06.11.1947
Efri deild: 15. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (2715)
62. mál, menntaskólar
(Gísli Jónsson:
) Herra forseti. Út af ummælum hæstv. ráðh., sem hann beindi til n., að rannsaka, hvort ekki ætti að setja inn í menntaskólal. ákvæði, sem bindi það, að Menntaskólinn í Rvík yrði áfram á þeim stað, sem hann nú er, vil ég segja nokkur orð.
Að sjálfsögðu væri það ekki neitt, sem ekki væri hægt að raska síðar, þó að Alþ. setti nú með lagaboði, að eitthvað skuli gera. Það má veita því um á næsta þingi. En ég vildi benda á, að ef þetta ætti að standa í l. langan tíma, þarf það mikillar athugunar við. Vænti ég, að n. leiti þá upplýsinga hjá viðkomandi aðilum, m. a. skipulagsn., hvort hún mundi samþykkja það skipulag, sem koma yrði, ef skólinn ætti að vera áfram á sama stað.
Það eru ekki mjög margar ástæður, sem mæla með því, að skólinn verði framvegis þar, sem hann er nú, en þær eru veigamiklar. Hann er miðbæis, stutt í hann úr mörgum bæjarhlutum. Hin ástæðan er gamlar minningar, sem við skólann eru tengdar, og mér skilst, að það séu aðallega minningar nemenda, sem verið hafa í skólanum, sem valdi því, að þeir halda fram, að skólinn eigi að vera áfram í sama formi og hann er nú.
Það er hægt að finna fjöldamargar ástæður á móti. Ef á að ákveða með l., að skólinn skuli vera áfram á núverandi stað, þá verður að sjá svo um, að ekki verði byggð nema í hæsta lagi tveggja hæða hús nálægt honum, en ef á að byggja nálægt honum 6 hæða hús, þá verður þetta skólahús að fara, hvað sem öðru líður. Við skulum hugsa okkur, að það ætti að byggja 6 hæða hús frá Bankastræti að Amtmannsstíg og fyrir sunnan Bókhlöðustíg. Þá setur þetta skólahús ekki lengur þann svip á bæinn, sem það setur á hann nú 1 dag. Það verður því að sjá um, að ekki verði byggð þarna stórhýsi sem yfirgnæfa skólann.
Þá er annað atriði, sem ég hygg, að menn reki sig á, ef farið er að ræða málið við yngri menn, að þeir sjá þennan gífurlega mismun, sem er á þægindum á menntaskólanum eins og hann er nú og öðrum skólum, sem nú er verið að reisa. Ég veit ekki, hvort þyngra er á voginni hjá þeim, hinar gömlu minningar þessa skóla eða þægindin, sem þeir fara þar á mis við. Ég segi þetta ekki af því, að ég vilji rífa þennan skóla og byggja þetta skólabákn, sem talað hefur verið um. En ef á að lögbinda, að skólinn verði þarna um aldur og ævi, þá má vel benda á þetta.
Í sambandi við það, hvort byggja eigi annan menntaskóla, þá er ég því sammála. Ég tel, að hægt sé að gera það með hliðsjón af þörfinni og síðan sé þessi skóli notaður svo lengi sem tiltækilegt er að hafa hann sem slíkan og ekki þarf að kosta svo miklu upp á hann, að það sé ekki rétt kostnaðar vegna. Ég hygg, að réttast væri að byggja skólann í austurbænum. t. d. á Skólavörðuhæð, eða þá þar, sem mér sýnist skemmtilegast, undir Öskjuhlíð vestanverðri, á móti háskólanum, svo að þessar tvær menntastofnanir standi þar hvor gagnvart annarri. Þá kemur einnig mjög til greina þriðji staðurinn, en það er gamla sjómannaskólalóðin, en nú er búið að koma þar upp skóla með 2–3 bekkjum. Það er spurning, hvort það veiði ekki lausnin að byggja skólann þar.
Í sambandi við frv. sjálft vil ég skjóta því til hv. flm. og n., hvort ekki væri eðlilegra að láta gagnfræðaskólana útskrifa fjórða bekkjar nemendur. Mér skilst, að ef setja á menntaskóla, eins og ráðgert er í þessu frv., verði þeir bæði gagnfræðaskólar og menntaskólar, nema þeim sé ætlað að vera sérstakir menntaskólar. (HV: Alveg sérstakir). Þá eru komnir tveir slíkir skólar á þessum stöðum, og spurningin er, hvað það er mikill ávinningur. Það gæti verið meiri ávinningur að bæta við tveimur bekkjum, sem gætu tekið við, líkt og nú er á Laugarvatni. Þá gætu þeir tekið við nemendum, sem vildu halda áfram, en fengju ekki inngöngu í Rvík. Ég held, að það væri eðlileg lausn á málinu fyrst til að byrja með. Kerfinu hefur verið breytt þannig. að menntaskólinn tekur nú ekki nema 2 fyrstu bekki eldri nemenda frá landsprófi og ætlazt til, að hann verði 4 ára skóli, og er þá ekki óeðlilegt, að slíkur skóli á Ísafirði og Eiðum fengi skilyrði til þess að láta nemendur sína halda þar áfram, eins og nú er gert á Laugarvatni, og taka 3. og 4. bekk þaðan og ganga þá sem úrval upp í menntaskólann. Þá er hér ekki nema tveggja ára dvöl í staðinn fyrir fjögurra, og það ætti að geta verið millistig um það, að öðrum verkefnum væri mætt en eingöngu því að tryggja skóla í öllum landsfjórðungum.
Ég vil svo segja hv. 1. landsk. (SÁÓ) það, að mín skoðun er sú, að bezta útgerðin sé að mennta fólkið. Ég álít, að stúdentsmenntun sé ekki annað en nauðsynlegur undirbúningsskóli fyrir alla þá, sem ætla sér að verða eitthvað annað en verkamenn. Hitt er svo annað atriði, að við verðum að gæta að því á hverjum tíma, að hægt sé að bera slíkt uppi fjárhagslega, og þar ber að taka til athugunar, hvort er dýrara að hjálpa fólki á sínum stöðum heima fyrir eða senda það að heiman, því að það er líka kostnaður að senda það til annarra staða til þess að læra. Tel ég því til athugunar að fara þessa leið, þar sem hægt væri að mætast á miðri leið og gera þessa skóla svo úr garði, að þeir gætu haldið áfram að kenna meira en tveimur bekkjum.