30.01.1948
Neðri deild: 49. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (2561)
107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Hallgrímur Benediktsson:
Herra forseti. Þessar umr. og þá sérstaklega hjá hv. síðasta ræðumanni hafa farið nokkuð á víð og dreif, því að hann ræddi ástandið eins og það er og viðskiptamál almennt í landinu. Ef út af fyrir sig ætti að gera það, þá mundu eflaust margir þm. vilja koma með sínar athuganir og bendingar.
Mér finnst það vera nokkuð einkennileg afstaða hjá hv. 2. þm. Reykv., hvað hann heldur fast við það, að allt of mikið fjármagn hafi lent hjá verzluninni. Það er eins og hann hafi engin bjargráð fyrir hendi önnur en að taka allt fjármagn af verzluninni. Það er vitað, að í öllum löndum, það er alveg sama hvaða ríkisstj. það er, alls staðar er keppt að því, að verzlunin hafi hæfilegt fjármagn. Við getum deilt um, hvort það komi ekki stundum tímar. þegar of mikið fjármagn lendir hjá einni stétt. En það verður jafnframt að gæta að því, hvernig fortíðin hefur verið síðustu 6 árin. Það hefur verið hlutverk verzlunarstéttarinnar að sjá landsmönnum fyrir nægilegum vörum til landsins, en svo var sett eftirlit með verzlun og innflutningi. og það kemur úr hörðustu átt, að hv. 2. þm. Reykv. skuli nú vera með gagnrýni á slíkt eftirlit, því að sjálfur telur hann sig föður nýbyggingarráðs, sem kom með ýmsar stórfelldar hugmyndir, sem urðu m. a. til þess að gera þeim erfiðara fyrir, sem tóku við á eftir. Annars fannst mér, að það, sem berlegast kom fram í ræðu hv. þm., það var gagnrýni hans á núverandi stj. og þeim ráðum, sem eru undir væng hennar. Ég get gjarnan tekið undir það með hv. þm., að það horfir til mjög alvarlegs ástands hvað verzlun og iðnað snertir, ef ekki er hægt að úthluta leyfum fyrir þetta nýbyrjaða ár svo fljótt, að svigrúm gefist til að ná í vörur. Og þó að leyfi hafi verið samþ., þá er ástandið þannig í heiminum hér um bil í öllum löndum, að það eru takmörk fyrir því, hvað þau geta látið af hendi og vilja afgreiða til annarra landa. Ég vil gjarnan, að þetta viðhorf sé athugað, svo að nægilegt svigrúm gefist til að ná í þær vörur, sem flytja á inn fyrir verzlunarstéttina, sem hv. 2. þm. Reykv. segir, að eigi ekki að starfa með neinu rekstrarfé. Og það mundi ekki koma mér á óvart, að þegar vöruþurrð yrði komin, þá risi þessi hv. þm. upp og segði: Svona er þetta frjálsa framtak. Það dugir ekkert nema landsverzlun.
Skoðanamunurinn milli mín og hv. þm. er sá, að hann vill leggja að velli athafnafrelsi, kjark og dug einstaklingsins til að leggja í hættu sínar eignir og fjármuni og vinna að þeirri þróun, sem þeir með gleði vilja efla á sínu starfssviði hjá þjóðinni. Í þess stað vill hv. þm. koma á landsverzlun, og ég býst við, að hann vilji, að hún hafi höfuðaðsetur sitt í Rvík. Ég játa, að eins og viðhorfið er nú í verzlun og viðskiptum úti um land, þá óska ég miklu fremur að geta sett þar upp vörur á ýmsum stöðum, fremur en að umskipa öllu í Rvík. og það er ósk allra, sem hafa með höndum innflutning. En þegar um stór flutningaskip er að ræða, þá kemur annað til greina, — að þá verður að vera nægilega mikil eftirspurn á staðnum til að mögulegt sé fyrir skipin að koma þar við. Einnig er þess að gæta, að þótt Rvík sé talin dýr höfn, þá hefur t. d. stundum salt og kol orðið ódýrara með því að fá þessar vörur hér í land, jafnvel þó að orðið hafi að borga undir þær dýra fragt út um land, heldur en að fá þær beint á hafnirnar úti um land. Ég ætla ekki að nefna dæmi, því að þetta er aðeins svar við einstökum atriðum, sem hv. þm. kom með.
Ég fyrir mitt leyti álít verulega þörf á að ræða þessi mál og að við misskiljum ekki hver annan, heldur sýnum hver öðrum meiri skilning, því að það munu fáar stéttir mæta öðrum eins misskilningi og verzlunarstéttin, en ég fullyrði, að hún, bæði kaupsýslumenn. kaupfélög og kaupmenn, hafa gert sitt ýtrasta til að standa í sinni stöðu og láta neytendurna fá vörur inn í landið.
Hvað snertir önnur atriði, sem hann drap á, þá gætum við lengi skeggrætt um það, og mundu sjálfsagt margir vilja leggja þar orð í belg. Ég ætla þó ekki að gera það á þessu stigi málsins, því að ég álít ekki heppilegt að gera það í sambandi við það mál, sem hér er nú á dagskrá, til þess að hér komi fjöldi brtt., því að ef á að koma hér með almennar brtt. um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit, eins og við höfum verið að ræða hér um nú, þá finnst mér það vera allt annað mál en það, sem hér er á dagskrá, því að það er frv. um innflutning og útflutning á gjaldeyri. Meiri hl. fjhn. leggur til, að sett verði ný l., sem tekin verði út úr l. um fjárhagsráð, sem aðeins segi til um innflutning og útflutning á íslenzkum og erlendum gjaldeyri. Hann vill fylgja þessum nýju l. Eins og hann man, þá var þetta mál rætt við tollstjóra. Hann var þeirrar skoðunar, að eðlilegt væri, að þetta kæmi inn í 13. gr. l. um fjárhagsráð, en 5. málsgr. hennar hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Bannað er að flytja íslenzkan eða erlendan gjaldmiðil úr landi nema nauðsynlegan farareyri eftir reglum, sem ríkisstjórnin setur.“
En það skal fram tekið, að hv. 2. þm. Reykv. vildi heldur fylgja brbl. og hafa þetta í sérstökum l. Svo að ég er þeirrar skoðunar, að það sé annaðhvort fyrir okkur að komast að niðurstöðu um þetta eina atriði, sem fyrir n. lá. En ef við eigum að fara að ræða almennt um viðhorfið í þessu máli, þá býst ég við, eins og ég tók fram áðan, að við værum margir, sem vildum gjarnan hreyfa þessu eitthvað í aðra átt, en vildi á þessu stigi mælast til, að menn haldi sig við það annaðhvort að samþykkja brbl. eða þessa breyt. á till. meiri hl. fjhn., að þetta komi inn á þessum sama stað sem um ræðir í 5. mgr. 13. gr. Ég vildi því taka undir það, sem hæstv. samgmrh. lagði til í þessu máli, að við reyndum að afgreiða þessi l. út af fyrir sig.
Viðvíkjandi þeim brtt., sem hér liggja fyrir á þskj. 281 og 282, þá er það um þá fyrri að segja, að ég held, að það sé varhugavert að fara að stofna ráð á hverjum stað í landinu, og vil benda á það, að í öllum nálægum löndum og í Bandaríkjunum er aðeins ein miðstöð fyrir öll þessi l., svo að ég held, að þótt eitthvað yrði bætt úr þessu, sem ég játa að eru miklir erfiðleikar fyrir menn að reyna að koma málum sínum fram og fá svar við þeim, þá hefur þetta skeð fyrir okkur hér hvort sem er í Rvík eða Hafnarfirði um áramótin, að það er engin ákvörðun komin fram enn um innflutning fyrir 1948, svo að ekki hefur verið um það að ræða að veita önnur leyfi en þau, sem nauðsynleg urðu að teljast, þ. e. fyrir vörum, sem sýnilegt var, að yrðu að koma til landsins. Svo að ég held, að það yrði að athuga þessa leið miklu betur en fram kemur í þessari till., ef hún ætti ekki að mynda aftur togstreitu og skapa ýmis óheilindi, því að það hefur komið fyrir, þegar vöruþurrð hefur orðið, að farið hefur verið að bjóða vörurnar úti á landi, og hefur þá verðið oft komizt upp í svartamarkaðsverð. Þá er líka þess að gæta, að fólkið sækir þangað, sem atvinnan er næst og bezt. Við vitum, að núna í vetur hafa sérstaklega Rvík og Hafnarfjörður tekið á móti mjög miklu vinnuafli og líka Siglufjörður. Það segir þá sig sjálft, að það er ekki hægt að haga úthlutuninni bara eftir fólksfjöldanum í þeim landsfjórðungi. Ég get því ekki fylgt þessari till.
Um brtt. á þskj. 282 er það þegar upplýst af hv. þm. Ísaf. (FJ). að það hafi aldrei verið lagður steinn í veg fyrir fjárfestingarleyfi til íbúðarhúsbygginga af takmarkaðri stærð. En mér kom á óvart, að hv. þm. A-Húnv. (JPálm) vildi bara binda þetta við kauptún, sem hafa mest 500 íbúa, en geta má nærri, að það sama getur verið alveg eins óréttlátt á öðrum stöðum, hvort heldur er í Rvík. á Akureyri eða annars staðar á landinu, svo að ég held, að það væri bezt, ef hv. þm. vildi draga þessa till. til baka á þessu stigi, því að eins og ég hef tekið fram, er margt að athuga við þesst l., sem hafa verið nú aðallega til umr., um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit, sem eru að mörgu leyti á móti mínu skapi. Ég veit, að þetta er frekar gert í nauðvörn, til þess að reyna að koma fjárhag landsins á heilbrigðan grundvöll, en það er sönnun þess, að því meira sem það opinbera blandar sér í málið, verður það eitthvað óeðlilega þungt í vöfum og getur valdið hinu mesta misrétti. Ég vildi því hafa skýrt Þessa afstöðu mína, því að hún kemur heim við það, sem hv. 2. þm. Reykv. hefur sagt, en ég vildi bara binda afgreiðslu þessa máls, sem hér liggur eiginlega fyrir, við þessi upphaflegu brbl., sem hér voru lögð fram og hæstv. samgmrh. mæltist til, að d. tæki sérstaklega til meðferðar.