26.01.1948
Neðri deild: 46. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í C-deild Alþingistíðinda. (2615)

128. mál, ullarverksmiðja í Hafnarfirði

Hallgrímur Benediktsson:

Herra forseti. Ég skal ekki hafa langt mál um þetta frv., sem hér liggur fyrir.

Ég vil í höfuðdráttum taka undir það, sem hv. þm. V-Húnv. mælti hér, að því þó undanteknu, að mér fannst hann binda um of athugasemdir sínar við Norðurland, því að það er gefinn hlutur, að það verður ekki, svo að vel fari, farið með alla ull í landinu til þvottar eða vinnslu á einn stað. En hann minntist aðeins á, að hér væru tvær verksmiðjur, en það vildi ég skýra nánar.

Önnur ullarverksmiðjan. sem er með elztu verksmiðjum á landinu, Álafossverksmiðjan, mun hafa lagt áherzlu á það einmitt að koma rekstrinum á þann nauðsynlega grundvöll að fá þá beztu þekkingu, hvernig eigi að framleiða efni úr ull. Eftir því, sem ég veit bezt, þá hafa tekizt framkvæmdir á því sviði. Það er Pétur Sigurjónsson, sem hefur einmitt lagt sérstaka stund á að framleiða og koma ullarverksmiðjunni á sem öruggastan grundvöll. Þá er mér kunnugt um, að það standa fyrir dyrum einmitt framkvæmdir í þeirri verksmiðju til þess að geta afkastað meira en áður, og svo mun vera um aðrar verksmiðjur, sem hér eru sunnan lands.

Ég vil halda því fram, að fyrir þinginu liggi ýmis önnur mál, sem fjárstuðning þurfa og frekar ætti að sinna og hefur verið á það minnzt að nokkru. En ég vildi bara ekki láta þessa umr. fara hjá án þess að láta þetta í ljós, þó að það gefist kostur á að ræða það við 2. umr. betur, því að mér fannst koma einmitt fram, að það gæti orðið styrkur þessu frv., ef það hefði átt að flytja ullina til Akureyrar. Því vildi ég benda á tvö fyrirtæki hér, sem leggja áherzlu á að fá vélar og möguleika til þess að auka sínar framkvæmdir á þessu sviði, einmitt hér í námunda við Reykjavík. Ég vildi benda á, að þetta er jafnnauðsynlegt, og mun það koma til athugunar í n., sem fær málið til meðferðar.