30.01.1948
Neðri deild: 49. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í C-deild Alþingistíðinda. (2557)
107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Í upphafi þessa þings var flutt stjfrv. til staðfestingar brbl., sem út voru gefin í haust. Voru þau l. sett til þess að herða á eftirliti með innfluttum og útfluttum erlendum gjaldeyri. L. fóru síðan til hv. fjhn., en hún felldi síðan ákvæði þessi inn í l. um fjárhagsráð. Þess vegna var efni stjfrv. flutt í því frv. formi, sem hér liggur fyrir. Mér var sama um formið og hið nýja form, sem hér liggur fyrir, er því staðfesting á brbl. En hér hafa komið fram brtt. frá hv. þm. A-Húnv. og hv. 11. landsk. þm. um allt annað. Þær brtt. fela í sér þá hlið málsins, hvaða fyrirkomulag muni bezt henta í þessum málum, en það er alveg fyrir utan mál það, sem hér liggur fyrir. Ég skal ekki fara að ræða um það hér, hvað bezt muni henta, þótt ég annars hafi ákveðna skoðun í þeim málum, en ég vil eindregið mælast til þess, að þessar brtt. tefji ekki afgreiðslu þessa máls. Það nær ekki neinni átt að fara að ákveða um það, hvort gjaldeyrisdeildir skuli settar á stofn úti um land, án undanfarandi rannsóknar á þeim málum. Það er ekki til neins að samþykkja slíkt. Jafnhættulegt er það að fara að undanskilja vissan hluta bygginga úti um land frá kröfum, sem gerðar eru til annarra aðila.
Ég vil því vænta þess, hvað sem gert kann að vera í skipan þessara mála eftir að athuganir hafa fram farið á þeim, að þá fái frv. þetta fram að ganga, eða þá stjfrv., sem flutt var, fái fram að ganga í sinni upphaflegu mynd.