28.11.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (2524)

94. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Hæstv. forseti sagði að ekki hefði komið fram áhugi fyrir að hafa fundi í dag í deildum. Hjá hverjum skorti þann áhuga? Hefur einhver talað við hæstv. deildarforseta um, að hann óskaði ekki eftir, að fundur væri haldinn í hv. Nd. í dag? Ég hef talað við alla þrjá hæstv. forsetana um, að ég óskaði sérstaklega eftir því, að þennan dag föstudag, yrði í síðasta lagi haldinn fundur í Nd. Það væri því æskilegt að fá að vita, áhugaleysi hvaða aðila þarna hefur komið til greina.