06.02.1948
Neðri deild: 52. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í C-deild Alþingistíðinda. (2566)

107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Það er nú svo langt liðið síðan þetta mál var hér síðast til umr., að margt af því er fallið í gleymsku, sem sagt var. Ég get því verið stuttorður.

Ég vil minna á það, að meiri hl. fjhn. leggur áherzlu á það, að báðar þær brtt., sem hér liggja fyrir verði felldar.

Ég endurtek það, að till. þeirra hv. þm. A-Húnv. (JPálm) og hv. 2. þm. Rang. (IngJ) veldur misrétti, eftir því hvar menn búa á landinu. Það var til athugunar í fjhn., þegar l. um fjárhagsráð voru þar til athugunar, hvort hægt væri að setja undanþágu fyrir smærri framkvæmdum, en n. komst að þeirri niðurstöðu, að þetta væri erfitt og ekki heppilegt og að bezt væri, að framkvæmdavaldið hefði það á hverjum tíma í hendi sér að þrengja og víkka þetta svið, eftir því sem þægilegt væri. Sú till. var því felld, og sama er að segja um till. frá þeim hv. 11. landsk. (HermG) og 2. þm. Reykv. (EOl). Þeir telja, að till. þeirra verði til þess að bjarga dreifbýlinu, en það er ekki gert betur en svo, að þetta fjárhagsráð á að útnefna allar n. og svo að skipta gjaldeyrinum. Hvað sem á að gera í því að rétta hlut dreifbýlisins, verður það ekki gert með þessu móti. Það er svo að segja alveg ómögulegt að hafa 4 gjaldeyrisnefndir í landinu og úrskurða þarfirnar á þann hátt, fyrir utan allt það ósamræmi, sem þessi aðferð mundi hafa í för með sér, enda hafa stærri þjóðir en við ekki farið út á þessa braut. Ég efast ekki heldur um það, að hagsmunir dreifbýlisins njóta sín hjá fjárhagsráði, enda var það sett til þess að vernda þá, sem fjarri eru, svo að þeir verði ekki útundan með slíka hluti, og þegar nú sjálfir þm. þéttbýlisins, þeir 2. þm. Reykv. (EOl) og 11. landsk. þm. (HermG), ef ég má segja svo, leggjast nú á sveif með öðrum hetjum dreifbýlisins, hygg ég, að því ætti að vera borgið, jafnvel þótt eitt ráð sé fyrir allt landið.

Allt tal hv. 2. þm. Reykv. (EOl) um erfiðleika manna úti á landi, sem hv. þm. Ísaf. (FJ) bar til baka, gat eins átt við, þegar hann átti sæti í nýbyggingarráði sem varaformaður, en þá kom aldrei fram till. í þessa átt.

Ég orðlengi þetta svo ekki, en tel bezt að halda sér að upphaflega frv. og fella allar brtt.