert. Fróðir menn segja, að ölið muni ekki söluhæft eins og ætlazt er til, að það sé blandað, þ. e. a. s. með 4% alkóhól. Flm. segja að sala og neyzla áfengs öls eigi að bæta umgengnisvenjur manna. Allar staðreyndir votta, að þetta fer í öfuga átt. Auðsætt er, að vonir þeirra, sem bundnar eru við frv., eru tyllivonir og rök þeirra úr lausu lofti gripin.
Flm. ættu því að sjá, að það hlýtur að vera bæði þeim og þjóðinni fyrir beztu, að þeir taki þetta frv. aftur. Og ef þeir gera það ekki, er það skylda Alþingis að fella það.