03.03.1948
Efri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í C-deild Alþingistíðinda. (2735)

62. mál, menntaskólar

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa langt mál mitt, bæði vegna þess, að hv. form. n. og hv. 3. landsk. þm. hafa svarað mestu af því, sem fram hefur komið í málinu.

Hv. þm. Barð. taldi nál. frá n. um þetta mál ómerkilegt og sagði, að það væri ekki frá allri n., heldur aðeins meiri hl. hennar. Til að svara því vildi ég bæta því við það, sem hv. 1. þm. Eyf. hefur sagt, að ég sýndi hv. 2. þm. Árn. nál., áður en það fór í prentun, og spurði hann, hvort hann vildi skrifa undir það með fyrirvara, sem hefði verið eðlileg afstaða hans til þess, ef hann hefði kært sig um. Hins vegar stendur hér greinilega í nál., að einn nm. var fjarstaddur, þegar málið var afgreitt, og hafði óbundnar hendur um afstöðu í málinu. Og þótt ég hafi ekki verið lengi á þingi, þá veit ég, að nákvæmlega sams konar afgreiðsla er algeng á málum undir svipuðum kringumstæðum.

Þá var sami hv. þm. að tala um, að það skorti mjög á að menn gætu áttað sig á málinu af nál., af því að ekki væru prentuð með nál. skjöl, sem n. bárust. Ég skal játa, að nál. er stutt. Og ef sérstakar ástæður hefðu ekki verið fyrir hendi, þegar ég flutti mína framsöguræðu, hefði ég gert meiri grein fyrir málinu í þeirri ræðu. En hins vegar hefur hv. 3. landsk. þm. tekið af mér ómakið hvað það snertir, svo að þar er litlu við að bæta, en þó vildi ég víkja nokkuð að málinu sjálfu.

Það er dregið í efa hér, að þörf sé á fleiri menntaskólum í landinu, og ástæðan fyrir því er sú, að talið er, að stúdentar séu kannske orðnir of margir í landinu, og geti verið vafasamt, hve mikla áherzlu skuli leggja á það, að margt fólk nái háskólaprófi, eins og hv. þm. Barð. orðaði það. Ég leyfi mér í þessu sambandi að benda á, að fyrir einum 20 árum síðan þótti mjög æskilegt fyrir ungt fólk, sem aðstöðu hafði til þess, að ljúka gagnfræðanámi. Þá var gagnfræðamenntun álitin mjög æskileg menntun fyrir hvern mann, sem ætlaði sér yfirleitt að taka þátt í einhvers konar störfum, sem kröfðust meiri þekkingar en aðeins líkamleg vinna. Síðan hafa orðið mjög miklar breytingar. Það má fullyrða, að gagnfræðanám, sem þá þótti mjög gott, er ekki að sama skapi jafnfullnægjandi lokatakmark nú. Og ég ætla, að ég fari ekki með fleipur, þó að ég fullyrði, að það líður ekki langur tími, þangað til jöfn nauðsyn þykir fyrir slíkt fólk að ljúka menntaskólanámi eins og þótti fyrir um 20 árum síðan að ljúka gagnfræðanámi. Þjóðlíf okkar er að breytast svo, að það eru gerðar meiri og meiri kröfur til fjölda fólks hvað þekkingu snertir, enda þótt það sé ekki þar með sagt, að þeir, sem ljúka menntaskólanámi, þurfi nærri allir að fara á háskóla á eftir. Enn fremur virðist, eins og ástatt er nú hjá okkur, að það fari fjarri því, að stúdentaframleiðsla sé hér of mikil. Og ég vil benda á, að það vantar hjá okkur tilfinnanlega menn með faglega þekkingu, til dæmis verkfræðiþekkingu, og er það sérstaklega áberandi viðkomandi þeirri breyt., sem er að verða á atvinnulífi þjóðarinnar. Og á næstu árum þarf að fjölga mjög nemendum við verkfræðinám. Og þegar á það er litið, sýnist vera mikil ástæða til að örva aðsókn að menntaskólanámi, vegna þess að hér sé beinlínis um nauðsyn að ræða, einnig hvað þetta snertir, sem ég gat um. — Enn fremur vil ég benda á það, að það er rétt, sem komið hefur fram hjá öðrum hv. þm., sem talað hafa hér í þessu máli, að það þarf auðvitað að gæta þess vel í sambandi við fjölgun menntaskóla, að til sé nægilegt af góðu kennaraliði. En einmitt það kennaralið verður ekki skapað öðruvísi en með því að tryggja, að nægilega margir nemendur gangi á menntaskóla og háskóla líka. Þetta vildi ég segja um þessa hlið málsins.

Þá vildi ég undirstrika það, sem ég reyndar lagði sérstaka áherzlu á í framsöguræðu minni við 1. umr., sem komið hefur fram af gögnum, sem n. hefur fengið, að mjög mikill munur er á aðsókn að menntaskólum úr ýmsum héruðum landsins, og um það virðist mjög miklu ráða staðsetning skólanna. Að vísu viðurkenni ég það, sem hv. þm. Barð. talaði um, að nokkur bót væri ráðin í þessu efni, ef við menntaskólann hér í Rvík kæmi góð heimavist. En ég tel það samt ekki fullnægjandi bót í þessu efni. Það er mjög áberandi nú, að fólk utan af landi, sem langar til að koma börnum sínum til mennta, flytur til Rvíkur til þess að stunda atvinnu hér til þess að eiga hægra með að láta börn sín stunda skólanám. Þó að e. t. v. mætti ráða einhverja bót á í þessu efni með því að byggja heimavistir, þá tel ég það ekki fullnægjandi bót, og þess vegna sé nauðsynlegt að fjölga menntaskólum þannig, að einn verði í hverjum landsfjórðungi.

Hv. 1. þm. Eyf. benti réttilega á það, að með sömu rökum væri nú mælt á móti þessu frv. og flutt hefðu verið fram á Alþ., þegar um stofnun Menntaskólans á Akureyri var að ræða hér á þingi. Ég hef litið yfir þær umr. og vil undirstrika, að þetta er rétt. Og reynslan hefur orðið sú, að þessi mótmæli hafa ekki haft við rök að styðjast.

Hv. þm. Barð. (GJ) var að minnast á það, að enda þótt það kæmi til mála að byggja fleiri menntaskóla, mundi staðsetning þeirra eins og fram kæmi í frv. vera á röngum grundvelli byggð, og taldi réttara að byggja slíkan skóla vestur á Reykjanesi en Ísafirði. Ég býst við, að hv. 3. landsk. þm. (HV) taki þetta til frekari athugunar, en ég hygg réttara að byggja menntaskóla á Ísafirði og læt þar með útrætt um það atriði.

Í sambandi við þetta mál vil ég sérstaklega minnast á Austurland. Á Eiðum er nú fjölsóttur gagnfræðaskóli, og hefur þessi staður verið menntasetur allt síðan búnaðarskóli var stofnaður þar árið 1880. Og þótt allmargir kaupstaðir eða bæir séu á Austurlandi, hygg ég, að Austfirðingar mundu ekki hvað sízt kjósa, ef ákveðið yrði að reisa menntaskóla á Austurlandi, að hann yrði á Eiðum. Þá álít ég, að við uppbyggingu menntaskóla á Austurlandi ætti að hafa sömu aðferð og notuð var við að koma á fót menntaskóla á Akureyri, sem sé að byrja á framhaldskennslu og síðan auka við hana, eftir því sem ástæður leyfa, því að ég álít hentugra fyrir þá unglinga, sem eiga ekki hægt um vik með að sækja nám til Rvíkur eða langar leiðir, að eiga þess kost að menntast nærri heimkynnum sínum og fá síðan að ganga upp eftir því, sem ástæður leyfðu og þörf væri á.

Hv. 2. þm. Árn. (EE) lýsti þeirri afstöðu sinni hér, sem okkur var ekki kunn frá störfum hans í n., að hann mundi ef til vill koma fram með brtt. við frv. við 3. umr., er fjallaði um það, að næsti menntaskóli yrði reistur í sveit á Suðurlandi. Ég býst við því, að ég og aðrir hv. þm. séum sammála um það, að rétt sé að stefna að því, að menntaskóli verði reistur í sveit, til þess að þeir nemendur, sem kjósa heldur að stunda menntaskólanám sitt þar, eigi þess kost, en vil leyfa mér að benda á í sambandi við afstöðu hv. 2. þm. Árn., að nú þegar er hafin framhaldskennsla á Laugarvatni og því ekki sérstök ástæða til að reisa menntaskóla í sveit í nágrenni Rvíkur, heldur einmitt annars staðar á landinu, þar sem nemendur eiga erfiðara með að sækja nám til Rvíkur en úr þessu næsta nágrenni hennar.

Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, nema eitthvað sérstakt komi fram, sem gefur mér ástæðu til að taka til máls síðar.