02.03.1948
Neðri deild: 67. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í C-deild Alþingistíðinda. (2482)
93. mál, útrýming villiminka
Jörundur Brynjólfsson [frh.]:
Herra forseti. Ég var búinn að víkja að nokkrum atriðum, sem fram höfðu komið við umr. áður, og býst nú ekki við að lengja mál mitt mjög úr þessu. En ég hefði viljað, að af minni hálfu hefðu komið fram flest þau atriði, sem máli skipta í sambandi við meðferð málsins, einmitt sakir þess, að svo óheppilega tókst til af hálfu þessarar hv. d., að nær ekkert var gert að gagni í málinu.
Ég verð nú að drepa á eitt atriði, vegna þess að hv. landbn. leggur nokkuð mikið upp úr því í brtt. sínum nefnilega, að loðdýraræktarráðunauturinn eigi að standa fyrir útrýmingunni á villiminkunum. Ég geri yfir höfuð heldur litið úr þessu, sem fer ekki eftir því, hvort það er þessi maður, sem nú er í þessu starfi, eða einhver annar. Ég skoða þetta þannig, að það sé í raun og veru ekki á neins eins manns færi að ætla sér að vinna þetta verk, því að það mun áreiðanlega þurfa mjög marga menn til þess. Og þar, sem það fer fram, þá er alveg gefið, að menn verða að hafa bæði þekkingu og kunnugleika til þess að framkvæma verkið og sýna mikinn dugnað, ef þetta á að heppnast, sem vissulega veitir ekki af. Ég ætla að skjóta því hér inn í, sem er aukaatriði, en þó upplýsingar, að eftir að þessar umr. höfðu staðið hér um þetta mál, hitti ég bónda austan úr Selvogi. Þar var þó nokkurt æðarvarp í hólmum í Hífðarvatni og í sandgirðingunni í Nesi, eftir að hún var alveg friðuð. Og þegar engar skepnur fóru þar um í nokkur ár, svo sem sauðfé, settist æðarfuglinn þarna að og fór að hreiðra um sig í allstórum stil. Í einum hólmanum voru hreiðrin eitthvað yfir 100. Eftir fyrsta árið, sem vart varð við villiminkinn, þá var æðarvarpið þarna gersamlega upprætt, bæði úr hólmunum í Hlíðarvatni og úr sandgirðingunni í Nesi. Svo var ekki nóg með það, að minkurinn upprætti varpið sjálft, heldur líka fuglinn, sem heldur sig við strendur landsins.
Ég ætla að vitna hér ofurlítið í bréf, sem ég gerði reyndar fyrr við umr. Það er komið frá Loðdýraræktarfélaginu og mun vera skrifað þegar hv. þm. Borgf. flutti sitt frv. Það eru fyrst í bréfinu rakin nokkur atriði um minkinn og það, sem fram hefur komið af hálfu þeirra manna, sem hafa ótrú á að hafa minkinn hér í búrum og gerðu að umræðuefni, hve skaðlegur hann væri. Það er verið að svara því í þessu bréfi, og er það undir fjórða lið í bréfinu, sem ég ætla að minnast á. Ætla ég, með leyfi hæstv. forseta, að lesa orðrétt upp úr þessu bréfi:
„4. Að til eyðingar horfi á lax- og silungsstofni í ám og vötnum af völdum villiminka, teljum vér vafasama getgátu, enda mun það fara mjög í bága við erlenda reynslu, t. d. í heimkynnum villiminkanna í Alaska og Canada, en einmitt þar er meiri lax- og silungsveiði en víðast hvar annars staðar í heiminum.
Það mun og talið, að veiðin í Elliðavatni, og jafnvel í Elliðaánum, hafi aukizt hin síðustu árin. Telur bóndinn á Vatnsenda ekki ósennilegt, að það geti haft áhrif á veiðina, að villiminkarnir hafa mjög fælt burt endurnar, sem áður var mikið af á vatninu og við árnar. En það er sannað mál, að endur eru og hinn versti vargur í klaki og ungviði af laxi og silungi, og getur ein önd á stuttum tíma eytt þúsundum hrogna og seiða, en minkurinn tekur ekki lax eða silung, nema nokkuð vaxna....“
Það er nú nokkuð meira um þetta atriði í bréfinu, en ég ætla ekki að lesa meira upp af því. Þetta skrifaði loðdýraræktarráðunauturinn undir á sínum tíma. — Hvernig er svo reynslan í þessum efnum? Nú leggja menn hið mesta kapp á hér við árnar að veiða hvern einasta villimink, vegna þess, hve skaðlegur hann er veiði í ánum, og það er ekki undarlegt. Veiðivötn okkar, ekki sízt þar, er kaldavermsl er, eru þannig, að þau haldast nokkuð auð einmitt þar, sem silungurinn klekur. Og þá heldur villiminkurinn sig vetrarlangt þar og liggur í fiskistofninum.
Svo er í þessu bréfi, sem ég las upp úr. vitnað til fiskmergðarinnar í Ameríku, og mætti skilja orðalag bréfsins svo, að það væri af völdum minksins. Það vantar ekki vísindamennskuna í þessu. Ég hef áður gert að umtalsefni, á hverju minkar lifa. Og fiskigengd er mikil á þessum löndum Ameríku, þar sem villiminkurinn er og á fiskinum lifir hann auðvitað mikið. En það langt var komið útrýmingu þessa dýrs þar vestra, vegna þess, hvernig aðstaðan er þar til þess að útrýma honum, að ég hygg, að það, að honum hefur ekki verið útrýmt þar alveg, sé af því, að menn hafi ekki viljað uppræta hann þar alveg, af því að þeir vilji, að hann sé aðeins til í þessu landi, af því að þarna átti þessi dýrategund sitt upprunalega heimkynni. En ég hygg, að þeir hafi ekki hlíft minknum við algerri útrýmingu þarna af því, að þeir álitu neina tekjuvon af að veiða þetta dýr, því að það er fjarri lagi.
Ég hef áður gert að umtalsefni, að þeirri andategund, sem mestan usla gerir fiskistofninum í ám okkar, nær minkurinn sízt. af því að hún er stygg og aðgætin.
Það er ekki margt hér í þessu bréfi, sem máli skiptir. Þó ætla ég að lesa nokkru meira en ég hef þegar gert úr þessu bréfi, af því að þetta er komið frá mönnum, sem telja það eitthvert sáluhjálparatriði fyrir landið, að þessum dýrum verði haldið áfram í búrum hér. Í bréfinu stendur:
„Það skal viðurkennt, að bæði hér á landi og erlendis hafa villiminkar reynzt hinir mestu vágestir þar, sem þeir komast í hænsnahús. En hér hefur reynslan sýnt, að þeir ráðast ekki á hænsni, sem eru frjáls úti á viðavangi, og þeir hafa farið aðeins í þau hænsnahús, sem hafa verið sundurgrafin eða undirgrafin af rottum. því að þeir leita eftir rottunum niður í holur þeirra og taka þær þar. Hér á landi, eins og erlendis, má verja hænsnahús fyrir villiminkum með því að hafa grunnmúruð hænsnahús, sem rottur komast ekki í, og loka hænsnin inni áður en dimmir.“
Þá er aðeins vikið hér að æðarvörpunum, með leyfi hæstv. forseta: .
„Því skal ekki heldur neitað, að búast má við, að villiminkar mundu gera mikinn usla, ef þeir kæmust í æðarvarp, en sem betur fer, hagar víðast svo til um varplöndin, að minkar komast þangað ekki og verður þó að gæta sérstakrar varúðar í sambandi við æðarvörpin, að minkar spilli þeim ekki. “
Það var mikið, að þeir komu þó auga á það. Það er eftir þessara manna áliti bót í máli, að varplöndin á Íslandi eru þannig sett, að lítil hætta er á því, að minkar komist þangað(!). Hver er reynslan? Þar sem minkarnir eru komnir, þar sem vörpin eru á landi, og þótt í eyjum sé og það alllangt frá landi, þar eru æðarvörpin gersamlega upprætt. Út í eyjar getur minkurinn komizt, því að hann er frækið sunddýr. Horfurnar eru því þannig nú, að ef ekki verður gerð gangskör að því að útrýma þessu dýri. þá mun það sennilega uppræta, að kalla, allt æðarvarp á Íslandi. Og eftir því sem villiminkurinn breiðist út, þá mun reynslan verða þessi.
Um alifuglana þarf ekki að fjölyrða, sem minkurinn kemst í. Það liggur í augum uppi, að það verður lítið úr alifuglarækt, ef við þurfum að byrgja fuglana inni í húsum vegna minksins. Þá held ég, að litlar tekjur verði af alifuglaræktinni. En það er barnaskapur hjá þessum mönnum, sem undir bréfið rita, að minkurinn geri ekki usla, þegar hann kemst í hænsn, sem eru frjáls úti á víðavangi. Þeir ættu að sjá valinn, þar sem villiminkur hefur komizt í hænsnahóp úti. Hjá einum bónda komst minkur í hænsn, og hundrað lágu í valnum eftir dálítinn tíma.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta frekar, en hef viljað láta þetta koma fram, svo að hv. þm. geti ekki afsakað sig með því, að þeir hafi ekki vitað hvílíkt ógagn þessi skepna hefur þegar gert. Ég hef áður gert að umtalsefni brtt. n. og þá kvöð, sem þar er lögð á hreppsnefndir í hverjum hreppi. Ég er í sjálfu sér ekki á móti því, en því aðeins get ég fallizt á þetta, að menn þurfi ekki að eiga von á að fá þennan stefnuvarg úr búrunum yfir sig aftur og aftur, og mér kemur það næsta einkennilega fyrir sjónir, að nokkrir þm. skuli vilja vera svo bónþægir við þá fáu menn, — hér í nágrenni Rvíkur aðallega, — sem hafa hagnað af ræktun þessara dýra, að þeir með því að leyfa það stofni í voða atvinnuvegum, sem bændur hafa um langan tíma bæði haft yndi og arð af.
Ég er þess fullviss, að þessar kvaðir, sem hér á að leggja á hreppsnefndir, koma ekki að fullu gagni, þ. e. a. s. hreppsnefndir muni ekki taka tillit til þessara kvaða, ef leyfa á áfram eldi þessara skæðu kvikinda.
Hv. frsm. n. kvartaði um það, að við flm. mætum ekki að verðleikum till. hv. n. í þessu máli. Ég skal viðurkenna það, að ég hef ekki látið í ljós neitt þakklæti til n., en hins vegar vanþakka ég ekki og met till. n. um útrýmingu villiminka.
Ég hef víst áður lýst því, hversu mér sárnar að sjá blómleg varplönd og ágætar silungsár lagðar í auðn af hinum skaðvænlegu dýrum, minkunum, og þar með gerðan að engu þann yndisauka og tekjulind, sem þetta hefur verið svo fjöldamörgum bændum.
Ég er fús til samvinnu um þetta mál, en vil ekki taka þátt í neinum þeim aðgerðum, sem ég veit, að reynast árangurslitlar og missa marks. Ef hv. landbn. hefði viljað gera sitt ýtrasta til að fá þetta mál vel úr garði gert, þá hygg ég, að hún hefði aldrei komið með þessar till. Ég vildi skjóta því til hv. n. Ég vil samt ekki fara fram á, að n. taki till. aftur, en vildi gjarnan, að atkvæði yrðu ekki látin skera úr við þessa umr. — Ég sé, að hv. þm. S-Þ. ber hér fram till. á þskj. 112. um að banna eldi minka á Norður- og Austurlandi. Ég skil það, að hv. þm. vilji reisa rönd við þessum faraldri, en býst þó við, að ekki þurfi að líða á löngu, þar til minkurinn kemst þangað líka, ef ekki er gripið til skjótra ráðstafana, og er þá allt landið í hættu. Ég tel því að till. hans sé ekki ráðstöfun til endalykta í málinu.
Ég mun svo ekki fjölyrða þetta frekar að sinni, en vænti þess, að frv. nái fram að ganga.