16.03.1948
Neðri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í C-deild Alþingistíðinda. (2601)
121. mál, Reykjavíkurhöfn
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Út af þessari dagskrártill. vildi ég segja það, að hún er nokkuð furðulega samin, þar sem hún byggist á því, að frv. sé samhljóða gildandi 1., en það er ljóst af umr., að í frv. er atriði, sem deilt er um, hvort skuli vera í l. eða ekki, þannig að frv. er alls ekki samhljóða gildandi l.
Hv. þm. Ísaf. virtist undrandi á því, að málið skyldi vera tekið fyrir án þess, að nál. lægi fyrir. En það er nú svo, að liðnir eru um það bil tveir mánuðir síðan málinu var vísað til hv. sjútvn., og ef lýsa ætti undrun á einhverju, þá er það á því, að n. hefur í tvo mánuði vanrækt að skila áliti. Hitt er svo sjálfsagt, að forseti leyfi sér að taka mál á dagskrá, sem n. ætlar að svæfa með því að skila ekki áliti.
Hv. þm. Ísaf. talaði um, að hann vildi ekki veita Reykjavíkurhöfn nein sérréttindi eða forréttindi, en hér er aðeins um það að ræða að taka aftur upp þá reglu, sem gilt hefur í fjöldamörg ár. Þetta er því ekkert nýmæli, heldur á að lagfæra þá réttindasviptingu, sem Reykjavíkurhöfn hefur orðið fyrir. En þegar talað er um forréttindi og sérréttindi, þá má minna á það, að til Reykjavíkurhafnar hefur verið varið milli 22 og 23 millj. kr. og af því hafa aðeins um 400 þús. verið framlag hins opinbera. Hitt hefur verið lagt fram af Reykjavíkurbæ og hafnarsjóði. Hvernig er þetta annars staðar? Hefur nokkur höfn á landinu verið byggð án þess, að mikill hluti byggingarkostnaðar væri greiddur af ríkissjóði? Það skal engan veginn talið eftir, en það er fullkomlega villandi hjá hv. þm. Ísaf., þegar hann talar um að veita Reykjavíkurhöfn sérréttindi, ef á það er litið, að bærinn hefur byggt sína höfn að mestu leyti einn. Ég vil taka það fram, að ég get fallizt á það, að lögveðsheimildin verði sett inn í hin almennu hafnarlög og ef sjútvn. vill á það fallast, eins og mátti skilja á hv. þm. Ísaf. um tíma, þá er vitanlega frá mínu sjónarmiði ástæðulítið að halda þessu frv. áfram, og þá er grundvöllurinn horfinn undan tali hv. þm. Ísaf. um sérréttindi og forréttindi handa Reykjavíkurhöfn. Ég geri ráð fyrir, að frv. um breyt. á hafnarl. komi hingað aftur, og ef þessu frv. verður vísað frá, þá verði ákvæðið um lögveðsréttinn tekið upp við afgreiðslu þeirra laga. Hv. þm. Ísaf. impraði á því, að hann teldi það spilla veðhæfni skipanna, ef lögveðsheimildin fengist sett í l. Þetta er mjög lítið atriði, því að þótt hafnargjöldin séu mikið atriði fyrir höfn, sem hundruð skipa fara um, þá skipta þau ekki miklu máli fyrir hvert skip. Fyrir skipin er það að mörgu leyti til þæginda. að lögveðsheimildin væri tekin upp, og veðhæfni þeirra mundi spillast ákaflega lítið. Skal ég svo ekki fara um þetta fleiri orðum, en ég er undrandi á afstöðu n., og ég held því eindregið fram, að hjá henni sé ekki um hafnar- eða útgerðarsjónarmið að ræða, heldur einhver lánsstofnana- eða bankasjónarmið, og er það kannske ekki svo undarlegt, þar sem form. n. er svo hátt settur í bankamálum þjóðarinnar.