18.12.1947
Efri deild: 40. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (245)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Forseti (BSt):
Hæstv. fjmrh., Jóhann Jósefsson, hefur nú lokið máli sínu. Er þar með umr. um þetta mál lokið.
Ég vil taka undir ósk hans, f.h. Alþingis, til hinnar íslenzku þjóðar um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Flokkarnir hafa allir notað örfáar mínútur fram yfir hinn ákveðna ræðutíma, hæst 4 og lægst 2 mínútur.
Verður þá gengið til atkv.