24.02.1948
Neðri deild: 63. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í C-deild Alþingistíðinda. (2472)
93. mál, útrýming villiminka
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég skal ekki lengja þessar umr. mjög. En ég verð að svara hv. 1. þm. Árn. (JörB). 1. flm., nokkrum orðum.
Ég bjóst aldrei við því, að við í landbn. fengjum sérstakt þakklæti fyrir afgreiðslu þessa máls. En þó vil ég segja, að ég undrast mjög afstöðu hv. flm. til þessa máls, því að við í landbn. höfum ekkert fengið frá hv. flm. þess annað en skæting og ónot fyrir starf okkar í n. að frv. og ekki viðurkenningu fyrir neitt, sem við í því efni höfum gert. En aðrir hv. þm. sem athuga brtt. okkar sjá þó, að í þeim er mjög hert á öllum þeim ákvæðum frv., sem snerta útrýmingu villiminkanna. En það er eins og það eitt vaki fyrir hv. flm. að drepa niður saklausu minkana í búrunum, en gera þó ekki nógu mikið til að útrýma villtu minkunum, sem ganga lausum hala. Mér finnst að hér sé meginmunur á skoðunum okkar í þessu máli. Því að enginn skoðanamunur er um það, að villiminkurinn sé hættulegur fyrir sumar landsnytjar okkar, sem eru allmikils virði, þó að ég telji það dálítið hlægilegt, þegar hv. 1. þm. Árn. segir, að þessir minkar fari 100 mílur, eða 750 til 800 km. á einum sólarhring, m. ö. o. geti farið héðan frá Rvík austur að Kirkjubæjarklaustri og heim til Rvíkur aftur á einum sólarhring. (JörB: Ég átti við enskar mílur.) Hv. þm. nefndi mílur, og í venjulegu máli er átt við danskar mílur, þegar mílur eru nefndar. En þegar farið er að nota svona rök í málinu, sem ekki eru nær því rétt, þó að deilt sé í með þremur, þá virðist mér skorta sterk rök í málinu, því að þetta er smákvikindi og auðvelt að nota hunda, og þá ekkert sérstaklega fljóta, til þess að taka það úti. Við skulum tala um þetta mál með rökum, en ekki á þennan hátt. — Nákvæmlega er sama að segja um þá röksemd, að villiminkar séu hættulegir sauðfé. Það er a. m. k. hvergi talað um, að þeir séu hættulegir sauðfé. Ég skal ekki segja, hvort það gæti kannske komið fyrir, að minkur gæti banað einu og einu lambi, alveg eins og mývargur gerir það einstöku sinnum, sem getur hlaðizt svo á lítil lömb, að þau drepast. En að sauðfjárrækt okkar sé í nokkurri hættu af völdum minka, þótt villtir séu, það er fjarri sanni. Og í norskum og sænskum blöðum, sem ég hef lesið, er tekið fram, að ekki sé um neina slíka hættu að ræða. Þess vegna vildi ég vita, hvaðan hv. 1. þm. Árn. hefur þær upplýsingar, að það geti verið hætta á því, að minkur leggist á lömb til tjóns. Ég held, að ég muni eftir því, að fyrir nokkrum árum var talið, að álft væri stórhættuleg fyrir sauðfé. Við höfum nú í eitt þúsund ár búið í sambýli við álftina. Og þó að hún hafi barið eitt eða tvö lömb til dauðs, þá er það ekki sönnun þess, að álftin sé hættuleg fyrir sauðfjárbúskap landsmanna. Nei, það má telja villiminkunum nógu margt til foráttu, þó að við segjum ekki, að þeir séu hættulegir sauðfé, því að það eru þeir ekki, né heldur, að börn okkar séu í hættu fyrir þeim.
Ég hef orðið fyrir nokkrum vonbrigðum, að landbn. skyldi ekki njóta þeirrar viðurkenningar, að hún hefði endurbætt frv. að því er snertir ákvæðin um útrýmingu villiminka. En í þess stað var meira að segja hv. 1. flm. með hálfgerð ónot út af því að leggja þær skyldur á hreppsnefndir, sem þar er um að ræða. En landbn. virtist það alveg sjálfsögð leið, að þær n., sem stjórna sveitarmálum, hefðu þessi mál með höndum heima fyrir hjá sér, eins og vera ber. Og a. m. k. vildi ég fá einhverjar till. frá hv. flm. um það, hvernig þeir vilji, að þessum málum verði fyrir komið. Það virðist ekkert hafa verið athugað í sambandi við samningu frv. þessa, hver eigi að vinna að þessu. Og einmitt vegna þess virðist mér, að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir því, eftir hvaða skipulagi eigi að útrýma villiminkunum, ef þeir ætla að festa verðlaunin fyrir það eins og gert er ráð fyrir í frv. Og hv. 1. þm. Árn. varpaði fram, sem ég tók sem grín, að rétt væri, að loðdýraeigendur borguðu kostnaðinn við útrýminguna. En gæti þá ekki verið eins rétt að láta þau héruð, sem komu af stað þessum faraldri, sem minkaplágan er, borga útrýminguna? Ég held, að það sé nokkurn veginn víst, að nágrenni Rvíkur og Árnessýsla séu einu staðirnir, þar sem sanna megi, að minkar hafi sloppið út úr búrum. Ég veit ekki, hvort hv. 1. þm. Árn. vildi, að þessi héruð væru látin borga kostnaðinn af útrýmingunni. Því að þeir, sem hafa minkabú, eru ekki sekir um þetta vegna þess, að þeir hafi þessi bú. Þeir hafa flutt inn þessi dýr og ræktað þau með fullri heimild og hafa stundað þessa ræktun á réttan og sanngjarnan hátt. Og ég sé ekki, að þeir menn séu sekir vegna þess út af fyrir sig, að þeir rækta þessi dýr. Í Skagafirði. Eyjafirði og Þingeyjarsýslu hefur verið stunduð minkarækt, og það er ekki vitað, að þar hafi nokkur skaði orðið af völdum minkaplágunnar. Jafnvel þó að einn og einn minkur hafi sloppið út á þessum svæðum, þá hafa þeir ekki aukið kyn sitt eða þá drepizt á einhvern hátt. Og þetta verður að taka með í reikninginn, þegar við gerum það upp við okkur, hvort við bönnum allt minkaeldi í landinu eða ekki. Sem betur fer eru það undantekningar, að um stór mistök í þessum efnum hafi verið að ræða. Og frá þessum stöðum, þar sem þau hafa orðið, hafa minkar svo breiðzt út um Árnessýslu og Borgarfjörð. — og hv. þm. einn hvíslar því að mér, að þeir séu komnir vestur í Dali, og getur það verið rétt. En það breytir engu um það, að frá þessum hreiðrum, sem ég hef getið um, er þessi faraldur kominn.
Ég er ekki viss um, að það mundi verða eins hart um það og hv. 1. þm. Árn. taldi, að verða mundi að fá einhverja menn til að stunda minkaveiðar með allsómasamlegum verðlaunum. Við stingum þarna upp á 60 kr. fyrir hvert dýr, sem unnið er. En landbn. er að sjálfsögðu fús til breyt. á því. Því að n. er þeirrar skoðunar, að það beri að ganga svo vel frá ákvæðunum um útrýmingarstarfið í þessu efni eins og unnt er. Þó að veiddir væru eitt þúsund minkar á ári, þá væru þetta ekki nema 60 þús. kr., sem ríkissjóði bæri að borga fyrir það. Og þó að það yrði meira, gætu það ekki orðið nein stórkostleg útgjöld fyrir ríkissjóð, með þeim tölum. sem nú eru notaðar hjá okkur. N. er mjög til viðtals um alla slíka hluti.
Ég bjóst við, að hv. flm. frv. vildu ræða við okkur um ný ákvæði til skilgreiningar á ákvæðum frv. og um útrýmingu villiminka, og við viljum taka mjög til greina óskir þeirra í því efni. En mér virtist allur tónninn í ræðum hv. flm. vera á þann veg, að helzt ekkert væri talandi við okkur um málið og við hefðum ekkert gert nema til skemmda á frv. við afgreiðslu þess í n., og því þýddi ekkert að tala við okkur um málið. Þetta er frá mínu sjónarmiði mesti misskilningur, að taka slíka afstöðu í málinu.
Hv. þm. virtist hafa misskilið ummæli mín eða vilja misskilja þau um það, er ég talaði um, að það virtist svo, að það væri aðeins af hinu fyrst innflutta minkaafbrigði, sem minkar hefðu sloppið úr haldi hjá okkur, en að alls ekki hefði sloppið neitt af því síðar innflutta afbrigði. Og sagði hv. þm.l að eðli hinna síðar innfluttu dýra væri nákvæmlega hið sama og hinna fyrr innfluttu, ef þessi dýr slyppu úr haldi. Það er rétt, að eðli þeirra má gera ráð fyrir, að sé hið sama. En ég hélt því ekki heldur fram, að síðar innfluttu minkarnir væru meinlausara afbrigði, ef þeir slyppu út. En af því að búið er að útrýma úr haldi þeirri minkategund, sem fyrst var flutt inn, er auðveldara að átta sig á því að vita hvort sloppið hefur út af þeim síðar innfluttu dýrum. En varzlan er öruggari nú en fyrst var, svo að tekizt hefur að koma í veg fyrir, að síðar innfluttu minkarnir hafi sloppið úr haldi. Ég tel þetta mikið atriði, sem gerir það að verkum, að mér er ómögulegt að gera ráð fyrir að eyða öllum minkum úr búrum á landinu, meðan ekki er sannað, að á síðustu árum hafi minkar sloppið úr haldi. Oft er það líka, þegar farið er að þrautrækta einhverja dýrategund, að hún missir að einhverju leyti eðli sitt, sem hún upphaflega hafði. (JörB: Náttúran er náminu ríkari). Já, en uppeldið hefur mikið að segja líka.
Mér virðist nú að það sé ekki eins mikið, sem skilur landbn. og hv. flm. þessa frv. eins og hv. 1. þm. Árn. vill vera láta. Og þessi langa ræða, sem hann hélt nú, var mikið til eins og sú ræða, sem hann hélt um málið við 1. umr. Má líka vera, að ýmsir hafi verið farnir að gleyma henni. En það er tilgangslaust að vera með svona hrókaræður um skaðsemi minkanna. Það vita allir, hvert aðalatriðið er í þessu máli. Hér er í raun og veru ekki deilt um annað en það, hvaða leið sé heppilegust til þess að hrinda í framkvæmd bót í þessu efni. gera það, sem bezt er, en þess að útrýma þessu villta dýri og stemma stigu fyrir tjóni af því. Og ég álít sjálfsögðustu leið til þess vera að hefja öfluga útrýmingarstarfsemi á þessu villta dýri á allan mögulegan hátt — og ég hygg, að hæstv. landbrh. sé á sama máli — og auka öryggið um, að þau dýr sleppt ekki, sem eru í haldi. Þetta ætti að mínum dómi að geta orðið til þess, að hægt væri að hafa hemil á þessum villiminkum. Ég hef ekki trú á því, að þeim verði útrýmt. En það er sjálfsagt að gera það, sem hægt er, til þess að halda þeim í skefjum, svo að tjón verði sem minnst af.
Ég vildi því fyrir hönd landbn. óska eftir því, að hv. flm. og við gætum athugað þessi mál, t. d. á milli umr., og skal ekki standa á okkur að gera breyt. á frv., sem gætu horft til enn öruggari útrýmingarstarfsemi en nú eru ákvæði um í þessu frv.-uppkasti, sem hér liggur fyrir. Og ég gat ekki sannfærzt af ræðu hv. 1. flm. um. að ekki væri eðlilegt að leggja í þessu efni nokkrar skyldur á herðar hreppsnefnda, hverrar á sínum stað, sem flm. gerði grín að, svo sem að hreppsnefndir ættu að gefa skýrslur um dvalarstað minkanna. Ég álít að það sé alveg réttmætt ákvæði. Minkar hafast einmitt mest við á vissum stöðum, og hv. 1. þm. Árn. nefndi einmitt dæmi um það, þar sem eru hraun og svo ár og lækir. Vitanlega er rétt, að það eigi að leggja fram skýrslur um það, hvernig aðstaða sé, þar sem minkanna verður vart. Og ég er ekki í vafa um, að útrýming á villiminkum gæti verið sport, og það þarf ekki að gera grín að því. Margir eru þannig gerðir, að þeir hafa ánægju af slíku sem þessu. Og ég veit um menn í sveit hér á landi, sem búnir eru að æfa hunda til að taka minka, að þeir hafa gaman af þessu starfi, eins og öðrum veiðum, þegar þeir komast í kast við slíka hluti. Og einmitt með því að verðlauna þetta er ýtt undir það, að þeir fái nokkuð fyrir sitt starf, sem að þessu vilja starfa, og því meir verður undir þetta ýtt, sem verðlaunin eru hærri fyrir villiminkadráp. Það hefur dálítið á því borið, að menn hafi ekki framvísað minkahræjum, sem stafað hefur af því, að menn hafa fengið meira fyrir skinnin af minkunum en svo, að þeim þætti borga sig að framvísa hræjum þeirra, miðað við 50 kr. sem verðlaun fyrir hvern mink. En þeir verða víst að skila hræinu öllu til umboðsmanns ráðuneytisins til þess að fá verðlaunin.
Ég vil ekki halda uppi löngum kappræðum um málið á þessu stigi, en vildi vænta þess, að það gæti orðið einhvers konar samkomulag mtlli landbn. og hv. flm. um þetta mál, a. m. k. um þá hluta frv., sem við erum sammála um. Og ég hefði vænzt þeirrar viðurkenningar, að þær brtt., sem við höfum gert á þeim kafla frv., séu til bóta og stefni að því marki, sem hv. flm. vilja stefna að í þessu máli hvað það atriði snertir.