19.12.1947
Efri deild: 42. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (249)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. — Þetta mál var svo mikið rætt hér í d í gærkvöld í útvarpsumræðunum, og auk þess hafa deildarmenn fylgzt með umræðum í Nd., áður en það var lagt hér formlega fyrir, að ég þarf ekki að setja hér upp langa ræðu um málið að sinni.

Fjhn. hefur haldið tvo fundi um málið. Fyrri fundinn hélt hún í gær, áður en frv. var formlega til hennar vísað, í tilefni af því, að nefnd frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hafði óskað viðtals við hana út af frv., og eftir að frv. hafði verið vísað til n. í gærkvöld, þá kom hún saman á fund og tók málið fyrir. Þá varð það að samkomulagi, eftir að n. hafði klofnað um málið, þannig að einn nm. taldi sig andvígan, en hinir vildu styðja að framgangi málsins, að meiri hl. hennar lagði til, að frv. yrði samþ. óbreytt hér við þessa umr., en ákvað hins vegar að taka málið til nýrrar athugunar að þessari umræðu lokinni, og taka þá afstöðu til þeirra brtt., sem fyrir kunna að liggja nú við 2. umr., og eins ákvarða, hvort hann þá við 3. umr. bæri fram brtt. N. leit svo á, og var eiginlega alveg sammála um, að þetta væru hentug vinnubrögð og mundi spara tíma að haga þessu svo. En það ríður mjög á, að hver sem niðurstaða þessa máls verður og annarra þeirra mála, sem afgreiða þarf fyrir jól,að þeim sé hraðað svo, að þeim megi ljúka á morgun. Ég heyri t.d. sagt, að það verði póstferð norður á morgun, sú síðasta fyrir jól, og Norðlendingar, sem sæti eiga á Alþingi, hafa engin ráð með að komast heim fyrir jól, ef sú ferð er ekki notuð.

Síðan þetta skeði, hafa komið fram víðtækar brtt. við frv., sem n. hefur ekki tekið til athugunar og ekki gefizt kostur á því, því að þessar brtt. komu í dag. Auk þess er vitað, að hv. minni hl. n. mun bera fram víðtækar brtt., sem einnig þurfa athugunar við í n. Ég get því búizt við, að það kunni að reynast hentug vinnubrögð, þar sem svo er ástatt, að umr. um málið verði frestað, þegar hv. tillögumenn, sem borið hafa fram brtt., hafa gert grein fyrir þeim, og n. gæfist þá nokkur tími til að ræða þær og önnur atriði viðvíkjandi þessu máli og taka afstöðu til þeirra. Þó geri ég þetta ekki að beinni tillögu að sinni, en ég hef þessa aðferð og vinnubrögð fyllilega í huga, þó að það geti verið, að ég hyrfi frá því.

Um þessa niðurstöðu meiri hl. n., að vilja samþykkja frv. í meginatriðum, þarf ég ekki að vera fjölorður. Þau rök, sem fyrir því verða færð, komu fram í útvarpsumræðunum í gærkvöld, og hef ég þar engu við að bæta.

Það er auðvitað mál, að frv. eins og þetta fær mótstöðu úr ýmsum áttum, því að fólkið er nú einu sinni svo, að þótt allir sjái, að þjóðin þarf að snúa til baka á þeirri braut, sem hún er nú á, ef hér á ekki að verða algert fjármálalegt öngþveiti, sem enginn veit, hvar endar, þá eru margir þannig, að þeir vilja láta gera það á kostnað einhverra annarra en sjálfra sín. Þannig kom það fram í gærkvöld, og það hefur líka komið bréf til Alþingis, sem sýnir, að verkalýður landsins telur það skerðingu á sínum réttindum að festa vísitöluna í 300 stigum, þótt það sé ekkert stórt stökk til baka, og það er látið skína í, að það muni kosta ófrið.

Þannig er það sem stendur. Það vilja allir láta lækka dýrtíðina, en fáir vilja færa fórnir til þess, heldur ætla öðrum að gera það. En málið verður ekki leyst á þann hátt, og vel gæti ég álitið, að sanngjarnasta og bezta lausnin yrði sú, þó að það sé erfitt fyrir þingið, að allir yrðu óánægðir. Þá mundi sennilega verða stillt svo í hóf, að sanngjarnt mætti telja. Ég skal ekki fara lengra út í þetta að sinni, þar sem ég býst við, að aðalumræða málsins verði tæplega nú að sinni, enda hef ég ekki heyrt þær ástæður, sem liggja til brtt. þeirra, sem komnar eru eða eru væntanlegar.