16.03.1948
Neðri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í C-deild Alþingistíðinda. (2504)
93. mál, útrýming villiminka
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Það voru aðeins örfá orð. Ég verð að segja, að ég er undrandi yfir því málþófi, sem hv. 1. flm. beitir hér í þessu máli við hverja umr. eftir aðra. Hann hefur þrjátíu ára þingmennsku að baki, en hann mun ekki geta nefnt eitt dæmi þess, að löggjöf hafi verið sett á þennan hátt. Að leita álits lítils hluta landsbúa og láta löggjöfina velta á því, hvort þar fæst einhver meiri hluti, það væri einsdæmi. Þetta er nóg til þess, að Alþ. getur ekki samþ. till. Af því er í raun og veru ástæðulaust að karpa um þetta. Landbn. lítur ekki á þau svör, sem hlutaðeigandi aðilar gefa, sem dómsorð, heldur sem álit, en hv. þm. Árn. var að tala um dóm í þessu sambandi. Það má um þetta segja, að „skýzt, þó skýrir séu“. Það, sem hlýtur að vaka fyrir hv. flm., er að fá álit þessara aðila, en það er þröngsýni að ætla að binda þetta við nokkra landshluta. Ég veit ekki, hvort hv. þm. Borgf. er sama sinnis um þetta og hv. þm. Árn. (PO: Ég er annar flm.) dá, en hv. þm. Borgf. hefur ekki látið í ljós álit sitt um brtt. landbn. Það er ekkert auðveldara en að skiptast í flokka um þetta mál, þegar upplýsingarnar koma. Hitt er ofstæki að ætla að binda þær við einstaka landshluta. Ég er undrandi yfir því, að hv. þm. Árn. skuli t. d. vilja leita álits um þetta í Dalasýslu, en ekki í Húnavatnssýslum, Skagafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslum. Landbn. hefur talið sér skylt að leiðrétta þetta. Mér virðist við hafa komið svo langt til móts við hv. flm. sem mögulegt var, og fæ ég ekki séð, að það spilli neinu, þó að leitað sé umsagnar fleiri sveitarfélaga. Það eru ekki annað en rökþrot, þegar hv. þm. Árn. ætlar að gera það að stórmáli, hvort leitað sé umsagnar Vestmannaeyja og Grímseyjar. Ég sé ekki, að það sé neitt hættulegt.
Þetta vil ég taka fram og leyfa mér enn að óska þess, að hv. flm. taki höndum saman við okkur. Svo getur Alþ. afgr. málið, þegar upplýsingar liggja fyrir í byrjun næsta þings. og verður hægt að framkvæma það fyrir þann tíma sem flm. sjálfir leggja til.