09.03.1948
Neðri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í C-deild Alþingistíðinda. (2492)
93. mál, útrýming villiminka
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Ég hef hér leyft mér ásamt hv. þm. Borgf. (PO) að bera fram brtt. við frv. eins og frá því var gengið við 2. umr.
Ég tel ekki, að ástæða sé til þess að fara mörgum orðum um málið. Það munu hafa komið fram flest atriðin við 2. umr. þess, sem máli skipta. Ég tel, að afgreiðsla þessa máls, með frv. eins og það er nú, sé næsta ófullkomin. Frá þeirri framkvæmd, sem nú er á þessu máli, er eiginlega ekkert nýtt í þessu frv. nema skylda, sem lögð er með þessu móti á hreppsn. Hvar sem minka verður vart, eiga þær að vera skyldar til þess að smala saman mönnum til að útrýma þeim, og gert er ráð fyrir 10 kr. hækkun á verðlaunum fyrir hvern villimink. Ef svo skyldi vera, að loðdýraræktarráðunauturinn yrði gerður að hershöfðingja í útrýmingarhernaði þessum, gæti manni komið til hugar, af því að hann er nú embættismaður í þessari grein, að hann hefði sýnt þessum málum áhuga undanfarin ár og það þyrfti ekki endilega að samþykkja sérstök l. um það nú. Hann er búinn að hafa þennan starfa um stund og villiminkarnir að vinna verk sín til stórtjóns árum saman. Og af hálfu hans hygg ég, að til útrýmingar hafi býsna lítið verið gert fram að þessu, enda er málið satt að segja þannig vaxið, að ef einhver verulegur árangur á að nást af þessu starfi, þá verður slíkt ekki gert nema með mörgum mönnum á hverjum stað og verður ekki á neins eins manns færi að sjá um slíkt verk. Það er alveg víst, án þess að ég vilji gera það að frekara umtalsefni, að hvað þetta starf áhrærir, þá treysti ég bezt því fólki, sem þekkir bezt lifnaðarhætti þessa dýrs hér á landi og hefur margt orðið fyrir þungum búsifjum af völdum þess. En þrátt fyrir loðdýraræktarráðunaut og þá, sem áhuga hafa fyrir minkaeldi og loðdýrarækt stunda, þá hefur maður fyrir fram enga sérstaka trú á því, að mikið verði gert, þó að þetta standi í lögum.
Okkur flm. þessa frv. og þessara brtt. finnst alveg sjálfsagt, að leitað sé álits þeirra manna, sem verða fyrst og fremst fyrir því tjóni, sem þessi dýr valda, — að þeir segi til um vilja sinn í þessu efni. Það virðist eðlilegra, að þeir menn segi álit sitt heldur en hinir, sem hafa einhverja hagsmunavon af því að ala þann snák við brjóst sér áfram.
Það má í raun og veru telja meira tjón, sem þessi dýr valda, heldur en oft er búið að telja hér upp. Það borgar sig svo illa minkaeldið, að þeir, sem það stunda, hafa orðið að leita til Alþ. með eftirgjöf á lítilfjörlegum tollum, og verður því slík atvinnugrein að teljast frekar baggi á þeim en að um nokkurn hreinan arð sé þar að ræða. Og þegar tillit er tekið til þess, hve mikið er í húfi og hvað þessi plága getur valdið stórkostlegu tjóni hjá bændastétt landsins, þá fer það að verða harla einkennilegt mál, ef Alþ. er í vafa um, hvað gera skal í þessu efni.
Það er alveg víst, að ef menn úti um land hefjast ekki handa til þess að útrýma villiminknum, þá verður hann landplága, sem stefnir að því að eyðileggja allt fuglalíf og þar með æðarfuglinn, því að það munu ekki vera hér nema örfáar eyjar, sem mönnum mun kannske takast að hafa æðarvarp í óáreitt fyrir villimink. Þá er það vitað, að hann veldur og á eftir að valda stórtjóni á silungsveiði og laxveiði í ám og vötnum. Það má segja, að það sé getgáta, en ég er sannfærður um, að hann mun leggjast á unglömb, þegar fer að minnka um æti hjá honum. Það er sannað, að hann hefur gert það hér, og það er ekki vafi á því, að hann mun gera það því fremur, því minna sem er um æti fyrir hann hér en erlendis.
Þetta mál er þannig vaxið, að það á að vera augljóst hverjum manni, sem vill kynna sér það, að hér er um alvörumál að ræða fyrir sveitir landsins, og það má ekki minna vera en komið sé til móts við þá menn, sem orðið hafa fyrir þungum búsifjum af völdum þessara dýra. Alþ. ætti að ganga þar á undan og ákveða, að hætta verði minkaeldi. Það hefur komið rækilega fram hjá meðflm. mínum, að það mundi verða meiri hvöt til þess að gera alvarlegar aðgerðir til þess að útrýma dýrinu, ef menn þyrftu ekki að óttast það lengur, að dýr slyppu úr búrum, þannig að þau væru ekki lengur starfrækt. Því að menn geta aldrei tekið ábyrgð á því, að ekki hendi slys og minkar sleppi ekki, ef þeir eru hafðir í búrum.
Hv. landbn. lét í ljós við 2. umr. málsins, að hún væri tilbúin til samkomulags um að gera þetta mál vel úr garði. Og ég vil vænta þess, að hv. landbn. fallist á þessar brtt. og þann dóm, sem þá yrði upp kveðinn, ef farið yrði eftir þeim. Það er ekki hundrað í hættunni. Það er leitað til þess fólks, sem verður fyrir mestu tjóni af völdum þessara dýra, og er ekki nema rétt að leita álits þess. Og við flm. eigum undir högg að sækja, alveg eins og hv. landbn. og þeir, sem fylgja hennar máli. Og við flm. skulum hlíta þeim dómi, sem kveðinn verður upp eftir þessari brtt., og láta okkur lynda, hver niðurstaðan verður.