25.11.1947
Neðri deild: 24. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í C-deild Alþingistíðinda. (2462)

93. mál, útrýming villiminka

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég get í sjálfu sér vitnað til grg. þeirrar, er fylgir frv., því þar er drepið á mörg þau atriði, sem máli skipta í þessu sambandi. Þó vil ég til frekari áréttingar fara um málið nokkrum orðum.

Ég ætla að það hafi verið annaðhvort áður eða í þann mund er minkaeldi hófst hér á landi að náttúrufræðingurinn Guðmundur G. Bárðarson skrifaði ýtarlega grein um það, hver hætta mundi stafa af því að flytja minka inn í landið og fara að leggja út í minkaeldi í landinu. Hann benti á, hvað þetta dýr væri kröftugt, greint og slungið að bjarga sér og harðvítugt á allan hátt til þess að heyja sína lífsbaráttu og hvernig það gæti breytt lifnaðarháttum sínum eftir breyttum aðstæðum á hverjum tíma. Og hann varaði landsmenn mjög sterklega við því að fara að ala þetta dýr. Því miður fór svo í þessu efni, að menn tóku ekki mark á þessu, eins og farið hefur fyrir okkur um fleiri hliðstæð mál, a. m. k. ekki nægilegt mark á þessari aðvörun. Það hófst hér minkaeldi í allstórum stíl og allvíða um landið. Það sýndi sig þá fljótlega, að náttúrufræðingurinn varð sannspár um, að búrin, sem áttu að geyma minkana, héldu ekki. Það kom mjög fljótlega í ljós, að þeir björguðu sér út úr búrunum og komust út í hina frjálsu náttúru og fóru að lifa sínu villta lífi, sem þeim er eiginlegast, eins og öðrum dýrum af þessum stofni. Kom þá bráðlega í ljós, hve þetta dýr er ötult að bjarga sér. Og það hefur sýnt sig með hverju ári, sem líður, að þessir kostir dýrsins, miðað við lífsbaráttu þess sjálfs og harðfengi þess, urðu til þess, að villiminkum fjölgaði óðfluga úti um landið. Og meira og minna hefur borið á því, að þessi dýr hafi sloppið út úr búrum, þó að ég dragi vitaskuld ekki í efa, að þeir, sem minkaeldi hafa stundað, hafi ætlað að gæta þess vandlega, að dýrin slyppu ekki, því að líklega hafa þeir ekki skellt skolleyrum við því, sem fræðimenn hafa sagt um þessi dýr, en ætlað að gæta dýranna. En það fór á annan veg en það tækist, eins og reyndar vænta mátti, því að þeir, sem þekktu til lifnaðarhátta þessara dýra, efast ekkert um, að meðan minkum er haldið í búrum, sleppa minkar líka út úr búrum, því að þetta dýr þarf ekki nema litla smugu til eða smáatvik og skilyrði aðeins augnablik til þess að geta sloppið, og þá notar það sér það tækifæri til þess að bjarga sér burt. Þetta dýr er nú orðið talsvert mikið útbreitt um landið og útbreiðsla villiminksins fer nú hraðvaxandi. Hann er hér í Gullbringu- og Kjósarsýslu og um Borgarfjarðarsýslu. Ég veit ekki, hvort hann er í Mýrasýslu, en sterkur grunur leikur á, að hann sé kominn í Dali. Hann er kominn um Árnessýslu og Rangárvallasýslu, það veit ég með vissu. Vestra er hann villtur og á Norðurlandi. Hefur hann sloppið út úr búrum í Þingeyjarsýslu og er farinn að herja með Laxá og við Mývatn, eftir því sem mér er sagt.

Þegar þessu máli, banni gegn minkaeldi, var fyrst hreyft hér í Alþ., þá var ég því fagnandi, því að mér virtist, að það væri augljóst, að af þessu dýri stafaði hin mesta hætta. En því miður daufheyrðust menn við málinu þá, sem stafaði af því, að hv. alþm. töldu þá, að ekki stafaði svo mikil hætta af þessu dýri, og töldu sér trú um, að villiminkurinn mundi ekki ná mikilli útbreiðslu, og þó að minkaeldi héldi áfram, slyppu minkar ekki út úr búrum. En fram að þessum vetri veit ég til þess, að þeir hafa verið að sleppa út úr búrum, og villiminkurinn breiðist óðfluga út, og í svo stórum stíl sums staðar að alifuglarækt er alveg að leggjast niður. Í Árnessýslu er hann svo útbreiddur, að ekki er annað sjáanlegt en að menn verði alveg að hætta alifuglarækt. Hann hefur reynzt hinn argasti bitvargur í hænsnahjörðum og eyðilagt endur og sömuleiðis tamdar gæsir, fyrir utan það tjón, sem hann veldur á villtum fuglum í stórum stíl. Og auk þess sem hann hefur framið þessi skemmdarverk, þá hefur komið fyrir, — að vísu ekki í stórum stíl enn, — að hann hafi banað unglömbum. Og í bergvötnum leggst hann á silung og lax og er á góðum vegi, þar sem hann hefur haldið sig tvö til þrjú ár við þær ár, að uppræta lax- og silungsgönguna í þessum ám. Þetta get ég borið um af eigin raun, því að í minni sveit, Biskupstungum, er bergvatnsá, ekki stór, en er ágætlega fallin til klaks. Þar eru hyljir í henni, góðir og djúpir, og malarbotn, svo að þar eru ákjósanlegustu staðir fyrir lax og silung að klekja þar út. En nú um tvö til þrjú ár hafa villiminkar haldið sig við þessa á, og þannig er ástatt orðið um fiskgengdina í þessu vatnsfalli, að tæpast kemur fyrir, að sjáist þar branda, hvort heldur er silungur eða lax. Þetta gefur til kynna, hvers vænta má, ef minkurinn heldur áfram tilveru sinni, og það því fremur, þess meir sem hann breiðist út og fjölgar. Þetta dýr er það hugrakkt og harðvítugt, að villiminkur horfir ekkert í það, þó að dýrið, sem hann velur sér að bráð, sé miklu stærra og sterkara en hann sjálfur. Hann beitir vopnum sínum, tönnum og klóm. það harðvítuglega, að hann verður sér miklu stærri dýrum að fjörlesti. Heima í Skálholtstungum hefur að vorlagi haldið sig mikið af villigæs. Hún hefur verpt þar, og þar hefur hún átt griðland. Ég hef haft gaman af þeim, þessum villigæsum, þó talið sé, að þær valdi skemmdum, og þær hafa aukizt jafnt og þétt og skipt mörgum hundruðum. En nú bregður svo við í vor, að þegar ég var að huga að kindum, fór ég að rekast á gæsahami. Fyrst í stað vissi ég ekki hvað því mundi valda. En svo bar það við, að tveir drengir sem hjá mér voru í sumar, voru á ferð á þessum slóðum og sáu þar liggja dauða gæs. Og þegar þeir komu að henni, kom minkur undan fuglinum. Þá var fuglinn volgur og minkurinn sýnilega nýbúinn að bana honum. Á þessum stað var líka krökkt af margvíslegum öndum áður, en þær hurfu með öllu við komu villiminksins á þessar slóðir. Og þannig var komið í sláttarbyrjun í sumar, að nær öll villigæs var horfin af þessum slóðum. Þetta gefur mönnum til kynna, hvernig fara muni, þegar villiminkurinn kemst í varplöndin. Og svona eyðilegging er búin að koma fyrir nú þegar í nokkrum varplöndum. Skal ég benda á dæmi þess, og má vel vera, að það sé víðar og í stærri stíl en ég þekki. Hér suður í Höfnum var nokkurt varp, en er nú nær því horfið vegna minksins. Í Borgarfirði á nokkrum stöðum er æðarvarp og á þrem stöðum í þeirri byggð, hérna megin Borgarfjarðarins, er mér sagt að minkurinn hafi lagzt iðulega á varpið. Í Akurey, þar sem mikið æðarvarp hefur verið, er minkurinn nærri búinn að útrýma varpinu.

Þessi atriði, sem ég hef nú minnzt á, benda til þess, hvað verða muni, ef ekki eru gerðar ýtarlegar ráðstafanir til þess að útrýma minkunum. En það er tilgangslaust að hefja þá baráttu og mun aldrei verða gert af fullum krafti, ef minkaeldi heldur áfram í landinu og menn geta átt þess von, að út sleppi minkur úr minkabúrum og auki kyn sitt jafnóðum og reynt er að vinna á villiminkum. Fyrsta skilyrðið til þess að sigrast á þessari plágu, sem útlit er fyrir, að ætli að verða landplága, villiminkunum og fjölgun þeirra, er að hætta minkaeldinu og gera svo herferð og hana harða og kröftuglega gegn þessum skaðræðisdýrum.

Nú vill líka svo til, að ég hygg að það þurfi ekki að valda miklu tjóni. Þó að minkaeldi sé bannað, því að svo er nú komið, að á undanförnum árum hefur þessi dýrastofn hér, sem alinn hefur verið, gengið saman sem betur fer, vil ég segja svo að nú eru ekki nema um 5 þús. minkar til hér 4 landi í búrum. Þær upplýsingar hef ég frá loðdýraræktarráðunautinum. Og þessi alidýrarækt hefur nú um undanfarin ár veitt þeim, sem hana hafa stundað, verulegan kostnað en engan arð. Það var verið að segja mér það alveg í þessu, sem ég kalla gleðitíðindi, að sá maður sem stundað hefur minkarækt og farið það sennilega bezt úr hendi af eigendum þessara dýra hér á landi og á þó nokkur dýr nú, ætlar sér um næstu áramót að hætta minkaeldinu og farga dýrum sínum. Þetta er Kristinn Briem á Sauðárkróki. Hann telur, að ekki sé nema kostnaður af minkaeldinu. Og vera má líka, af því að þetta er góður og gegn maður, að það ýti undir hann með að hætta þessu dýraeldi, að hann hafi haft spurnir af, hvílíkur skemmdarvargur villiminkurinn er orðinn gagnvart landsnytjum manna.

Ég skal nú drepa á, hvaða nytjar hafa um skeið verið af minkaeldi hér á landi. Árið 1943 voru seld 13–14 þús. skinn. árið 1944 rúml. 1700 skinn, árið 1945 rúml. 9 þús. skinn, árið 1946 rúml. 4½ þús. skinn og 1947, sem af er árinu, ætla ég, að hafi verið flutt út og seld um 400 skinn. Meðalverð á þessum skinnum var nokkur ár innan við 100 kr., árið 1945 rúml. 120 kr., árið 1946 rúml. 130 kr. og á þessu ári hefur meðalverðið verið um 80 kr. á skinnum þeim, sem búið er að selja. Og úr því að dýrin, sem í búrum eru, eru ekki nema um 5 þús., tel ég ekkert áhorfsmál, að Alþ. grípi nú í taumana og banni minkaeldi.

Ég get búizt við, að hv. þdm. segi: Fyrst búið er nú að fá vitneskju um svo mikla skaðsemi þessara dýra og þau hafa náð svona mikilli útbreiðslu og þið teljið einsýnt, að útbreiðsla þeirra haldi áfram, nema gerðar séu sérstakar ráðstafanir, hvers vegna gerið þið þá ekki till. um enn frekari ráðstafanir en hér er farið fram á til útrýmingar villiminkum? Ég get viðurkennt, að svona er eðlilegt, að spurt sé. Við hefðum sennilega átt að bera fram frv. um víðtækari og skarpari ráðstafanir til þess að útrýma villiminkum en við gerum í þessu frv. En við hv. þm. Borgf. (PO) höfum það okkur til afsökunar, að í hin skiptin, sem þessu máli var hreyft hér, virtist okkur Alþ. taka þessu máli heldur fálega. Nú vil ég hins vegar vona, að menn sjái, hvert stefnir. Og ég vona, að hv. þm. sjái, að þeir taka á sig meiri ábyrgð, ef þeir standa gegn því, að þetta frv. verði gert að l., heldur en þeir eru færir um að bera. Og þess vegna vil ég beina því til hv. landbn., — því að ég geri ráð fyrir, að þetta mál fari til þeirrar hv. n., — að hún bæti um það, sem málinu er áfátt af hendi okkar flm., þannig að þeir, sem í þeirri n. eru, geri till. um enn meiri og ýtarlegri ráðstafanir til þess að hafizt verði handa um útrýmingu villiminka. Fyrsta skilyrðið til þess, að þetta megi heppnast, er að banna minkaeldið. Næsta skrefið er svo að gera ýtarlegar og skarpar ráðstafanir til að útrýma þessum vargi.

Ég hef ekki næga kunnleika á því, hvaða tjóni það kann að valda þeim, sem hafa þessi dýr enn þá, ef þeim verður bannað að hafa þau framvegis, en ég tel hyggilegt að draga úr því tjóni, hlaupa þar undir bagga og láta þá fá bætur, en gera engu að síður þessar ráðstafanir. Þó að svo yrði séð fyrir, að hagsmunir þessara manna yrðu ekki skertir, þá yrðu þau útgjöld hégóminn einber hjá því, ef minkaeldið á að halda áfram og villiminkurinn breiðast út og tjón af hans völdum aukast í landsnytjum landsmanna.

Því miður hefur illa tekizt til í byrjun, að þetta dýr skyldi flytjast inn í landið og breiðast þannig út. Um það þýðir nú ekki að sakast. En þá er að reyna að bæta úr í þessu efni og gera þær ráðstafanir, sem helzt mættu verða til hjálpar, og það svo ýtarlega sem mönnum getur í hug komið, en þá verður eigi hjá því komizt að banna fyrst minkaeldið og gera síðan sem öflugastar ráðstafanir til að uppræta villiminkinn.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta mál fleiri orðum að svo komnu máli. Ég geri það að till. minnt, að málinu verði vísað til landbn. að þessar umr. lokinni.