09.02.1948
Neðri deild: 53. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í C-deild Alþingistíðinda. (2572)

107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég mun ekki hafa nema athugasemdartíma til umráða og sé ekki ástæðu til að fara út í ræðu hv. þm. V-Húnv. (SkG) varðandi fyrrv. ríkisstj. og hennar fylgismenn. því að til þess mun gefast tækifæri síðar. En út af því, sem hann sagði varðandi hv. 2. þm. Rang., þ. e. að hann hafi lýst yfir, að hann mundi taka till. aftur vil ég mótmæla því algerlega, því að hann hefur enga yfirlýsingu gefið um slíkt. Annars eru það nokkur atriði í sambandi við till. okkar hv. 2. þm. Rang., sem ég sé ástæðu til að minnast ofurlítið nánar á. Er þá fyrst það, sem hv. þm. Ísaf. vék hér að og hv. síðasti ræðumaður endurtók, að þessi till. gæti stefnt í þá átt, að kaupstaðabúar gætu byggt sumarbústaði eftir vild úti um land. og kom í ljós, að hv. þm. Ísaf. fann till. allt til foráttu, en auðvitað hefur okkur flm. aldrei dottið annað í hug en að þessi undanþága ætti ekki að ná nema til þeirra, sem væru heimilisfastir á þeim stöðum, sem till. fjallar um, enda segir þar: „Nánari ákvæði um fjárfestingarleyfi séu sett í reglugerð.“ Hitt er augljóst, að ef einhverjir kaupstaðabúar flyttu heimilisfang sitt upp í sveit eða minni kauptún, næði þessi undanbága til þeirra. en ella ekki. Af þessari ástæðu eru mótbárur hv. þm. gegn till. algerlega út í loftið.

Hv. þm. Ísaf. taldi, að með samþykkt þessarar till. væri sýnt misrétti milli manna eftir því, hvar þeir búa. Að því leyti er þetta rétt, að það verða að vera önnur ákvæði varðandi takmarkanir á byggingu milljónahalla höfuðstaðarins en mannabústaða úti á landi. Og eins og ég margtók fram í sambandi við umr. um þetta mál á síðasta þingi, þá hlýtur að vera nokkur skynsemi í því að takmarka fyrst og fremst vöxt höfuðborgarinnar, þangað sem meiri hluti landsmanna leitar eftir að komast, og þess vegna er það öfugt og verið að fara aftan að hlutunum, að verið sé að setja tálmanir í veg fyrir það tiltölulega fáa fólk, sem vill búa áfram úti á landi og leggur á sig mikið erfiði við að koma þar upp byggingum og öðrum framkvæmdum. Hér er því um þýðingarmikið nauðsynjamál að ræða, sem ekki þarf að reka sig á hagsmuni ríkisvaldsins, en mjög mikið til bóta fyrir alla þá menn, sem hafa framkvæmdir með höndum úti á landi.

Þessar aths. vildi ég láta koma fram, áður en til atkvgr. væri gengið um brtt. okkar hv. 2. þm. Rang. Að öðru leyti leiði ég hjá mér þær aðrar deilur, sem hér hafa orðið varðandi mál. sem ekki snerta þessa till.