29.01.1948
Neðri deild: 48. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í C-deild Alþingistíðinda. (2629)

138. mál, vernd barna og ungmenna

Flm. (Gunnar Thoroddsen) :

Út af ummælum hæstv. menntmrh. um, að ráðuneyti hans hafi til athugunar að taka upp samvinnu milli ríkisins og Reykjavíkurbæjar varðandi upptökuheimili, þá þykir mér mjög vænt um að heyra um þann undirbúning, og að sjálfsögðu er Reykjavíkurbær reiðubúinn til slíkra viðræðna.

Ég sé ekki ástæðu til að fara hér mörgum fleiri orðum um. Ég tel það heppilegt, að sjónarmið beggja aðila hafa komið fram til athugunar fyrir nefndina.

Ég vildi þá aðeins minna á það, að í 36. gr. barnaverndarl. segir, að ríkisstj. skuli, „eftir því sem fé er veitt til þess í fjárl., setja á stofn og reka athugunarstöð eða stöðvar.“ Síðan segir, að á athugunarstöð skuli barnaverndarn. „hvaðanæva af landinu eiga kost á að vista til bráðabirgða börn og ungmenni, sem framið hafa lögbrot eða eru á annan hátt á siðferðislegum glapstigum, og önnur börn, sem skyndilega þarf að ráðstafa um stuttan tíma, unz athugun þeirra er lokið og þeim ráðstafað til frambúðar.“ M. ö. o., hér er því slegið föstu, að það sé ríkisins hlutverk að setja á stofn og reka þessar athugunarstöðvar á sinn kostnað, og um það er vafalaust enginn ágreiningur. En í framkvæmd hefur þetta orðið þannig, að halli hefur orðið á Elliðahvammi í sambandi við athugunarstöðina og upptökuheimilið, þó öllu fremur á því síðara. Hins vegar er kostnaður við dvöl barnanna á þessari athugunarstöð og upptökuheimili svo mikill, að ekki er sanngjarnt að ætlast til, að foreldrar eða aðstandendur greiði þann kostnað að fullu sjálfir. Mín skoðun er sú, að hér sé um nokkurt ósamræmi að ræða, þar sem slíkir aðstandendur greiða allan kostnað, en þeir, sem koma börnunum til frambúðar á slík heimili, þar greiði ríkissjóður kostnaðar.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en vil vænta þess að mega eiga viðræður við n., sem fær þetta mál til meðferðar. Hver sem úrslitin verða, er nauðsynlegt að koma sér niður á fastar og sanngjarnar reglur um stofnun og rekstur bæði upptökuheimila og athugunarstöðva og um dvalarkostnað barnanna, sem þar eru.