26.02.1948
Neðri deild: 64. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í C-deild Alþingistíðinda. (2476)

93. mál, útrýming villiminka

Jónas Jónsson:

Ég hygg að það sé rétt, sem kom fram í ræðu hv. þm. A-Húnv. (JPálm), að tilkoma minkanna hér á landi og tilkoma karakúlpestarinnar sé sama eðlis. Yfirleitt var bændastéttin og löggjöf hennar mjög gálaus í þessum efnum, og það hallaðist hvorki á um innflutning á minkum. sauðfé né nautpeningi. Alls staðar kom fram hirðuleysi og alls staðar er afleiðingin geigvænleg. Nú för svo með fjárpestina, að þegar búið var að reyna að fá lærdómsmenn landsins til að finna ráð til að útrýma henni og þeir höfðu ekkert fundið, þá var málinu vísað til bændastéttarinnar og Alþ., og það hefur verið tekið það ráð að hindra algerða eyðingu sveitanna með því að hafa sauðfjárskipti, sem náttúrlega er dýr aðgerð, og ríkissjóður hefur þar lagt fram mikið til. En það hefur engin leið fundizt önnur, enn sem komið er, og það er óhætt að segja, að í mörgum héruðum landsins hefur afkomu bænda verið bjargað með þessu ráði og nálega öll bændastéttin hefur hnigið að því ráði nú að óska eftir, að útrýmt verði þeim stofni, sem er veikur, í því skyni að byrja aftur nýjan kapítula. Baráttan við karakúlpestina sýnir, hvernig muni fara í þessum efnum. Minkarnir voru fluttir inn og farið með þá af miklu gáleysi, en það er ákaflega mikill vandi að fara með þá í okkar landi, þannig að mér þykir furðu sæta, að hv. landbn. þessarar d. skuli hafa tekið þá afstöðu, sem hún hefur gert, og ég spái því, að það muni ekki líða mörg ár, þangað til sú virðulega n. verður komin að þeirri niðurstöðu. að hún verði að hallast að till. þeirra hv. 1. þm. Árn. og hv. þm. Borgf.

Sannleikurinn er sá, að sá samanburður, sem hv. þm. A-Húnv. gerði á refnum og minknum, er ekki réttur. Það er vitað, að tófan gerir skaða og hefur lengi gert, en það hefur verið hægt að halda því tjóni niðri. Minkurinn lifir jöfnum höndum í vatni og sjó og drepur ekki aðeins landdýr, heldur líka dýr í ám og stöðuvötnum. Það er því ómögulegt að sjá annað en minkurinn muni eyðileggja allt æðarvarp í landinu, lax- og silungsár og drepa meginið af öllum andfugli í landinu. Nú vil ég taka það fram, að þar sem minkaræktin er, sem er aðallega í kringum Rvík. þá er það eiginlega ekki búskapur. Þetta er ekki ósvipað eins og var í Danmörku, þegar borgarbúar fóru að hafa svínarækt. Það eru tvö stór minkabú á Suðurlandi, sem búin eru að gera ótrúlegan skaða. Aftur á móti mun svo sem ekkert minkabú vera á Norðurlandi. Ef farið væri að berjast við minkana, þá eru víðast í þessum landshlutum svo mikil vötn, að erfitt mundi að útrýma honum, og mun hann því verða til stórtjóns. Eftir lauslegri athugun, sem ég hef gert, þá er á Norðurlandi eitt bú í Þingeyjarsýslu, ekkert í Eyjafirði, eitt bú á Sauðárkróki og eitt í Hegranesi. Það eru þá tveir bændur og einn kaupstaðarmaður á Norðurlandi, sem hafa þessi dýr. Af þessu sést, hvað það er mikil fásinna að offra hagsmunum allrar bændastéttarinnar fyrir þessi dýr. Ég álít þess vegna, að það sé alveg rétt stefna, að ríkið kaupi þá minka, sem til eru og það verði ekki höfð minkarækt, fyrst nú á að útrýma þeim minkum, sem fyrir eru. En það er vitað, að hann eyðileggur mikið bæði varplönd og eins veiði í vötnum, en það eru mörg hundruð manns kringum landið, sem hafa hagnað af þessari veiði. Enda verður hörmulegt að vita til þess, þegar að því kemur. að hvert varpland er eyðilagt, eins og hér hefur verið lýst.

Um leið og minkurinn kemst til Norðurlands, þá mun hann verða óvinur þeirra þar, og um leið og hann kæmist í Mývatnssveit, þá er búið að drepa allt fuglalíf þar í sveit, eins og t. d. í Þingvallasveit. Og er það stórkostlegt skemmdarverk hér á landi. Þar sem minkurinn er kominn, geta menn ekki haft hænur án þess að eiga von á, að hann geri þar stórkostlegt tjón. Menn geta hugsað sér það ástand, sem yrði, þegar búið er að eyðileggja allt æðarvarp og alla lax- og silungsveiði í landinu.