24.11.1947
Neðri deild: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (2455)

92. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Flm. (Pétur Ottesen) :

Mér er ánægja að því, hve góðar undirtektir þetta frv. hefur fengið og hversu mikill áhugi er á því meðal hv. dm. að greiða götu þessa máls. Eins og gefur að skilja, eru það ýmis minni háttar atriði, sem skoðanir eru skiptar um, en væntanlega verða hin smærri atriði ekki til þess, að menn missi sjónar á því, sem er aðalatriði málsins. Ég vildi aðeins minnast á nokkur atriði, sem fram hafa komið í ræðum hv. dm. Hæstv. fjmrh. og fleiri hafa látið í ljós þá skoðun, að málið væri e. t. v. leyst með því að fjölga beina- og lýsisbræðsluverksmiðjum hér við Flóann. Þetta er alveg byggt á misskilningi. Það gæti að vísu komið til mála að leysa þetta þannig á tímabilinu til áramóta, sem er minnsti hluti veiðitímans, t. d. var veiðitíminn í fyrra desember-marz. En sá annmarki er meðal annars á þessu, að ekki yrði hægt á mörgum stöðum að koma upp nægilega fljótvirkum löndunartækjum, eins og hægt væri, ef ein verksmiðja væri byggð. Og reynslan sýnir með svona innfjarðarveiðar, að það er alveg óviðunandi, að bátar þurfi að bíða lengi eftir löndun og það utan veiðisvæðisins, þegar afli er svo mikill sem raun ber vitni. En þetta sker þó ekki úr í þessu atriði, heldur hitt að eftir 1. janúar er ekki hægt að nota þessar verksmiðjur, því að þá þurfa þær að þjóna þorskveiðunum eingöngu. Þannig var það á Akranesi í fyrra, að enga síld var þar hægt að bræða eftir áramót, því að verksmiðjan þar var eftir þann tíma upptekin við að bræða þorsklifrina og vinna úr fiskúrgangi. Alveg sama yrði upp á teningnum, hvað snertir verksmiðjur hér við sunnanverðan Faxaflóa, í Hafnarfirði og hér í Reykjavík. Þetta sjónarmið má því ekki verða til að tefja þetta mál, því að í því felst engin lausn. Það væri hægt að vinna úr einhverju magni til áramóta, en eftir áramót yrði að flytja allt magnið til Norðurlands. Eins og ég tók fram áðan, var veiðitíminn í fyrra í desember-marz, svoleiðis að næstum allan aflann varð að flytja til Norðurlands. Og það bætir ekki úr, þótt byggðar verði hér þrær, því að engin verksmiðja er hér til að vinna úr því, sem í þrærnar er látið, svo framarlega sem um einhverjar þorskveiðar er að ræða. Hitt er annað mál, eins og ég tók fram í minni framsöguræðu, að hér er hægt að geyma lengur óskemmda síld í þróm á veturna en fyrir norðan á sumrin, en það er því aðeins gagnlegt að byggja hér þrær, að til sé einhver verksmiðja, sem eingöngu vinnur að því að bræða síld. Þetta vildi ég láta koma fram, því að það sjónarmið, sem ég nú hef rætt, var þannig fram sett, að það gat dregið úr framgangi málsins.

Ég skal ekki segja um það, hvort leysa megi þetta mál með því að koma upp fljótandi síldarbræðslustöð, en ég veit, að sumir kunnáttumenn, er þennan möguleika hafa athugað, hafa álitið, að slíkt skip með öllum nauðsynlegum útbúnaði yrði svo dýrt fyrirtæki, að erfitt yrði að láta starfsemina bera uppi þann kostnað, svo að lítið yrði þá afgangs handa þeim, sem hráefnisins afla. Þetta má auðvitað athuga, en það er svo stutt á veg komið, að enginn getur varpað af sér áhyggjum þessa vandamáls upp á það. Það er raunar enginn kominn til með að segja, hvað síldin verður hér varanleg, en það er staðreynd, að hún var hér í fyrra og nú í ár og það er engan veginn loku fyrir það skotið, að hún hafi verið hér miklu fyrr en vart varð við, því að þessi síld veður ekki og sést því ekki ofansjávar, og það er ekki hægt að veiða hana eins og síldina fyrir Norðurlandi. Þessarar síldar verður annars vegar vart með því að lóða, sem svo er kallað, og hins vegar með hinni nýju tækni, sem felst í dýptarmælingum, en með þeim er hægt að fá að vita um síldina eins nákvæmlega og eftir landabréfi og hægt að vita, hvað torfurnar eru stórar og þykkar og víðáttumiklar. Hefði slíkum aðferðum áður verið beitt, má vera, að hið sama hefði komið í ljós, en um það veit enginn. Hitt vita menn, að í haust kom síldin, þar sem hún kom í fyrra og það, að því er virðist, í miklu stærri mæli. Hv. 7. þm. Reykv. talaði um það, að bæjarstjórn Reykjavíkur hefði hafizt handa um rannsóknir í þessu efni og kvatt til ýmsa aðstoðarmenn. Rannsóknir eru nú ekki nema eitt atriði málsins, og aðalatriðið er, að rannsóknin leiði til þess, að eitthvað sé gert. Það þýðir ekki að gera athuganir og rannsóknir, nema menn hafi ákveðið að ráðast í framkvæmdina. Nú veit ég ekki, hvort má skilja hv. 7. þm. Reykv. svo, að bæjarstjórnin ætli að hefjast handa í þessu máli án þess, að Alþ. og ríkisstj. komi þar til skjalanna, það kom ekki beinlínis fram í ræðu hv. þm. Fyrst þegar fengin er vitneskja um það, að fyrir hendi séu vilji og aðstæður til að hefja framkvæmdina, þarf að láta nauðsynlegar athuganir fara fram, sem í þessu tilfelli fælust eingöngu í því að finna verksmiðjunni stað, sjá farborða fjárhagsgrundvelli fyrirtækisins og afla þeirra hluta, er til framkvæmdanna þar, en allt veitur á að framkvæmdin sé fyrirhuguð.

Ég vil svo að lokum út af því, sem fram kom hjá hv. þm. Ísaf. og hv. 11. landsk. þm. um að þeir teldu eðlilegra, að málið færi til sjútvn., geta þess, að ég get alveg fallizt á það og beini því til hæstv. forseta, að ég tek aftur till. mína um það, að málið fari til fjhn. Hins vegar teldi ég eðlilegt, að sjútvn. hefði samvinnu við fjhn. um fjárhagshlið málsins, sem er vissulega nokkuð stór og olli því, að ég upphaflega lagði til, að málið færi til fjhn., en sem sagt, ég tek þá till. aftur og styð þá uppástungu, að málinu verði vísað til sjútvn.