12.12.1947
Neðri deild: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í C-deild Alþingistíðinda. (2582)

109. mál, stríðsgróðaskattur

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Ég ætla að láta hæstv. forseta vita, að þetta er ekki framkoma, sem ég telji honum sæmandi. Og það er fáheyrður hlutur, að þm. skuli ekki fá tækifæri til þess að vera kallaðir í síma og ljúka áríðandi landssímasamtölum, án þess að hæstv. forseti hyllist til þess að taka á meðan mál, sem þeir sömu þm. flytja, og það við 1. umr. — Ég leyfi mér að krefjast þess, að hæstv. forseti neyti þeirrar heimildar, sem hann hefur til þess að taka málið nú til 1. umr., þó að þessi atkvgr. hafi farið fram. Hæstv. forseti hefur rétt til þess. Ég ber fram þessa kröfu, að ég fái að mæla fyrir þessu máli þegar á þessum fundi. Ég legg á það megináherzlu. — Ég óska þess, að hæstv. forsett kveði upp úrskurð um þessa ósk mína. (Forseti: Það verður gert á næsta fundi.)