18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í C-deild Alþingistíðinda. (2691)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil nú ekki lengja mikið þessar umr., en ég get ekki látið málið fara fram hjá mér án þess að fara um það nokkrum orðum. Mér finnst, að málið sé sótt af æði miklu kappi og eiginlega að sumu leyti af meira kappi en forsjá. Hér er ekki tekið tillit til óskar, sem fram kom um að bíða, þar til flm. brtt., sem er veikur, gæti komið og gert grein fyrir sínu máli. Hér hefur einn hæstv. ráðh. neitað um afbrigði á óvenjulegan hátt fyrir till. Og yfirleitt er málið sótt og flutt á mjög óvenjulegan hátt. Það er komið inn seinustu daga þingsins, og eins og ég sagði áðan, skákað í því skjóli, að það fái ekki þá málsmeðferð og þá gagnrýni sem venja er um flest þingmál. Ég get gengið inn á það út af fyrir sig, að það sé æskilegt, að þessi hljómsveit yrði stofnuð að sumu leyti, en ég get ekki varizt þeirri skoðun, að þetta sé fjárhagslega stærra mál heldur en svo, að ekki sé rétt að eyða í það dálítið meiri tíma til umhugsunar heldur en hér er gert. Hér er lagt til að stofnuð verði ný embætti í tugatali, að vísu ekki á kostnað ríkissjóðs beinlínis, en þó tekið af þeim tekjustofni, sem sameiginlegur er einum at þeim tekjustofnum, sem ríkissjóður notar og fær tekjur úr, svo að segja má, að það sé a. m. k. á óbeinan hátt tekið af ríkissjóði eða skertir þeir tekjumöguleikar, sem hann hefur, með því að gjaldið er tekið á þennan hátt og embættin, sem þarna er stofnað til, eru beinlínis launuð á svipaðan hátt sem um gjald ríkissjóðs væri að ræða.

Það hefði einhvern tíma verið saga til næsta bæjar, að seint um kvöld á Alþ. hafi verið stofnuð 30 ný embætti án þess að fjalla rækilega um það. Ég efa það ekki, að málið er vel þess vert, að það fengi venjulega málsmeðferð, en sé ekki hespað af eins og lagt er til, að gert verði. Um tekjustofn til að standa undir þessu veltur á ýmsu, því að fyrir skömmu var það nú till. flm., að þessara tekna yrði aflað með því að leggja skatt á öll kvikmyndahús landsins, en nú er búið að takmarka það við Reykjavík og Hafnarfjörð. Ég skil ekki, hvers vegna Hafnarfjörður hefur orðið fyrir þeirri náð að lenda í flokki með Reykjavík, því að vísu má svo vera, að skemmtanir séu sóttar á víxl í þessum bæjum, en meiri hl., sem sækir skemmtanir í Hafnarfirði, sækir þær líka í Reykjavík. Ég sé því ekki neina ástæðu til þess, ef endilega á að afgreiða málið á þennan hátt, að Hafnarfjörður sé þar með, og leyfi mér að flytja skrifl. brtt. um. að Hafnarfjörður verði tekinn þar úr.

En ég vil aðeins taka það fram að lokum, að mér finnst málið vera fljótfærnislega afgr. og vera stærra en svo, að því hæfi þessi afgreiðsla sem hér er lagt til, að það fái. Ég held það væri skaðlaust, þótt málið yrði látið bíða til næsta þings og fengi þá einhverja betri afgreiðslu eða úrlausn. En á þessu stigi málsins óska ég eftir, að hæstv. forseti taki við hinni skrifl. brtt. minni við brtt. menntmn.