06.11.1947
Efri deild: 15. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í C-deild Alþingistíðinda. (2719)
62. mál, menntaskólar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Út af svari hv. flm. við spurningu minni um, hvort ekki mætti bæta tveimur árum við skólana á Ísafirði og á Eiðum, þá vil ég segja það, að fordæmið er þegar gefið á Laugarvatni. Annars vænti ég, að n. athugi þetta gaumgæfilega.
Út af ræðu hæstv. dómsmrh. vil ég segja, að okkur ber ekki svo mikið á milli um það, hvar menntaskólinn í Rvík á að standa. Hann taldi upp kosti og ókosti, hæstv. ráðh. lagði aðaláherzluna á minningarnar, sem tengdar væru við skólann. En ég er viss um, að ef fara á að byggja sex hæða hús sitt hvorum megin við skólahúsið, þá hverfur hann fyrr en hæstv. dómsmrh. óskar. — En okkur ber mikið á milli um það, hvort ýta eigi undir menn að verða stúdentar í landinu. Hann sagði það sannarlega óþarfa, að menn gengju í skóla undir stúdentspróf nema þeir ætluðu sér að fara í einhvern ákveðinn starfa, sem sú menntun gæfi tilefni til. Ég vil benda hæstv. dómsmrh. á að hann er allt of gamaldags í þessu. Það er enginn óþarfi að njóta góðrar menntunar. Ég tel stórkostlega bót að því, að sem flestir og úr sem flestum stéttum gætu orðið stúdentar. Það er vitað, að ungt fólk meðal þjóðarinnar — til 16 ára aldurs og jafnvel lengur, allt til 18 og 19 ára aldurs — hefur ekki alltaf í annað hús að venda en að ganga í skóla. Auk þess eru þeir unglingar, sem fara í skólana, hálft árið í atvinnulífinu, sem er bæði þeim og atvinnulífinu til stórbóta. Það er alls ekki ætlazt til þess, að þessir menn stundi bóknám allt sitt líf. Ef þeir hætta námi að stúdentsprófi loknu, eru þeir miklu færari að standa í lífsbaráttunni með þessa menntun að baki, hvert svo sem starf þeirra kann að verða. Af skipstjórum er t. d. krafizt þekkingar, sem ekki er ýkja fjarri þeirri menntun, sem krafizt er til stúdentsprófs. Það er enginn skaði að hafa stúdentsmenntun,þótt ekki sé farið lengra.
Ég vænti þess, að n. taki þetta til athugunar. Það eru ýmis önnur atriði, sem ég þarf að ræða, en samkvæmt ósk forseta skal ég ekki fara inn á það nú. Væntanlega gefst tími til þess að athuga það.