16.03.1948
Neðri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í C-deild Alþingistíðinda. (2605)
121. mál, Reykjavíkurhöfn
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Í fyrstu ræðu minni gat ég um dæmi þess, að Reykjavíkurhöfn hefði tapað á því að hafa ekki lögveðsheimild, og skal ég leggja gögn um það fyrir n. Nú er frv. til l. um breyt. á hafnarl. til meðferðar og langt komið í Ed. og kemur til meðferðar Nd. aftur. Þá er rétt að athuga, hvort hægt sé að setja skýr ákvæði í almenn hafnarlög varðandi þetta. Það er ekki kappsmál, að sérstök ákvæði gildi fyrir Reykjavík. Ég teldi rétt að fá samkomulag um, að atkvgr. yrði frestað. svo að reyna mætti að fá samkomulag um málið.