11.11.1947
Neðri deild: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í C-deild Alþingistíðinda. (2399)
69. mál, veiting prestakalla
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Svo sem kunnugt er, mæla gildandi l. um veitingu prestakalla svo fyrir, að hafi helmingur kjósenda í prestakallinu greitt atkv. á kjörfundi og fái einhver umsækjanda meiri hluta greiddra atkv., er hann rétt kjörinn prestur og fær veitingarbréf ráðherra fyrir prestakallinu. Annars er ráðh., ekki bundinn við atkvgr. og leitar þá til biskups um það, hverjum umsækjanda kallið skuli veitt.
Í frv. því, sem prentað er á þskj. 86, er lagt til, að gerð verði breyting á þessu, þannig að prestar skulu skipaðir í embætti af forseta Íslands, sem aðrir embættismenn hliðstæðir. Á síðasta Alþ. fluttum við hv. þm. N-Ísf. (SB) frv. til l. um veitingu prestakalla, þar sem gert var ráð fyrir afnámi prestskosninga, en prestar skyldu skipaðir í embætti af forseta Íslands. Kirkjuráð taldi lagabreytingu þá, sem í frv. fólst, réttmæta og mælti með því, að frv. yrði samþ. með nokkurri breytingu. Biskup lagði hins vegar gegn því, að frv. yrði afgreitt á því þingi. Kirkjuráðið taldi það vera of stórt spor, sem stigið væri, ef söfnuðirnir væru alveg sviptir þeim áhrifum, sem þeir nú hafa á skipun presta, en vildi fara milliveg í málinu. Við flm. frv. þessa höfum gert þá skoðun kirkjuráðs að okkar, að sóknarnefndir eigi að hafa íhlutun um val á presti, en höfum bætt því í frv., að sé hlutaðeigandi prófastur meðal umsækjenda, skuli leitað álits sóknarnefnda einna, og sé það samhljóða áliti biskups, skuli embættið veitt samkvæmt því. Þetta frv. hefur því samþykki kirkjuráðs, ef það yrði að lögum.
Helztu rök, sem menn færa fyrir prestskosningum, eru: Í fyrsta lagi, að söfnuðurinn sjálfur sé hæfastur til að velja hinn hæfasta umsækjanda. Um þetta er það að segja, að það er mjög vafasöm staðhæfing. Til þess að slíkt geti verið rökrétt ályktun þurfa safnaðarmenn að hafa þekkt umsækjendur um nokkurt skeið. En í flestum tilfellum þekkja kjósendur ekki og geta ekki þekkt umsækjendur. Prestur getur sótt um hvaða prestakall sem er, og er ofætlun, að sóknarbörn þekki alla þá menn, sem kynni að vera um að ræða. Og þau stundarkynni, sem safnaðarmenn fá af umsækjendum eða hafa af presti, geta ekki talizt það veruleg, að safnaðarmenn verði hæfir til þess að fella dóm sinn um umsækjanda út frá þeim forsendum. Að þessu leyti er mikill munur á prestskosningum og pólitískum kosningum. Í pólitískum kosningum bera frambjóðendur fram ákveðnar pólitískar stefnur, sem menn þekkja fyrir fram, og auðvelt er fyrir kjósandann að gera það upp við sig, hvern manninn hann vill kjósa með tilliti til pólitískrar skoðunar hans. En í prestkosningum gegnir öðru máli. Þar er um að ræða einstaklinga, sem kjósandi getur vart þekki það vel, að hann sé eða megi teljast dómbær um kosti eða ókosti frambjóðanda eða umsækjanda um prestakall. Ég tel því þessi rök fyrir prestskosningum ekki veigamikil.
Önnur eru þau rök fyrir prestskosningum, að það megi teljast lýðræðislegra, að söfnuður kjósi sér prest en að hann sé skipaður af ráðherra, og ef þessi réttur safnaðar sé af honum tekinn, þá sé það spor frá lýðræðisskipulaginu. Ég get ekki fallizt á þá skoðun, því að ef svo væri, þá er lítið lýðræðið í þessu landi, þar eð aðrir embættismenn en prestar eru ekki kosnir. Lýðræði er fólgið í allt öðru en þessu. Hvort lýðræði er ríkjandi í landi, fer eftir því, hvor löggjafarsamkunda þjóðarinnar er kosin, öðru ekki. Ég get því ekki fallizt á, að það sé andstætt lýðræði, þótt prestskosningar séu afnumdar.
Helztu rök gegn prestskosningum eru: Að þær leiði af sér, að óeðlilega erfitt sé fyrir presta að skipta um starfssvið og flytjast í betri brauð með auknum starfsaldri. Menn hika að vonum við að leggja út í harðvítuga kosningahríð, dvelja á fjarlægum stöðum við ærinn tilkostnað og jafnvel stofna mannorði sínu í hættu fyrir tvísýna von um, að orðstír þeirra, reynsla eða hæfileikar hljóti náð fyrir augum þess meiri hluta. sem úrskurðinn fellir á kjördegi. Þetta er hið þýðingarmesta, sem mælir gegn því, að prestar séu kosnir.
Í öðru lagi má það teljast leiðinlegt fyrir presta eða prestsefni að þurfa að keppa um hylli kjósenda og að brauð sé aldrei veitt nema eftir baráttu og hana oft harðvítuga á milli tveggja eða fleiri manna úr prestastétt. En það má telja mjög óheppilegt, að prestur byrji starf sitt með harðvítugri kosningabaráttu.
Í þriðja lagi valda kosningar oft ýfingum og ósamkomulagi, sem torveldar prestsstörf umsækjanda síðar. Um slíkt eru mörg dæmt, að ýfingar í kosningum hafi sáð eitri í sambúð prests og safnaðar.
Í fjórða lagi er engin trygging fyrir, að söfnuður velji sér hæfasta manninn, sökum ófullnægjandi þekkingar á umsækjendum, en þekking hans á þeim getur ekki orðið fullnægjandi vegna þess, hve skammvinn kynni safnaðarmenn yfirleitt fá af þeim.
Að lokum vík ég nokkuð að fyrirkomulagi á veitingu prestakalla annars staðar. Ég tek hér dæmi um fyrirkomulagið á Norðurlöndum. Víðar veit ég ekki, ekki skipun þessara mála, en Norðurlöndin eru skyldust okkur og er því eðlilegast að sækja fyrirmyndir til þeirra, ef við eigum að sækja þær út fyrir landsteinana á annað borð. — Í Danmörku er fyrirkomulagið þannig, að sóknarnefnd velur þrjár af umsóknunum, sem hún mælir með, en verði sóknarnefnd sammála um einn umsækjanda við fyrstu atkvgr., skal skipa hann í embættið. Sé ekki svo, mælir biskup með einhverjum þessara þriggja og ráðherra skipar einhvern þeirra. En þó getur í vissum tilfellum komið til kosninga.
Í Noregi er ekki heldur kosið. Þar er veitingarvaldið í höndum ráðherra, en löggjöf þeirra svipar yfirleitt til löggjafar Dana. Veitingarvaldið er ekki heldur alveg frjálst, ef till. koma frá ákveðnum kirkjudeildum um ákveðinn umsækjanda. Annars er valdið í höndum ráðh. Ég held, að þær raddir, sem heyrzt hafa um, að þetta fyrirkomulag dragi úr valdi safnaðanna að ákveða, hvaða prestur sé skipaður, geri sér ekki fullkomlega grein fyrir því að eins og nú háttar í l., þá kemur það afar sjaldan fyrir, að prestur sé löglega kosinn, þótt hitt hafi verið venja, að ráðherra hafi veitt brauðið þeim umsækjandanum, sem flest atkv. hlaut, þó að kosning hafi verið ólögleg. Ég tel því, að ekki sé gengið á rétt kirkjunnar, því að veitingarvaldið er með þessu frv. bundið, en bein íhlutun hvers sóknarmanns afnumin. Og það held ég, að verði prestastéttinni að meira gagni en missir réttar þess, sem hún nú hefur.
Ég óska svo þess, að frv. þessu verið vísað til hv. menntmn. að lokinni þessari umr.