18.12.1947
Efri deild: 40. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (242)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. — Það mátti búast við því fyrir fram, að frv. þetta mætti gagnrýni, og eins hinu. að aðalóánægjan við efni þess kæmi fram úr tveim gagnstæðum áttum, annars vegar frá þeim mönnum, sem skilja, hver voði þjóðfélaginu er búinn af því ástandi, sem skapazt hefur hér undanfarið í launa- og verðlagsmálum og nú ógn.w atvinnu- og fjármálalífi þjóðarinnar, — þeim mönnum, segi ég, er skilja þetta og er áhugamál að ráða á þessu bætur. Hins vegar mátti búast við andstöðu frá þeim mönnum, sem ætíð hafa verið og ætið hljóta að vera mótfallnir öllum raunhæfum aðgerðum gegn þessu ástandi, ýmist vegna þess, að þeir sjá ekki eða vilja ekki sjá voðann, sem í því felst, eða af því, að þeir eru andvígir því þjóðskipulagi og fjárhagskerfi í sjálfu sér, sem við Íslendingar, eins og yfirleitt allar lýðræðisþjóðir, búum við, og vilja því eyðileggja þetta: Því vitlausara, því betra.

Hinn fyrri flokkurinn, þeir, sem lækna vilja meinsemdina, gera margir hverjir kröfu til þess, að verðlagsmálum þjóðarinnar innanlands verði viðstöðulaust komið í það horf, að við Íslendingar getum áhættulítið haldið áfram að framleiða vörur til útflutnings, án þess að setja þurfi ríkissjóð að veði fyrir þeirri starfsemi eða greiða af almannafé stórar fúlgur í hallarekstur. Þeir krefjast þess enn fremur, að kaupgjalds- og launamálum verði þannig fyrir komið, eins og áður var, að þeir aðilar, sem menn hafa í vinnu og á launum, greiði þeim sjálfir umsamin laun og kaup. en ríkissjóðurinn verði ekki látinn halda áfram að fela nokkurn hluta þeirrar greiðslu, eins og nú er og hefur verið um skeið, með stórfelldum fjárframlögum úr ríkissjóði til að halda niðri kauplagsvísitölunni. — Og þeir benda á það, að þrátt fyrir þær ráðstafanir, sem hér eru gerðar, megi við því búast, að ríkið verði að halda áfram að greiða árlega vegna þessara mála 60–70 millj. kr. til niðurgreiðslu kaupgjalds og launa í landinu og til viðbóta á útfluttar afurðir. Og þeir segja: Þetta frv. er engin lækning á meinsemdinni. Ég get verið þeim sammála um það. En sumir þessara manna virðast álíta, að það sé aðeins ódugnaður og aðfaraleysi að laga ekki þetta ástand allt með nokkrum pennastrikum. En hér er um að ræða mikinn misskilning, sem of margir hafa löngum alið með sér.

Menn hafa sagt sem svo: Það er engin hætta, þó að kaupgjald og verðlag fari hækkandi, á meðan unnt er að halda atvinnulífinu í landinu í fullum gangi. Þegar það er ekki lengur hægt. þá er bara að færa allt niður aftur, eftir því sem þörfin krefur. — En þetta er ekki svona einfatt. Hjóli atburðanna með öllum þess afleiðingum verður ekki snúið til baka, eins og þegar skrúfað er niður í lampa, til þess að ekki logi upp úr. Þess vegna hefur það á öllum stigum þessa máls á undanförnum árum verið höfuðskilyrðið að stöðva hækkunina, stöðva vöxt dýrtíðarinnar. En til þess hafa eins og kunnugt er, aldrei fengizt samtök á Alþingi.

Á s.l. sumri fól ríkisstj. sérfróðum mönnum að gera athuganir á því, hve langt þyrfti að færa niður innlent verðlag og kaupgjald til þess að koma aðalútflutningsstarfsemi landsmanna. sjávarútveginum, á rekstrarhæfan grundvöll. miðað við það erlenda verð á afurðum okkar, sem vitað er um. Niðurstaða þessara manna eftir ýtarlega rannsókn var í aðalatriðum þannig, að ef hætta ætti að greiða niður vísitöluna, þyrfti að lækka kaupgjald í landinu um fullan þriðjung, landbúnaðarvörur eftir því og annað í samræmi við það, ef nokkur tök ættu að vera á því að framleiða saltfisk til útflutnings rekstrarhallalaust, borið saman við verðlag síðasta árs. — Þessi lækkun nægði þó hvergi nærri, hvað freðfisk áhrærði.

Svona aðgerðir eða álíka róttækar, hefðu máske verið hættulausar og réttmætar fyrir 5–4 árum. En ef að þessu hefði verið horfið nú, væri það vægast sagt mjög vafasamt. Á þessum árum hafa framkvæmdir og fjárfesting í þjóðfélaginu verið meiri en áður á áratugum. Hundruð milljónir króna hafa verið festar í alls konar fyrirtækjum með þeim stórkostlega kostnaði, sem verðbólga þessara ára hefur skapað. M.ö.o., það er búið að binda verðlagsástand undanfarinna ára varanlega í fjárhags- og athafnalífi þjóðarinnar. Ef nú hefði verið gripið til þess úrræðis að færa allt innlent verðlag til samræmis við þær niðurstöður, sem fyrr eru nefndar — hlaut það óhjákvæmilega að hafa þær afleiðingar í för með sér. að flestum eða öllum þeim, sem á undanförnum árum hafa bundið meira en eigið fé í meiri háttar framkvæmdum, hefði verið gersamlega um megn að standa undir skuldbindingum sínum. Og þar sem það er vitað, að mikill hluti af fjárfrekustu framkvæmdunum undanfarin ár — einstaklinga, félaga og bæjarfélaga o.fl. — er að mjög miklu leyti byggður á lánsfé, hefði þetta kostað fullkomið fjárhagshrun fyrir mikinn hluta þjóðarinnar, nema um leið hefði verið efnt til yfirgripsmeiri skuldaskila en nokkru sinni áður hefur hér verið til stofnað.

Ég nefni þessar staðreyndir til að benda þeim, sem óþolinmóðir eru út af ástandinu og finnst hér lítið að gert, á eina af hinum margháttuðu torfærum, sem hér eru á leiðinni, en ekki af því, að ég sé þeim ekki sammála um, að æskilegt væri, að hægt hefði verið að gera meira til úrbótar en það, sem hér liggur fyrir. En hér er þó eftir langa mæðu loksins gerð alvarleg tilraun til að spyrna fótum við og stöðva vöxt verðbólgunnar, og það er að þessu sinni það aðalatriði, sem allir þjóðhollir menn verða að hjálpast til að náist.

Ég skal nú snúa mér nokkuð að þeim flokki manna, sem nú berst æðisgenginni baráttu gegn þessu frv. og þeim úrbótum, sem í því felast, með þeim rökstuðningi, að hér séu óþarfar og ósanngjarnar byrðar lagðar á landsmenn og rangt stefnt í höfuðatriðum. Forgöngu í þeim málflutningi hafa að sjálfsögðu kommúnistarnir, eins og ljóst hefur komið fram í umræðum um málið í neðri deild. Það er sýnilegt á öllu, að höfuðmarkmið þeirra er að koma í veg fyrir og eyðileggja allar raunhæfar aðgerðir til að verjast því ástandi, sem nú er vel á veg komið að stöðva allt athafnalíf landsmanna. Mun ég taka hér til meðferðar nokkrar höfuðröksemdir þeirra við suma kafla frv.

Höfuðandstaða þeirra beinist að sjálfsögðu gegn III. kafla frv., sem fjallar um bindingu vísitöluppbótarinnar í 300 stigum.

Þeir hafa ekki getað fundið nægilega sterk orð til að lýsa þeirri kúgun á launamönnum í landinu, sem í þessu felist, og nefnt í því sambandi svimháar fjárupphæðir, er þeir segja, að verið sé að stela af landsfólkinu.

Það er nú rétt að athuga ofurlítið nánar þessa ægilegu launakúgun ríkisstj. og bera hana saman við það, sem gert hefur verið í þessum efnum hjá hinum lýðfrjálsu nágrannaþjóðum, þar sem verkalýðurinn sjálfur ræður ríkjum og markar stjórnarstefnuna.

Þá er nú þess fyrst að geta, að þar hefur hvergi verið farið inn á þá braut að greiða fulla verðlagsuppbót á launin. Hér hefur sá háttur tíðkast til þessa að greiða alla hækkun á framfærslukostnaði ofan á grunnlaunin mánaðarlega. — En sagan er ekki öll sögð með því, heldur hafa á þessu tímabili farið fram stórkostlegar grunnkaupshækkanir og á þær hefur einnig verið bætt fullri vísitöluhækkun. — Eftir því sem ég veit bezt, hefur hins vegar í nágrannalöndum okkar lítil sem engin grunnkaupshækkun átt sér stað á þessu tímabili. Svo varfærnar eru þessar þrautþjálfuðu og félagslega þroskuðu þjóðir um allt, sem ýtir undir aukna verðbólgu, að t.d. í Svíþjóð og Danmörku hafa undanfarin ár verið háð margra mánaða verkföll út af kröfum um nokkurra aura hækkun á klukkustund — og í Noregi hefur nýskeð verið til þess gripið að banna alla kauphækkun og verðhækkun með lögum. Í öllum þessum þrem löndum fara nú stjórnir sjálfra verkamanna með völdin. Mundu þær vera líklegar til að haga stjórn þessara mála þannig til að níðast á verkalýðnum?

Ég vil nú athuga lítillega, hvernig „launakúgun ríkisstjórnarinnar“ lýsir sér í kaupgjaldsmálum stærsta verkalýðsfélags landsins, með samanburði á því, sem var fyrir stríð, og því, sem yrði nú, samkv. frv.

Fyrir stríðið var tímakaupið í Dagsbrún kr. 1.45. Síðan hefur framfærslukostnaður að vísu stórhækkað, og er framfærsluvísitalan í dag, eftir að nokkur hluti framfærslukostnaðarins hefur verið greiddur niður af ríkissjóði, 328 stig. Samkvæmt þessu ætti Dagsbrúnarmakamaðurinn að vera svipað settur í dag með kr. 4.76 um tímann eins og með kr. 1.45 fyrir stríð.

Nú í dag er grunnkaup Dagsbrúnar kr. 2.80. — Ef ofan á það er bætt verðlagsuppbót, miðað við vísitöluna 300, eins og frv. gerir ráð fyrir, yrði tímakaupið kr. 8.40 eða 364 aurum hærra en það, sem grunnlaun fyrir stríð voru, og þannig raunveruleg launahækkun frá því fyrir stríð um 75%, jafnvel þótt ekki væri gert ráð fyrir neinni lækkun á framfærslukostnaði vegna annarra þeirra ráðstafana, sem felast í frv., sem þó hlýtur að verða nokkur. Og þar sem allir launamannaflokkar landsins hafa hlotið meiri og minni grunnlaunahækkanir á þessu tímabili, er hin raunverulega launahækkun þeirra í samræmi við það.

M.ö.o., á sama tíma og launamenn þeirra þjóða, sem við Íslendingar eigum mest skipti við og ýmist þurfum að selja framleiðsluvörur okkar eða keppa við á heimsmarkaðinum, búa við svipuð eða máske lægri launakjör en fyrir stríð, hefur verkamaðurinn í Dagsbrún fengið bætt launakjör um 75%, miðað við ákvæði þessa frv., og aðrir verkamenn og launamenn í námunda við það. Og þá er þó algerlega gengið fram hjá þeirri staðreynd, að fyrir stríðið var atvinnuástandið því miður oft þannig, að verkamaðurinn fékk meira og minna af atvinnulausum dögum, jafnvel upp í 1/3 af vinnudögum ársins, en nú um langt skeið hefur tekizt að halda uppi atvinnu alla daga ársins. — En það er vitanlega eitt meginatriðið fyrir afkomu allra vinnandi manna, ef unnt er að tryggja þeim næga og stöðuga atvinnu, og það er meðal annars tilgangurinn með þeim ráðstöfunum, sem felast í þessu frv.

Ég þykist nú vita, að mér verði svarað því, að ekki sé unnt að byggja reikninga þessa á hinni skráðu framfærsluvísitölu, vegna þess að hún sýni ekki rétta mynd af hinum raunverulega framfærslukostnaði. Ég efast nú um, að sú fullyrðing sé með öllu rétt gagnvart öðrum en þeim, sem orðið hafa fyrir sérstökum skakkaföllum, vegna húsnæðisástands og húsaleiguokurs á sumum stöðum í landinu — og er vitanlega óhugsandi að miða launakjör alls almennings í landinu við það. En þó að eitthvað kynni að skorta á, að verðvísitalan væri hárnákvæm, þá er nú allmikið eftir fyrir afskriftinni í þeim stórbættu launakjörum almennings, sem hér hafa verið leidd rök að.

Nú skal ég bæta því við, hvort sem því verður trúað eða ekki, að það er svo langur vegur frá því, að ég telji það eftir út af fyrir sig, að launastéttir landsins skuli hafa getað bætt lífsafkomu sina h þessum árum — að ég tel það hið mesta gleðiefni. Og ég fullyrði það, að hvaða íslenzk ríkisstj. sem væri — það leiðir af sjálfu sér, og er núverandi ríkisstj. þar engin undantekning teldi sig sæla, ef hún gæti bætt og tryggt kjör alls almennings í landinu, en þyrfti ekki að skerða þau á neinn hátt. En við metum meira, ef unnt væri að tryggja öllum þorra manna vel viðunandi kjör í framtíðinni, þó að eitthvað þurfi að slá af því, sem er, en að berjast fyrir því að viðhalda eða auka svo kallaðar kjarabætur, sem jafnframt eyðilegðu allt afkomuöryggi þeirra manna, sem við þær ættu að búa. Og það þori ég að fullyrða, að ef menn í rólegri yfirvegun bera saman þau kjör, sem íslenzkar launastéttir nú búa við og þeim er ætlað að búa við samkv. þessu frv., og þau, er stéttarbræður þeirra í nágrannalöndum okkar, þeir, sem bezt eru settir, eiga við að búa, þá hljóti þeir að viðurkenna, að ekki getur meira öfugmæli en það, sem kommúnistarnir okkar hafa verið að æpa sig hása á nú að undanförnu, að íslenzka ríkisstj. sé að beita sér fyrir launakúgunarhernaði á hendur íslenzkum verkalýð.

Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að úrlausn sú, sem hér er lögð til, sé alfullkomin og gallalaus. Ég hefði líka kosið, að lengra hefði orðið komizt áleiðis til að lagfæra það ástand í verðlagsmálum landsins, sem fyrir löngu er orðið óviðunandi. — En þessi tilraun, sem hér er gerð, er fyrsta sporið, sem Alþingi og ríkisstj. stiga til að hefja af sinni hálfu viðnám og viðreisn í þessum málum. En fullkominn sigur í baráttunni fyrir heilbrigðu athafna- og fjármálalífi næst því aðeins, að nægilega mikill hluti af landsfólkinu geri sér grein fyrir því, hvernig ástatt er, og vilji standa að umbótunum með þingi og stjórn. Á þann hátt og þann hátt einan verður við þennan vanda ráðið. — Það verður máske ekki mikið, sem vinnst með því spori, sem hér er stigið. En það, sem þó sannfærir mig bezt um það, að hér stefni í rétta átt, þótt skammt sé stigið, er sú ofsafengna andstaða, sem frv. hefur hlotið af hálfu þeirra manna, er hafa sýnt og sannað með framkomu sinni „hér úti á Íslandi“, eins og flokksbræður þeirra annars staðar í lýðstjórnarlöndum, að það, sem vakir fyrir þeim, er fyrst og fremst að kollvarpa þeirri þjóðfélagsbyggingu — því atvinnu- og fjármálakerfi, sem byggt er á grundvelli frjálsrar lýðstjórnar.

Við könnumst við „séra-Guðmundarkynið“, svo að ég taki mér í munn orð Halldórs Kiljans. Það er alltaf sjálfu sér líkt, hvort sem það birtist í Ítalíu, Frakklandi, hér úti á Íslandi eða annars staðar.