01.03.1948
Efri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í C-deild Alþingistíðinda. (2733)

62. mál, menntaskólar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Mér þykir rétt að gera grein fyrir afstöðu minni í þessu máli. Ég vil byrja á því að gera aths. við meðferð málsins, því að hún virðist vera harla einkennileg. Málið kom til menntmn. Ed. þann 6. nóv. s. l. Nú er búið að útbýta frá n. áliti, þar sem afstaða er tekin með þessu máli, þó að upplýst sé, að 2. þm. Árn. sé á móti málinu og 1. þm. Reykv. hafi ekki tekið þátt í afgreiðslu þess. Það má kannske segja, að þetta skipti ekki miklu máli, en það virðist þó harla einkennilegt að senda málið til umsagnar og láta ekki fylgja því nein skjöl, svo að þm. gætu kynnt sér málið, en gefa þess í stað út nauðaómerkilegt nál. En svo kemur einn nm. með langa ræðu, þar sem hann mælir mjög fast með málinu, og það verður ekki annað skilið en að hinir nm. hafi drattazt með til þess að hefta ekki hinn brennandi áhuga hv. 3. landsk.

Þegar rætt er um byggingu nýrra menntaskóla, þá er fyrsta atriðið að vita, hvort við þurfum á þeim að halda, en um það kom ekkert fram í fyrirlestri hv. 3. landsk., heldur lagði hann áherzlu á, að skólum yrði dreift um landið. Það hefði verið æskilegra að fá upplýsingar frá fræðslumálaráðherra, hvort raunverulega væri æskilegt, að fleiri gengju háskólabrautina. En hvorki ráðh. né fræðslumálastjóri hafa látið neitt í ljós um þetta mál, þó að þeir beri í raun og veru ábyrgð þessara mála. Ef þetta mál væri vandlega undirbúið og rannsókn hefði leitt í ljós, að nauðsyn væri að fjölga menntaskólum, þá hefði málið horft allt öðruvísi við. En ég segi fyrir mig, að ég er ekki dómbær á það. Þó að allir séu sammála um, að það sé nauðsynlegt að mennta þjóðina, þá verður bara spurningin sú, hvort rétt er, að sú menntun fari fram sem menntaskólanám og háskólanám eða með einhverjum öðrum hætti. Um hitt atriðið, það er að segja staðsetningu skólanna, ef þeir væru taldir heppilegir og nauðsynlegir, er ég algerlega ósammála frv. Ég tel það t. d. alveg vanhugsað atriði að staðsetja slíkan skóla á Ísafirði, þó að reisa ætti skóla fyrir Vestfirðingafjórðung. Reykjanes væri miklu heppilegri staður. Ísafjörður hefur engin skilyrði upp á að bjóða. Þar er ekkert landrými og ekki einu sinni hægt að fá mjólk. Staðurinn er fyrst og fremst fiskiþorp, og þess vegna teldi ég miklu nær að reisa þar fiskiðjuver, eins og rætt var um í fyrra, eða grútarbræðslu, en sízt af öllu ætti að byggja menntaskóla. Um Eiða er það að segja, að ég fæ ekki séð, að það sé heppilegt að reisa þar menntaskóla nú, meðan samgönguerfiðleikar eru jafnmiklir þar eystra og nú er, en auk þess hljóta öll skilyrði að vera margfalt erfiðari á slíkum stöðum. Ég held, að skólarnir verði að rísa þar, sem skilyrðin eru bezt og auðveldast er að búa skólann sem bezt úr garði, því að nemendurnir verða alltaf að fara að heiman alveg eins, þó að skóli væri á Ísafirði eða Eiðum, og þá verður aðalatriðið, að vel sé búið að skólanum og nemendunum. Þá má benda á, að við háskólann er fjöldi nemenda utan af landsbyggðinni. Það hafa risið upp stúdentagarðar fyrir þessa nemendur, og þessi skólaheimili hafa gefist vel, svo að það eru margir, sem jafnvel vildu heldur búa þar en heima hjá sér í bænum. Þar er ódýr húsaleiga og góð aðbúð. Slík heimili þarf að reisa við skólana, og þá verður ekki lengur talið mikilvægt atriði, hvar þeir standa, í sambandi við þá hlið málsins. Ég hygg, að ef það yrði ákveðið að bæta við einum skóla í sveit, gæti komið til álita að setja hann á einhvern þeirra staða, sem tengdar eru við sögulegar minningar. Á ég þar við Skálholt eða Hóla, en auk þess mætti nefna Rafnseyri. Hins vegar er sennilegt, að á slíkan stað yrði mjög erfitt að fá kennara.

Annars er ég undrandi yfir, að 1. þm. Eyf. skuli fylgja þessu frv. án fyrirvara. Ég minnist þess, að hann hefur mjög ráðizt á eyðslusemi fyrrv. stjórnar, og ég veit ekki betur en miðstjórn flokks hans hafi nú gefið út nýja vasabók til þess að skýra frá, hversu illa hafi verið farið með fé landsmanna. En það er einmitt ein aðalfjárfesting fjárhagsráðs nú, sem fer til fræðslumálanna. T. d. á að verja nálega 17 millj. kr. til skólabygginga 1948, á meðan ekki eru áætlaðar nema 14,4 millj. til vega, en það er svipuð upphæð og varið var til viðhalds s. l. ár. Þetta framlag til skólabygginga núna er afleiðing af stjórn Ólafs Thors, sem þessi þm. sleppir engu tækifæri til að svívirða fyrir óhóf og eyðslusemi, en svo leggur hann bara sjálfur til, að byggðir verði bara hvorki meira né minna en þrír menntaskólar til viðbótar. Það virðist vera dálítið einkennilegt samræmi í þessu. Og þetta er ein af ástæðunum fyrir því, að víkja verður burt nauðsynlegum framkvæmdum við hafnargerðir og vegaframkvæmdir í landinu, að það verði að láta ganga fyrir að uppfylla þessi lagafyrirmæli. Svo er komið fram hér með nýjar till. um, að haldið verði miklu stór stígar áfram á þessari braut, þannig að ekki verði tveir menntaskólar í landinu, heldur fimm. Svo eru þessir menn með iðnskóla í sveitum á stefnuskrá sinni, sem mundi kosta nokkrar milljónir. Mér finnst nokkuð mikið búið milli orða og athafna hjá þessum ágætu mönnum. Ég verð að segja það.

Ég mun því ekki greiða þessu máli atkv. Ég mun greiða atkv. á móti brtt. þegar við þessa umr. Ég mun einnig greiða atkv. á móti frv. sjálfu, vegna þess að ég tel, að það séu ýmis önnur þörf landsmál, sem séu meir aðkallandi en þær skálabyggingar, sem hér er um að ræða. Þær kunna að vera aðkallandi. En ég tel aðrar framkvæmdir miklu meir aðkallandi. Að vísu stendur hér í 2. gr. frv., að þetta skuli gert jafnóðum og fé er veitt til þess á fjárl. Þetta á að réttlæta það, að slík fjarstæða, sem hér er á ferð, sé samþ. En ég tel það ekki vera alveg öruggt til þess, að ekki yrði veitt fé til þessara hluta á fjárl. Því að ef ég þekki þessa menn rétt, sem eru með þessu máli, þá yrði þeim ekkert flökurt af því að koma sér saman um að samþ. einhverja upphæð á fjárl., til þess að hægt væri að byrja á að byggja slíka skóla.