30.01.1948
Neðri deild: 49. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í C-deild Alþingistíðinda. (2556)
107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Hermann Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. þm. Siglf. að flytja hér brtt. við frv. þetta, sem prentaðar eru á þskj. 281. Brtt. þessar eru shlj. brtt. þeim, sem hv. þm. Siglf. flutti hér 1947, er 1. um fjárhagsráð voru til umr. hér á Alþ., en þær náðu þá ekki samþykki. Aðalinnihald þessara brtt. er það, að innflutnings- og gjaldeyrisdeildir verði settar á stofn víðs vegar á landinu, en séu ekki eingöngu staðsettar í Rvík, eins og hingað til hefur verið venjan. Það er lagt til, að landinu verði skipt í ákveðin héruð, sem hvert hafi sínar innflutnings- og gjaldeyrisdeildir. Rökin, sem færð eru fyrir þessum breyt., eru að mikil óánægja er með það úti á landsbyggðinni, hve langt sé að sækja til þessara stofnana, sem fara með leyfisveitingar þessar. Áskoranir hafa og borizt Alþ. frá fjórðungsþingum um að gera breyt. á þessu fyrirkomulagi. Í þessu sambandi má og minna á, að oft hefur verið um það rætt og skrifað, að Rvík væri í of hröðum vexti. Það má vera, að það sé mestan hluta vegna þess, að í Rvík hefur þróazt mjög blómlegt atvinnulíf hin síðari ár, en hitt má segja með nokkrum sanni, að breyt. á þessu, hvar innflutnings- og gjaldeyrisskrifstofur eru staðsettar, getur haft nokkur áhrif í þá átt að draga úr sókninni til Rvíkur. En Rvík er eini staður landsins, sem hefur gjaldeyrisn. starfandi, og vegna þess hafa margir sótzt eftir því að koma sér þar fyrir, sem minni fyrirhöfn hefur verið að sækja til gjaldeyrisyfirvaldanna. Svona virðist mér ástandið vera í dag. Það má að vísu deila mjög um þetta, en ég held, að það muni koma að nokkru gagni, að kaupstöðum úti á landi verði sköpuð betri skilyrði en nú eru í þessum málum.
Ég gat um það í byrjun máls míns, að síðasta Alþ. hefði fellt till. um sama efni. Ég vil nú leyfa mér að vænta þess, að þessi till. fari ekki sama veg. Ég vona, að hv. alþm. hafi breytt um skoðun og skilningur þeirra hafi vaxið svo, að þeir verði með þessari brtt. nú. Frá því að þessar brtt. komu fram á afviknu Alþ., hafa margar áskoranir borizt Alþ. um að samþykkja það, sem hér er lagt til, og er áhugi landsfólksins mikill, að þessi breyt. nái fram að ganga.
Um síðari gr. brtt. á þskj. 281 er það að segja, að með henni er verið að samræma með tilliti til þess, sem á undan er gengið, ef sá liður brtt. nær samþykki. Það væri freistandi að ræða þessi mál nokkuð ýtarlega, en ég sé þess ekki þörf nú.