18.11.1947
Neðri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (2435)

83. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Ég get stytt mál mitt enn meir fyrir það, að hæstv. samgmrh. hefur nú vikið að nokkrum atriðum. sem ég vildi minnast á í sambandi við þetta frv. Það ber engan veginn að skilja það svo, þó að ég hafi tekið undir orð hæstv. samgmrh., að það sé athugað um byggingu fleiri brúa en frv. þetta nefnir að ég vilji leggja hindrun fyrir þá samgöngubót, sem brúarsmíði á Jökulsá í Lóni mundi verða, því að ég veit, að það er mjög mikil þörf á þeirri brú fyrir það hérað, sem hún yrði gerð fyrir og sú brú mundi greiða mjög fyrir samgöngum, ekki aðeins fyrir Austur-Skaftafellssýslu, heldur einnig fyrir Múlasýslur, einkum Suður-Múlasýslu.

Þetta ákvæði. sem frv. þetta fjallar um og áður hefur verið í l., að verja skuli vissum hluta af þessum skatti til slíkra framkvæmda, kann að vera, að menn greini á um, nefnilega hvort það muni vera hyggilegt, að við höfum slíka ráðstöfun á tekjum ríkissjóðs. Því að ef menn teldu sig betur komna með að koma í framkvæmd ýmsum mannvirkjum, þannig að það væri auðveldari leið til þess með því að skipta upp þannig tekjum ríkissjóðs með því að gera fyrir fram ákvarðanir um það, hvernig tekjum ríkissjóðs skuli varið með slíkum sjóðsstofunum til framkvæmdanna, þá væri hægt að ganga lengra inn á þessa braut en þetta frv. ákvarðar og gæti þá svo farið að það gæti dregið dilk á eftir sér fyrir ríkissjóð. Það er vitanlega á valdi Alþ., hve langt er gengið í því efni.

En ekki er alveg víst, að menn sæju fyrir fram, til hvers það leiddi, ef langt yrði gengið á þeirri braut. En þingið hefur líka á valdi sínu, hvaða ákvarðanir það gerir í hvert sinn um einstakar framkvæmdir. En þetta að ákvarða þannig tekjur ríkissjóðs fyrir fram, mun upphaflega hafa verið tekið upp vegna þess, að þeir menn, sem að þessari lagasetningu stóðu, hafa talið hana líklegri aðferð til þess að koma vissum málum til framkvæmda en að fara þá leið að sækja undir fjárveitingarvaldið í sambandi við fjárl. hverju sinni um fé til framkvæmdanna. Vel má vera, að brúin væri ekki komin á Jökulsá á Fjöllum, ef svona fyrir fram ráðstöfun á tekjum ríkissjóðs hefði ekki verið við höfð. Og þetta frv. fer ekki fram á meira en farið var fram á vegna brúargerðar á Jökulsá á Fjöllum á sinni tíð og hér er ekki gengið lengra. En þessari löggjöf var kippt í burt. Hér er fram komin till. um að gera hana gildandi aftur.

Hæstv. samgmrh. minntist á þær brýr, sem mikil nauðsyn væri á að byggja fljótlega. Og ég get alveg tekið undir ummæli hans um það. Er æskilegt, að sú n., sem fær málið til meðferðar, athugi vandlega, áður en málið er afgreitt í þeirri mynd sem það er, hvaða ráðstafanir verði gerðar viðkomandi þeim stórbrúm, sem nú kallar mjög að að reisa. Ég get fullkomlega fallizt á ummæli hæstv. samgmrh. um smíði á Þjórsárbrúnni. Brúin á þeirri á er víst orðin nokkuð hrörleg og illt að treysta henni til að þola þunga vagna. Er því ekki nema sjálfsagt, að lögð sé áherzla á að endurbyggja þá brú, svo að öruggt sé, að ekki takist eins til við umferð yfir hana og kom fyrir á Ölfusárbrúnni. Vonandi er að strangara eftirlit verði haft um, að ekki verði slys vegna umferðar um Þjórsárbrúna, en átti sér stað um Ölfusárbrúna.

Hæstv. Alþ. hefur þegar með yfirgnæfandi atkvæðamun ákvarðað, að brú á Hvítá hjá Iðu í Biskupstungum skuli byggð árið 1948. Að því leyti get ég skírskotað til þeirrar samþykktar. Og mér dettur ekki í hug, að hæstv. Alþ. hlaupi þannig frá ákvörðunum sínum og samþykki allt annað síðar, sem kemur í bága við hina fyrri samþykkt, eða að það yfirleitt temji sér að samþykkja eitt í dag og annað á morgun um sama hlutinn eins og slíka brúargerð. Slíkt væri ekki til þess að auka traust á Alþ. eða til að auka veg þess. En þó að brýn þörf sé á að brúa Hvítá hjá Iðu, get ég búizt við, að ekki verði unnt að byggja þá brú og Þjórsárbrúna samtímis. Brúargerð á Hvítá hjá Iðu verður fjárfrek, og til þessara brúa þarf mikinn mannafla. Mér þykir því ekki nema eðlilegt, að það verði ekki nema önnur þessara brúa, sem byggð verði á næsta ári, og þá verði það brúin á Þjórsá. Og þó að mér sé það skyldara mál, er snertir byggingu brúar á Hvítá hjá Iðu, þá vil ég fullkomlega meta þá nauðsyn, sem er á því að byggja brúna á Þjórsá. Tel ég meiri þörf á, að byggingu Þjórsárbrúarinnar verði flýtt, eftir því sem kostur er, og ekki nema réttmætt, að sú framkvæmd gangi fyrir brúargerð á Hvítá hjá Iðu. En eftir að Þjórsárbrúnni er lokið, tel ég mér skylt, vegna minna umbjóðenda, að mælast mjög eindregið til þess, að brúin á Hvítá hjá Iðu verði þá byggð á næsta ári á eftir, eða 1949.

Ég ætla svo ekki að fjölyrða um þetta mál frekar að sinni. En ég vil vanta þess, að sú hv. n., sem fær málið til meðferðar og mér þykir í alla staði eðlilegast, að verði samgmn., afgreiði mál það, sem hér liggur fyrir, svo að það verði síðar meir ekki neinn metingur um það, hvernig haga skuli smíði þeirra brúa, sem sumpart er búið að ákvarða hér á hæstv. Alþ. um smíði á og sumpart verður ákvarðað um á þessu þingi.