02.03.1948
Neðri deild: 67. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (2487)
93. mál, útrýming villiminka
Pétur Ottesen:
Ég skal ekki ræða hér um fornar syndir, en reyna heldur að skakka leikinn. Ég skal ekki fara langt yfir skammt, en minna á ein rök. Því hefir verið haldið fram, að öll þau búr, sem unnin hafa verið, hafi verið rannsökuð. Ég var vanbúinn að mæta þessum rökum, er þau voru fram borin. Ég hef síðan átt tal við oddvita, sem tekið hefur á móti skottum og greitt verðlaun fyrir dráp dýranna. Hann segir, að hann hafi engum sent skottin, en hafi brennt þau jafnóðum og þau hefðu borizt. Hann tók aðeins á móti skottunum sem sönnun þess, að dýrin hefðu verið drepin. Svo tók hann kvittanir fyrir greiðslu verðlaunanna og sendi í stjórnarráðið og fékk þau endurgreidd. Loðdýraræktarráðunautur hefur ekki fengið neitt af þeim skottum. Þessi oddviti hefur greitt þúsund krónur fyrir minkadráp, en skottin brenndi hann. Hann sagði að sér hefði ekki dottið annað í hug en að brenna þau strax, þar sem fýla hefði verið af þeim, því að þau hefðu oftsinnis verið orðin gömul, er sér hefðu borizt þau (SigfS: Það hefði nú mátt salta þau). Það lágu engin fyrirmæli fyrir um að salta skottin. Það kann nú að vera, að loðdýraræktarráðunautnum hafi eitthvað borizt af skottum og skinnum. En oft eru minkar unnir á þeim tíma árs, sem skinnin eru verðmæt söluvara og hafa menn þá engu síður getað haft gott af skinnunum en skottunum. Það hefur nú verið grundvöllur þeirra fullyrðinga, að engir minkar sleppi lengur úr búrum, að ekki hafi verið unnið neitt villt dýr, sem sé nema af þeirri tegund, sem fyrst var flutt inn til landsins. En það er ógerningur að búa svo um dýr í girðingu, að ekki geti verið hætta á því, að dýr sleppi. Náttúruhamfarir geta á svipstundu brotið niður minkagirðingu. Nei, ég vara hv. þdm. við að leggja of mikið upp úr þessum fullyrðingum, því að þær geta ekki staðizt.
Hv. frsm. landbn. þótti ekki rétt sagt frá búsetu nokkurra manna, sem sent var til og leitað álits frá. Það kann að vera, að eitthvað hafi verið þar rangt frá minni hálfu og finnst mér ekki nema gott að slíkt sé leiðrétt. Þó eru flestir þeirra búsettir í Rvík og við Rvík og fást við loðdýrarækt, og eru sumir þeirra í stjórn Loðdýraræktarfélagsins. Búfjártilraunaráðið er með þessu frv., og hafa 4 af 5, sem þar eiga sæti, undirskrifað bréf þeirra, en fimmti maðurinn neitaði að skrifa undir bréfið. Meiri hl. Búnaðarfélagsins mælti með samþykkt frv. Mergurinn málsins er sá, að minkaeldið hefur reynzt rýr atvinnuvegur og hefur leitt af sér stórskaða fyrir landsmenn. Þess vegna er leiðin sú, að Alþ. á að gera rækilega herferð á hendur minkunum, — gera það sem í þess valdi er til þess að draga úr þeirri hættu, sem stafar af villiminkunum. En á meðan minkar eru í þúsundavís í búrum, er ekki hægt að vekja þann áhuga og þann starfsvilja, sem með þarf.
Ég hef nýlega rætt við oddvitann í Hvalfjarðarhreppi í Botnsdal um þetta mál. Hann sagði, að í sínu héraði hefði verið töluvert veitt af minkum, og fyndist sér vera góður árangur af þeirri viðleitni. Minkar höfðu víða gert þar usla í hænsnabúum bænda. Sums staðar var rækilega búið um hænsnin, og var mönnum ráðgáta, hvernig minkur gat sloppið inn til hænsnanna. Þetta sýnir glöggt, hve erfitt er að halda minkum úti, og má geta nærri, hvort ekki sé erfitt að halda þeim inni í búrunum. Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja ræðu hv. frsm. Það er vonlaust að útrýma villiminkunum nema skera fyrir rætur þessarar minkaeldisstarfsemi. Það er því aðeins unnt, að minkaeldi sé bannað.
Í sambandi við þær brtt., sem fram hafa komið, þá eru allir sammála um það, að setja beri sem sterkastar reglur um varnir, svo að minkar sleppi ekki úr haldi. Sjálfsagt er að athuga nákvæmlega þær till., sem fram hafa komið á milli 2. og 3. umr. Þeir, sem leggja meir upp úr brtt. landbn. en frv. sjálfu, slá engu úr hendi sér, þó að þeir samþ. 1. gr. frv., því að það er hægt að koma brtt. að við 3. umr. málsins hér í d.
Með tilliti til mikilvægis þessa máls vona ég, að skorið verði fyrir rætur meinsemdarinnar og þessum dýrum verði eytt úr náttúrunni, sem nú ganga laus.