09.02.1948
Neðri deild: 53. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í C-deild Alþingistíðinda. (2573)
107. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Út af tilmælum hv. þm. V-Húnv., sem hann beindi til mín um að taka aftur brtt. á þskj. 281. vildi ég spyrja hæstv. forseta að því, þar sem vitað er, að þessi ráðstefna um gjaldeyrismál á að koma saman á morgun, hvort ekki væri tiltækilegt að láta málið bíða, ef ske kynni, að eitthvað það kæmi fram á ráðstefnunni, sem meiri hl. þ. teldi ástæðu til að taka tillit til. Vil ég í þessu sambandi minna á, að þau ákvæði, sem hér er verið að ræða, gilda nú sem stendur samkv. brbl. Hér er því ekki um annað að ræða en að staðfesta ákvæði, sem brbl. gilda um, og getur það því ekki rekizt á hagsmuni hæstv. ríkisstj., þótt málið verði látið bíða í nokkra daga. Vil ég leyfa mér að vænta þess, að hæstv. forseti segi til um það, áður en ég held ræðu minni áfram, hvort hann telur sér þetta fært, og fari svo, mun ég og fresta frekari ræðuhöldum.