26.01.1948
Neðri deild: 46. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

128. mál, ullarverksmiðja í Hafnarfirði

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Með frv. þessu er gert ráð fyrir, að ríkið setji á stofn ullarverksmiðju í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir, að þessari væntanlegu verksmiðju verði stjórnað af 5 manna þingkjörinni stjórn og aðrir 5 menn kjörnir til vara, 3 endurskoðendur. einnig þingkjörnir. o. s. frv. Í ákvæði til bráðabirgða, sem fylgir frv., er lagt til, að ríkisstj. verði heimilað að taka lán til framkvæmda samkvæmt lögum þessum allt að 5–6 millj. kr. Ekki hef ég séð það í grg., sem þessu frv. fylgir, hvar eigi að fá þessa peninga að láni.

Ég minnist þess, að nú fyrir nokkrum dögum var rætt hér í þinginu um það, að ríkisstj hefði enn ekki útvegað lán til ræktunarsjóðs, eins og henni bar að gera lögum samkvæmt, og ekki heldur lagt fram fé það, sem lög ákveða, að leggja skuli fram til byggingarsjóðs. Mér finnst, að það væri réttara ef hægt væri að ná í peninga til þess að fullnægja þessum lagafyrirmælum sem þegar er búið að setja, að láta það sitja fyrir eða framkvæma það áður en farið er að samþykkja hér lög um nýjar ríkisstofnanir, sem byggja eigi fyrir lánsfé. Ég fæ heldur ekki séð, að það sé þörf fyrir þetta, að ríkið byggi slíka verksmiðju, vegna þess að nú þegar hafa aðrir aðilar það mál í undirbúningi og er verið að vinna að því að stækka mjög þær ullarverksmiðjur, sem fyrir eru í landinu.

Það mun hafa verið árið 1929, sem S. Í. S. keypti ullarverksmiðjuna Gefjuni á Akureyri. Og eftir að S. Í. S. eignaðist þá verksmiðju, þá voru mjög aukin afköst hennar. Í stríðsbyrjun eða 1939, mun hafa látið nærri að afköst Gefjunar hafi verið orðin fimmfalt meiri heldur en þau voru. þegar S. Í. S. eignaðist verksmiðjuna. Á næstu árum þar á eftir, á stríðsárunum, minnkaði framleiðsla töluvert í þessari verksmiðju, sem stafaði af því, að erfitt reyndist að fá fólk til vinnu í verksmiðjunum. En síðustu árin hefur framleiðslan aukizt þar töluvert aftur, og mun láta nærri, að hún sé nú fjórum sinnum meiri heldur en hún var, þegar S. Í. S. eignaðist þessa verksmiðju. En auk þessa má geta þess, að S. Í. S. hefur nú byrjað á framkvæmdum til stækkunar á þessari verksmiðju til mikilla muna.

Árið 1946 fóru fram viðræður við nýbyggingarráð um nauðsynleg innflutningsleyfi, svo að hægt væri að stækka þessa verksmiðju, og byggingarframkvæmdir eru þegar hafnar hjá þessari verksmiðju á Akureyri.

Ég skal geta þess t. d. að Sambandið hefur fyrir löngu fest kaup á nýtízku ullarþvottavélum, og er gert ráð fyrir, að þær komi til landsins nú í vor, og er þegar byrjað að byggja hús yfir þær. Mun vera hægt að þvo í þeim vélum alla ull landsmanna. Auk þess hefur Sambandið þegar fest kaup á alls konar ullariðnaðarvélum, sem væntanlegar eru til landsins smám saman.

Þær ráðstafanir, sem búið er að gera um framkvæmdir viðvíkjandi stækkun verksmiðjunnar, eru nægilegar til þess, að hægt verður að vinna þar úr allri þeirri ull, sem til fellur. Það er einnig gert ráð fyrir því og undirbúningur hafinn, að það verði hægt að fá viðbótarvélar í þær aðrar verksmiðjur, sem fyrir eru og geta þær þá unnið úr allri ullinni, þó að framleiðslan aukist frá því sem nú er, ef markaðsástæður verða þannig, að það virðist heppilegra að vinna úr ullinni hér heldur en að flytja hana óunna úr landi eins og gert hefur verið áður. Það er rétt að geta þess, að ullarframleiðslan 2 síðustu ár er minni en áður, og munar það miklu. Hins vegar er þess að vænta, að hún aukist aftur, áður en langt um líður.

Með þessu frv., sem hér liggur fyrir, fylgir bréf til flm. um svo kallaða bráðabirgðarekstrar- og kostnaðaráætlun frá Þorvaldi Árnasyni skattstjóra í Hafnarfirði. Segir í grg. frv., að hann sé elzti og fyrsti sérfræðingur okkar Íslendinga á þessu sviði. Ég hef lesið bréfið til flm., og er töluvert af því, sem þar er fram borið, umsögn um einstaka menn og flokka, og fæ ég ekki séð, að sá þáttur sérfræðinnar verði til þess að auka framleiðsluna úr íslenzkri ull. En síðast í þessu erindi frá Þorvaldi Árnasyni segir hann frá því, að nú muni það taka allt upp í 4 ár að fá ullarvélar frá útlöndum, því að eftirspurnin hjá verksmiðjunum, sem framleiða þær, hafi aukizt mikið undanfarið.

Þegar nú þetta er athugað, þá virðist mér ljóst, þó að ríkið hefði peninga til að setja þessa verksmiðju upp og þó að þetta frv. yrði samþ. og síðan farið að eins og segir í grg. og gerð fullkomin áætlun um verksmiðjuna, teikningar af henni, ákveðin niðurröðun véla og síðan pantaðar vélarnar og það tæki upp í 4 ár að fá þær, þá er það langur tími liðinn, að þess er að vænta, að löngu fyrir þann tíma verði Sambandið búið að framkvæma þá stækkun, sem nú er unnið að, þannig að þessi ríkisverksmiðja yrði þá með öllu óþörf.

Það fé, sem þarf til þess að framkvæma þessa stækkun á verksmiðju S.Í.S., mun vera fyrir hendi, og mun ekki þurfa að leita til ríkisins um það. Aðeins þarf að greiða fyrir málinu með því að veita gjaldeyrisleyfi og nauðsynlegar yfirfærslur í sambandi við þessi vélakaup. Er þess að vænta, að fjárhagsráð geri það eftir því, sem möguleikar eru til.

Mér virðist því að þessu athuguðu, að þetta frv. sé að óþörfu fram borið, sem ég geri ráð fyrir, að stafi af því, að flm. hefur ekki kynnt sér málavöxtu, áður en hann flutti frv., eins og hann sagði sjálfur í framsöguræðunni. Það er því ástæðulaust að eyða tíma þingsins til umr. um þetta frv.