19.12.1947
Efri deild: 42. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Í sambandi við afgreiðslu þessa máls gerðist hér í þessari hv. d. nokkuð óvenjulegur atburður í gærkvöld, sem sé sá, að allir hæstv. ráðh. mættu hér við umr. Það er nokkuð sjaldgæft að sjá ríkisstj. fylkja liði hingað í deildina, og bendir þetta til, að mikils h.~fi þótt við þurfa, og það því fremur, sem fjórir ráðherranna eiga sæti : hv. Nd. og lögðu þó á sig þetta ómak. En það eru ekki allir dagar hátíðisdagar, og minna sést nú til hæstv. ríkisstj., þótt málið sé enn til afgreiðslu og umr. um það hafi staðið í mestallan dag. Ráðherrarnir hafa varla sézt, og sem stendur er enginn þeirra viðstaddur. Ég mun þó leyfa mér að vitna í nokkur ummæli þeirra frá því í gærkvöld, enda þótt þeir séu ekki við til þess að hlusta og þá til að svara fyrir sig. En áður en ég kem að ummælum hæstv. ráðherra, þá vil ég víkja nokkrum orðum beint að frv.

Það hefur verið haft mjög á orði af hæstv. ríkisstj. og þá sérstaklega hæstv. forsrh., að mjög hafi verið vandað til undirbúnings frv. Það sést þegar á I. kafla, þar sem byrjað er á því að gefa skilgreiningu á því, hver tilgangurinn með frv. sé. En tilgangurinn er þessi, eins og stendur í 1. gr., að frv. sé flutt og þessi lög eigi að setja „til þess, að vinna gegn verðbólgu og dýrtíð, tryggja áframhaldandi rekstur sjávarútvegsins, stemma stigu fyrir atvinnuleysi og auka framleiðslu til gjaldeyrisöflunar.“ Eins og þetta er hér sett fram, virðist tilgangurinn ákaflega góður og nauðsynlegur, og gera má ráð fyrir, að samkomulag yrði milli flestra um samþykkt þessa frv., ef það í raun og veru væri líklegt til að ná þessum yfirlýsta tilgangi eftir réttum leiðum. Það er því rétt að rekja nokkuð, á hvern hátt ákvæði frv. eru líkleg til að ná þeim tilgangi, sem svo fagurlega er dreginn upp í 1. gr.

Við skulum fyrst athuga, hvaða ráðstafanir gegn verðbólgu og dýrtíð felast í frv. Það eru vafalaust ákvæði III kafla, sem ríkisstj. ætlast til, að séu skilin sem barátta gegn dýrtíðinni, í fyrsta lagi það að lækka vísitöluna um 28 stig, eða, eins og upplýst hefur verið, um 81/2%. Jafnframt hefur verið farið um það mörgum orðum, og hæstv. forsrh. lagði á það sérstaka áherzlu, að samhliða þessu ættu verðlagsyfirvöldin að láta vöruverð lækka að sama skapi, og hefur hann, eins og hann sagði í gær, látið reikna út áhrif þessa til lækkunar vöruverðs og taldi vonir til, að vöruverðið gæti lækkað um 31/2 %. Hæstv. forsrh. sagði aðeins, að vonir stæðu til, að vöruverðið gæti lækkað, sem þessu næmi. Það er augljóst, og hefur komið fram í umr., að bæði eru örðugleikar á að reikna út áhrif vinnulauna á vöruverð, og einnig eru miklir möguleikar fyrir þá, sem upplýsingar eiga að gefa í því sambandi, að dylja þetta og koma í veg fyrir lækkun vöruverðsins, svo þó að vilji væri fyrir hendi, mundi þetta verða torvelt í framkvæmd og ef til vill til einskis gagns. Auk þess er vitað og hefur komið fram í umr., að áhugi hæstv. forsrh. á því að lækka laun er meiri en á því að lækka vöruverð, þannig að ef nokkru ætti að slá föstu um þessa vöruverðslækkun, þá er augljóst, að hún mundi í framkvæmdinni verða lítil eða engin í höndum þessarar ríkisstj. En höldum okkur við þann fræðilega möguleika hæstv. forsrh., að hægt væri á grundvelli þessara l. að lækka vöruverðið um 31/2%. Önnur ákvæði leiða til aukinnar verðbólgu og verðhækkunar, sem er meiri en hin hugsanlega lækkun vöruverðsins. Þessi ákvæði felast t.d. í VI. kafla, þar sem allir þeir tollar, sem lagðir voru á nauðsynjavörur á síðasta þingi, eru framlengdir. Þótt ekki séu gerðar nýjar ráðstafanir til hækkunar, þá er haldið við þeirri hækkun vöruverðsins, sem gerð var á síðasta ári. Og í raun og veru er gert meira en viðhalda hækkuninni, því að með hækkuðu vöruverði á aðfluttum vörum vaxa líka áhrif tollahækkunarinnar, og felur þetta því í sér áframhaldandi verðhækkun vörunnar, þ.e.a.s. aukna verðbólgu. Auk þessa er svo söluskatturinn. Hann nemur samkv. frv. 31/2% eða sömu upphæð og hæstv. forsrh. upplýsti, að í hæsta lagi væri hægt að lækka vöruverðið um, þannig að þótt sú verðlækkun yrði, mundi henni verða gereytt með söluskattinum. En ég vildi benda á það, að sá skattur hækkar vöruverðið meira en um 31/2 %, því að hann getur hæglega lagzt á oftar en einu sinni. Það má gera ráð fyrir, að iðnfyrirtæki kaupi erlent hráefni af heildsala. Hann leggur á það 2%. Síðan vinnur iðnfyrirtækið úr hráefninu og selur framleiðslu sína til smásala og leggur á hana 11/2%, og síðan selur smásalinn neytendum vöruna með 11/2% álagningu. Þannig verður söluskatturinn auðveldlega 5%, og það er hægt að hugsa sér möguleika fyrir því, að um enn fleiri milliliði yrði að ræða og skatturinn hækkaði enn, t.d. að iðnfyrirtækið seldi framleiðslu sína til heildsala og heildsalinn síðan til smásala, og væri skatturinn þá orðinn 7%. Það er að minnsta kosti alveg augljóst, að ákvæði VI. og VII. kafla frv. hafa í för með sér hækkun vöruverðs, sem er meiri en lækkunin, sem gæti orðið samkv. III. kafla. Með öðrum orðum, að frv., sem sagt er, að miði að því að lækka verðbólguna, stefnir beinlínis að því að auka hana, þetta er ekki hægt að hrekja. Viðvíkjandi dýrtíðinni, sem frv. er ætlað að vinna gegn samkv. 1. gr., þá liggur það fyrir samkv. III. kafla, að það á að lækka kaup um 81/2 %. Hins vegar leiða ákvæði frv. til þess, að vöruverð hækkar og verðbólga vex, þ.e.a.s.: dýrtíðin eykst. Sá, sem fær minni laun, en býr við hækkað vöruverð, á erfiðara með að kaupa nauðþurftir sínar. Það þýðir, að dýrtíðin hefur vaxið. Ákvæði frv. ganga því á móti því, sem í 1. gr. er talinn tilgangurinn með flutningi frv.

Þá er tekið fram, að frv. sé og flutt til að tryggja rekstur útvegsins. Það munu vera ákvæði IV. kafla, sem eiga að miða að því, eða ákvæðin um ríkisábyrgð á bátafiskinn. En það er vert að minna á, að þetta ákvæði er komið inn í frv. eftir till. okkar sósíalista. Það er till. um það verð til sjómanna og útvegsmanna, sem kallað var Ákaverð og Morgunblaðið skrifaði um á sinni tíð og fordæmdi sem allt of hátt. En ríkisstj. hefur séð sig tilneydda að taka það upp, og er þetta ákvæði gott, það sem það nær. En það er tæplega nægilegt til að tryggja rekstur útvegsins, þó að þetta eina atriði úr till. okkar sé tekið upp, en öðrum sleppt, sem miðuðu að því að draga verulega úr rekstrarkostnaði bátaútvegsins og lækka dýrtíðina með raunverulegum hætti. Það hefur greinilega komið fram í ræðu ráðh. að rekstur útvegsins er alls ekki tryggður með þessum ráðstöfunum. Hins vegar felast ákvæði í frv., sem geta leitt til þess, að útvegurinn stöðvist, en þar á ég við launaskerðinguna í III. kafla. Það er engin ástæða til að ætla annað en að launþegasamtökin reyni að hindra slíka árás á kjör sín eins og felst í þessum kafla.

Þess er skammt að minnast, hvernig fór í sumar, þegar tollahækkunin kom til framkvæmda, þ.e.a.s. stjórnin varð að lúta í lægra haldi fyrir verkalýðssamtökunum, þegar skerða átti lífskjör almennings. Verkalýðsfélögin munu svara á sama hátt nú, og sú barátta getur bæði orðið löng og hörð og leitt til stöðvunar í lengri eða skemmri tíma.

Aftur á móti hef ég ekkert getað fundið í þessu frv., sem miðar að því að auka framleiðsluna, enda virðist ríkisstj. hafa annað frekar á stefnuskrá sinni heldur en auka framleiðsluna og tryggja þar með atvinnu í landinu, og má í því sambandi benda á, að fjárhagsráð er nú þegar orðið allþekkt fyrir neitanir sínar, og virðist stefna þess vera beinlínis sú að skapa atvinnuleysi í landinu. Sama má segja um ríkisbankann, hann er orðinn allkunnur fyrir að neita um nauðsynleg rekstrarlán fyrir útveginn og þar með að koma í veg fyrir nýja og aukna framleiðslu. Það er sem sagt ljóst, að tilgangur stjórnarinnar er ekki að skapa atvinnuöryggi og auka framleiðsluna, heldur stefnir hún að því að ráðast á lífskjör almennings með launalækkun og hækkuðu vöruverði. Það fór heldur ekkert leynt í ræðum ráðherranna, að þeim óx í augum, hvað alþýðan í landinu býr við góð kjör, og aðalatriðið var að rýra þessi kjör og það sem allra fyrst. Þetta var niðurstaða ríkisstj., þegar hún fór loks að semja sitt frv. Og fyrsta atriðið í þessari niðurstöðu var það, að hjá launalækkun yrði ekki komizt. Hæstv. menntmrh. lagði áherzlu á, að laun manna yrði að skipuleggja, þannig að þeir fengju ekki meira en vinnan gæfi af sér. Hæstv. ráðh. útskýrði það ekkert nánar, hvernig það mætti verða, að verkamenn fengju meira en vinnan gæfi af sér. Nú er það kunnugt, auk þess sem það kom greinilega fram í ræðu dómsmrh., að þjóðarauðurinn hefur vaxið mikið á síðustu árum, — ég held, að hann hafi tekið upp orð skáldsins, þar sem það segir, að síðustu 7 ár jafngildi áður 7 öldum í þessu tilfelli. En hvernig hefur þessi auður orðið til? Er það ekki fyrst og fremst vegna þess, að vinnuafl fólksins hefur verið hagnýtt? Jú, það er sannarlega hið vinnandi fólk í landinu, sem hefur skapað þennan auð, en hins vegar hefur ekki nema brot af þessum verðmætum lent hjá fólkinu, sem skapaði þau. Það er því firra að halda því fram, að vinnufólk landsins hafi fengið hærri laun en vinnan gaf af sér. Þetta getur líka verið svar við þeim ummælum þm. Barð., þegar hann segir, að öll ógæfan stafi af grunnkaupshækkunum og að eina leiðin sé að færa niður grunnkaup, því að ég vil spyrja þm. Barð., hverjum beri bætt kjör, ef það er ekki fólkinu, sem skapar verðmætin, og sömuleiðis vil ég mótmæla ummælum þessa hv. þm. um hin geysilegu vinnusvik, eins og hann orðaði það.

Hæstv. dómsmrh. talaði mikið um, hversu miklar kjarabætur verkamenn hefðu fengið, fyrst hefðu þeir fengið vísitöluuppbót, þá grunnkaupshækkun og svo vísitöluhækkun á grunnkaupshækkunina. Það var að heyra á ráðh., að verkamönnum hafi verið gefið þetta af náð, en nú væri svo komið, að þjóðarbúið gæti ekki lengur staðið undir þessum náðargjöfum, og nú yrði að halda til baka. Ég vil nú minna á í þessu tilefni, að verkamönnum hafa ekki verið gefnar þessar kjarabætur. Nei, þvert á móti. Þeir hafa orðið að sækja þær sjálfir og það með harðvítugri baráttu. Það hefur hvað eftir annað átt að skerða hlut verkamanna, og má í því sambandi minna á gengislækkunina 1939, gerðardómslögin alkunnu frá 1942 og svo tollahækkunina, sem samþykkt var á síðasta þingi. En verkamenn hafa brotið þetta á bak aftur, og þeir munu enn standa saman um það að láta ekki ráðast á lífskjör sín og rýra þau að ástæðulausu. — [Fundarhlé.]

Þegar ég lauk máli mínu fyrir fundarhléið, hafði ég með tilvitnunum í ræður ráðherra allra stjórnarflokkanna sýnt fram á, að allir þessir flokkar eru sammála um, að lífskjör alþýðunnar séu allt of góð og miklu betri en þjóðfélagið hafi ráð á og því sé það sérstök nauðsyn vegna atvinnuveganna að ráðast á þessi lífskjör. En það kemur einnig glöggt fram af ræðum ráðherranna, að allir stjórnarflokkarnir eru sammála um, að í þessu frv. felist árásir á lífskjör almennings, en þó sé þar allt of skammt gengið. Hæstv. forsrh. talaði um það klökkum rómi, að samkvæmt þessu frv. væri aðeins farið með vísitöluna niður í 300 stig, gerðar hefðu verið kröfur um miklu meiri lækkun, en horfið hefði verið frá þeim kröfum vegna óvissu um það, hvort þær mundu ná fram að ganga. Forsrh. lýsir því þar með yfir, að mikill vilji hafi verið fyrir hendi til að fara með vísitöluna miklu lengra niður, en hætt hafi verið við það vegna þess, að stjórnin hafi verið í óvissu um, hvort þær kröfur næðu fram að ganga, m.ö.o., stjórnin hafi ekki þorað þetta, sem hana langaði þó mest til. Hæstv. menntmrh. kom einnig inn á þetta og lýsti yfir því, að eftir allar bollaleggingar og útreikninga ríkisstj. hefði komið í ljós, að ekki hefði verið hægt að fara svo langt, að endarnir kæmu saman fyrir bátaútveginn, þ.e.a.s. stjórnarflokkarnir vildu færa vísitöluna svo langt niður, að útgerðin gæti farið af stað, en þá kom það í ljós, að áhrif vísitölunnar einnar á rekstrarkostnað báta voru svo lítil, að ekki var hægt með vísitölulækkun einni að tryggja útveginn, jafnvel þótt hætt yrði algerlega að bæta vísitölunni við. Og því lýsir hæstv. ráðh. yfir því, með þessari líka hryggð, að ekki hafi verið hægt að láta endana ná saman fyrir útgerðina. Hann vantaði sannarlega ekki viljann, en hann komst að þeirri leiðinlegu niðurstöðu, að þetta væri ekki hægt, og að verkafólk og launamenn mundu aldrei sætta sig við þann niðurskurð vísitölunnar, sem til þess hefði þurft. Hæstv. utanrrh. gaf einnig þá játningu, að sér félli langverst kaflinn um fiskábyrgðina, og vildi hann ganga svo langt í niðurskurði vísitölunnar, að ekki þyrfti neina ábyrgð, en svo langt taldi hann, að ekki væri þó hægt að komast í einum áfanga, eins og hann orðaði það. Sem sagt, allir stjórnarflokkarnir hafa gefið yfirlýsingar um, að í þessu frv. sé allt of skammt gengið í þá átt, að gera árásir á launastéttirnar og lífskjör almennings, en þeir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé heppilegt né hægt að ganga lengra að svo stöddu vegna fólksins sjálfs, og því hefur það orðið að samkomulagi hjá þeim að fara ekki lengra í þessum áfanga. Takist hins vegar að sætta alþýðuna við þennan fyrsta áfanga, þá er áreiðanlega vilji fyrir hendi að leggja upp í annan áfanga og taka þá stærra skref en þessir flokkar hafa nú þorað að taka. Sem sagt, nú liggur fyrir í ræðum ráðherranna og fulltrúa allra stjórnarflokkanna játning um, að þeir hafi mjög þráð að stíga stærra skref til árása á lífskjör íslenzkrar alþýðu, en þeir þorðu ekki að taka stærra skref núna í þessum áfanga, en eru að þræða sig áfram. Þetta er síðasta tilraunin, eins og hæstv. utanrrh. komst að orði, til þess að sætta alþýðuna við árás á lífskjör hennar. Ef sú tilraun tekst, á að halda áfram að vega í þann knérunn. En það er nú að mínu áliti nokkurn veginn gefið mál, hvert svar verkalýðsins verður. Hann mun ekki nú fremur en áður taka slíkri árás þegjandi. Hann mun treysta samtök sín og beita þeim fyrir sig til að hrinda árásunum eins og fyrr, eins og t.d. fór um tollahækkunina á síðasta þingi. Ég þori að slá því föstu, að styrkleiki verkalýðsins er nú eins og þá nægilega mikill til að láta þessa tilraun mistakast, eins og tollahækkununum var hrundið í vor og gerðardóminum á sínum tíma, á sama hátt og komið var í veg fyrir gengislækkun og niðurskurð á vísitölugreiðslum á árunum 1939–1942. Þegar róðurinn er hertur gegn alþýðunni, er alþýðan samtaka. Það kom skýrt fram í ræðu hv. 4. landsk. í dag, að verkalýðurinn og samtök hans ætla ekki að taka þessari árás þegjandi og hljóðalaust, og um afstöðu Sósfl. gagnvart þessu frv. og stefnu þess þarf ég ekki að fjölyrða. Því hefur verið lýst rækilega, bæði í umr. í Nd. og í þessari hv. d. í gærkvöld og einnig af hv. 4. landsk. í framsöguræðu hans á fundi hér í dag. En það vil ég aðeins segja, að sósíalistar munu nú eins og áður standa með verkalýðnum í baráttu hans fyrir því að hrinda þessum árásum, og sósíalistar hafa bent hér á leiðir til að leysa erfiðleika atvinnuveganna án þess að ráðast nokkuð á lífskjör alþýðunnar. Þær leiðir eru fyrst og fremst þær að tryggja framhaldsrekstur bátaútgerðarinnar með því að framkvæma raunverulegan sparnað á rekstrarútgjöldum bátaútvegsins. Þetta er sundurliðað í grg. fyrir frv. okkar sósíalista hér um dýrtíðarráðstafanir, sem alþm. hafa átt kost á að kynna sér, og ég hef ekki orðið var við, að tilraun hafi verið gerð til að hnekkja þeim áætlunum. Niðurstaða þeirra er sú, að með vaxtalækkunum til útgerðarinnar megi spara 15 þús. kr. á meðalbát, 10 þús. kr. með því að lækka vátryggingagjöld vegna útgerðarinnar,með breyttum verzlunarháttum má spara 12 þús. kr. á bát í veiðarfærakaupum, viðhaldskostnað má lækka um 8 þúsund, beitukostnað um 5 þúsund með því að lækka beituverð eins og tök eru á, miðað við hráefnið, sem fyrir hendi er, og loks olíukostnað um 5 þúsund, eða samtals má þannig lækka útgerðarkostnaðinn á hvern meðalbát um 55 þús. kr. Slíkar ráðstafanir mundu hafa í för með sér miklu raunhæfari sparnað á rekstrarútgjöldum útvegsins en frv. stjórnarinnar felur í sér, en bitna þó ekki á neinn hátt á lífskjörum almennings, heldur aðeins draga úr gróða lánsstofnana vegna viðskipta þeirra við bátaútveginn, og draga úr óhæfilegri verzlunarálagningu og gróða þeirra, sem verzla með útgerðarvörur. Þetta yrði tekið af þeim milliliðum, sem koma hér nærri og hafa af því óeðlilegan gróða, en ekki tekið af þeim, sem að framleiðslunni vinna til hagsbóta fyrir þjóðina í heild. Annað ráð til að vinna gegn dýrtíðinni og lækka hana raunverulega er að afnema tolla á nauðsynjavörum, er ganga inn í vísitöluna. Ég skal ekki fara nánar út í þá útreikninga, en samkvæmt þeim reikningi, sem hagstofan hefur gert og ekki hefur verið hnekkt, yrði með því unnt að lækka verðlag, svo að vísitalan lækkaði við það um 20–30 stig. Þriðja höfuðleiðin er að breyta verzlunarskipulaginu, eins og lagt er til í frv. okkar sósíalista, sem ég skal ekki fara að útskýra hér, en aðeins þó taka fram, að það miðar að því að þurrka gersamlega út hinn geysilega milliliðagróða í verzluninni og lækka með því verðlag og þá um leið vísitöluna um önnur 20–30 stig. Alls næmi þá lækkun hennar 50–60 stigum og þýddi auðvitað það, að með því að fara þessa leið yrði engin árás gerð á lífskjör almennings, heldur væri hér aðeins um raunverulega verðlækkun að ræða. Enn fremur mundi þetta breytta fyrirkomulag afla ríkinu allverulegra tekna, svo að það er síður en svo rétt, sem haldið hefur verið hér fram, að tillögur okkur sósíalista miðuðu eingöngu að því að rýra tekjur ríkissjóðs. T.d. mundi tollalækkun verða til að lækka vísitöluna, og það breytta fyrirkomulag mundi þýða mjög auknar tekjur fyrir ríkið.

Ég hef þá rakið að nokkru, hvernig mér virðist, að ákvæði þessa frv., sem hér liggur fyrir, stangist mjög verulega og í raun og veru gersamlega við þann tilgang, sem því er ætlað að hafa samkv. upptalningunni í 1. gr. þessa frv. Ég hef sömuleiðis reynt að sýna fram á, hvernig tilgangur frv. er í raun og veru allt annar, þ.e.a.s. árás á lífskjör fólksins í landinu, og fært að því góð rök. Og ég hef bent á það, að í nokkrum tilvitnunum hæstv. ráðh., sem töluðu hér í gærkvöld, hafi það óneitanlega komið fram, hver hinn raunverulegi tilgangur frv. er, þótt annað sé látið í veðri vaka. — Ég mun því að sjálfsögðu greiða atkv. gegn þessu frv., nema því aðeins að fram nái að ganga þær gagngerðu brtt., sem fluttar eru hér af hv. minni hl. fjhn., þ.e.a.s. hv. 4. landsk. þm. En ég geri ráð fyrir hins vegar, að það sé nú búið að ganga þannig frá hnútunum, að stuðningsflokkar hæstv. ríkisstj. sjái fyrir því, að þær till. nái ekki fram að ganga. Og mun ég þess vegna, eins og ég hef sagt, að sjálfsögðu greiða atkv. gegn þessu frv.

Ég vil að lokum segja það, að þó að hæstv. ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar séu nú að gera — eins og hæstv. dómsmrh. orðaði það –síðustu tilraunina til þess að fá verkalýðinn og launþega í landinu til þess að slá af sínum lífskjörum, þá geri ég ráð fyrir og vona, að sú tilraun muni ekki takast og að þeim raunverulega tilgangi, sem liggur að baki þessu frv. af hálfu hæstv. ríkisstj. og stuðningsflokka hennar, verði ekki náð, jafnvel þó að þetta frv. verði samþ. hér á hæstv. Alþ.