18.11.1947
Neðri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í C-deild Alþingistíðinda. (2434)
83. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr. um þetta mál nú. En mig langar til að láta koma fram við 1. umr. nokkrar aths. við frv.
Ég get fallizt á það með hv. 1. flm., að málinu verði vísað til n., og þá helzt samgmn. Því að það, sem ég tel vafasamt í þessu frv., snertir kannske þá n. öllu meira en hitt atriðið snertir fjhn., sem er fjárhagsatriðið, hvort halda skuli áfram þessu gjaldi til brúasjóðs, eins og verið hefur, eða ekki. En aths., sem ég vildi láta koma fram nú, eru þær að mér er kunnugt um, að aðrar brýr geta fullkomlega komið til álita ekki síður en þessi, sem sérstaklega er ástæða til að láta hafa nokkurn forgangsrétt. Og ég vildi, að sú n., sem fengi þetta mál til athugunar, vissi af því og hefði það til hliðsjónar, þegar hún tekur málið til athugunar.
Það hafa verið síðustu árin byggðar tvær stórbrýr á okkar mælikvarða, á Ölfusá og á Jökulsá á Fjöllum, sú síðari fyrir fé úr brúasjóði. Þessar brýr eru á höfuðsamgönguleiðum, og orkar ekki tvímælis um þörfina á að byggja þær né heldur, hvort þær hafi átt að koma í fyrstu röð.
Nú eru efst á baugi liggur mér við að segja, tvær til þrjár stórbrýr, sem að minnsta kosti ég vil ekki taka dýpra í árinni en að segja að minnsta kosti — ætti að nefna jafnsnemma og brúna á: Jökulsá í Lóni, og sumar fyrr. Það er bygging Þjórsárbrúarinnar, — sem sérfróðir menn telja, að litla eða enga bið þoli að byggja, vegna þess hve gamla brúin þar er hrörleg og áhættusamt er að aka um hana og ekki hægt að fara yfir hana með þann æskilegasta þunga. Þess vegna tel ég Þjórsárbrúna eiga að koma þarna í fyrstu röð, enda hafa ráðstafanir verið gerðar til undirbúnings að smíði á henni, enda þótt ekki sé heimild um fjárframlag til hennar nema á heimildargr. fjárl. — Önnur er brúin á Hvítá hjá Iðu, sem talað hefur verið um á undanförnum árum og einnig kostar mikið fé á okkar mælikvarða, þó kannske ekki eins mikið og brúin á Þjórsá. Undirbúningur hefur einnig verið gerður töluverður undir byggingu brúar á Hvítá hjá Iðu og mun honum vel á veg komið. — Þriðja brúin er á Blöndu, sem fjárveitingar hafa verið veittar til undanfarið, en hún mun kosta a. m. k. 2 millj. kr.
Allar þessar þrjár brýr, sem ég nú nefndi, tel ég, að komi fullkomlega til álita í fyrstu röð, þegar um er að ræða, hvaða stórbrýr skuli byggðar á næstu árum hér á landi. Þess vegna finnst mér hæpið að samþykkja, að Jökulsá í Lóni skuli hafa þar forgangsrétt, þó að mér sé kunnugt um, að hún slítur sundur héruð og er mikill farartálmi innan héraðs. En það hefur þó verið sú hugsun uppi, að þær stórbrýr sem til mála koma, skuli ganga fyrir, þar sem samgönguþörfin er brýnust og umferðin mest. Og ég tel, að á meðan samgöngukerfi okkar um sunnanverða Austfirði er ekki komið lengra en er, þá verði þetta ekki sú samgönguleið milli landsfjórðunga, sem geti svarað til þeirra brúa annarra, sem ég nefndi. Þetta vildi ég að hv. n., sem frv. fer til, tæki til athugunar. Ég er alls ekki að mæla gegn því, að þetta frv. gangi sinn gang og komi til athugunar, en vildi aðeins að þessi sjónarmið kæmu fram og verði upplýst í þessu sambandi.