02.03.1948
Efri deild: 72. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í C-deild Alþingistíðinda. (2738)
62. mál, menntaskólar
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Þegar ég í gær ræddi um seinagang þann, sem verið hefur á afgreiðslu þessa máls hér, rakti ég það samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu þingsins. Ég hélt, að ég hefði ekki skellt skuldinni á hæstv. forseta, eða hann sem formann menntmn., enda er það fjarri mér að segja, að hann eigi sök á þessu. Ég get þvert á móti sérstaklega tekið það fram, að hann hefur boðað á milli 10 og 20 fundi í n., en án árangurs, þar eð ekki hafa komið nema tveir og þrír á fund. (GJ: Ræðumaður kom ekki sjálfur á nefndarfund í morgun.) Ég hygg, að það sé eini nefndarfundurinn, sem ég hef ekki mætt á. Nei, sökina á því, hvernig þetta mál hefur þvælzt, eiga þeir, sem ekki hafa fengizt til að mæta á fundum, og svo mun vera um fleiri mál, sem forseta er kennt um, að hann dragi að taka fyrir. Ég kann alltaf bezt við þá andstæðinga, sem ganga beint framan að mönnum og málum, en ekki þá, sem svíkjast frá störfum heilt þing til að drepa mál.
Ég skal þá víkja að ræðu hv. 4. landsk. (BrB). Hann tjáði sig hreinlega vera andstæðing þessa máls, og hef ég ekkert við það að athuga í sjálfu sér, hann um það. Hann ræddi síðan nokkur efnisatriði, og kem ég nú að því. Hann taldi, að ýmsum málum lægi meira á en þessu, og hv. þm. Barð. sagði eitthvað svipað. Auðvitað get ég ekki, sem er annar af flm. þessa frv. vitað, í hvaða röð málin eru í heila þessara hv. þm. En það stendur hvergi skrifað, — það get ég sagt, — að þetta mál skuli vera númer eitt á framkvæmdaskrá ríkisins. Það er hreint og beint gefið í vald fjárveitingavaldinu á hverjum tíma, hvenær ráðizt skuli í framkvæmdir þær, sem hér um ræðir. Það er aðeins ákveðið, að menntaskóli skuli vera í hverjum fjórðungi.
Hv. 4. landsk. taldi rangt að stofna fleiri og smærri skóla, aðallega smærri, og talaði einkum um kennaravandræði í því sambandi. Góðir sérkennarar hefðu ekki nóg að starfa á stöðum úti á landi, og kraftar þeirra nýttust ekki eins vel og þyrfti. Það er rétt, að það þarf úrvalskennara í tungumálum, stærðfræði, íslenzku og fleiri greinum við slíka skóla. En á Ísafirði og Eiðum, og ef menntaskóli á Suðurlandi yrði stofnaður á Laugarvatni, er of litlu starfssviði ekki til að dreifa, því að á öllum þessum stöðum eru skólar fyrir, sem hafa fulla þörf fyrir þá starfsgetu góðra kennara, sem afgangs kynni að verða frá menntaskólunum á þessum stöðum. Væri t. d. afburðamaður kennari í íslenzkum fræðum á Ísafirði við menntaskóla þar, þá er gagnfræðaskóli við hliðina og nemendur í honum hátt á þriðja hundrað að tölu, svo að nóg væri fyrir þann kennara að gera. Alveg hið sama yrði á Laugarvatni, og eins á Eiðum, þar sem héraðs- og menntaskóli væru hlið við hlið. Þessi mótbára, um að starfskraftar kennaranna nýttust ekki til fulls, er því ekki á rökum reist.
Þá benti hv. 4. landsk. á, að erfitt mundi verða að útvega þessum stöðum góða kennslukrafta, og verra en í Rvík, en reynslan bendir ekki sérstaklega í þá átt, samanber t. d. Menntaskólann á Akureyri. Ég ætla ekki að fara í neinn mannjöfnuð, en ég hygg, að það sé almennt álitið, að þar séu ekki verri kennslukraftar en í Rvík. Og við gagnfræðaskólann á Ísafirði held ég, að séu sambærilegir kennslukraftar við aðra sams konar skóla. t. d. í Rvík, þar sem aðdráttaraflið á að vera mest. Ég hygg, að kennarar við Menntaskólann í Rvík séu rétt upp og ofan að „kvaliteti,“ eins og kennarar úti um land. Þeir geta verið stórmisheppnaðir menn þar eins og annars staðar, jafnvel kennarar í aðalfögum. Ég geri því ekki upp á milli í þessum efnum. Það fer mest eftir því,hvernig forráðamönnum skólanna tekst um útvegun góðra kennslukrafta, og það tekst oftast nær,ef vel er unnið.
Þá er það kostnaðarhliðin. Ég tók ekki eftir því, að hv. 4. landsk. reiknaði það út, að ódýrara yrði að færa út kvíar menntaskólans í Rvík en reisa menntaskóla í öðrum landsfjórðungum, enda væri erfitt að fá þá útkomu á dæminu. Ef farin verður sú leið, sem mér finnst liggja í loftinu, að nota gamla menntaskólahúsið í Rvík lengi enn þá sem skólahús, þá fer ekki hjá því, að kosta yrði verulegu fé til þess, þó vonandi ekki eins miklu og til Bessastaðastofu og Bessastaðakirkju, er mun skipta milljónum. Í öðru lagi þyrfti að byggja einhver ný hús og breyta öðrum. t. d. húsi K.F.U.M., ef það yrði keypt og notað til kennslu. Og það er upplýst, að lóðin umhverfis skólann, með þeim hússkrokkum, sem á henni standa og eru í eigu einstaklinga, mundi kosta 5 til 6 millj. kr. Og svo ætti að kveða í kútinn hugmyndina um menntaskóla á Austurlandi og Vestfjörðum og láta Rvík taka við nemendum úr þessum fjórðungum að hálfu móti Akureyri, og mundi þá að því reka, að byggður yrði nýr menntaskóli hér, ekki sízt, ef reist væri hér stórt heimavistarhús, eins og hv. þm. taldi sjálfsagt og mest aðkallandi í öllum þessum málum. Ég veit, að kostnaðurinn við slíkar ráðstafanir í Rvík yrði margfaldur á við það að leysa þetta spursmál með tveimur smærri menntaskálum úti á landi og tiltölulega litlum á við skóla hér.
Hér í menntaskólanum eru nú um 460 nemendur, en 500 mun vera hámarkið, og er því að því komið að reisa hér nýjan skóla, ef ekkert er að gert. Nú er verið að leggja niður gagnfræðadeildina við menntaskólann í Rvík, og rýmkast þá í skólanum sem svarar tveimur bekkjum. Ef nú væru reistir menntaskólar á Eiðum og Ísafirði á meðan verið er að fylla upp í þá rýmkun, gæfist Reykvíkingum tóm til þess á meðan að rífast hér um þetta mál, menntaskólamál sitt, ef það yrði þá ekki allt í hönk eins og í menntaskólaleiknum núna. En það ynnist sem sagt tími til að rífast um málið og athuga það. Kostnaðarhliðin er á þá lund, að hún er ekki Reykjavíkur-skólabákni í hag.
Mér skildist, að hv. 4. landsk. væri því meðmæltur, að fyrr eða síðar yrði reistur menntaskóli í sveit, og þá talaði hann ekki um kennaravandræðin, sem eru orsök til þess, að hann er á móti menntaskóla á Ísafirði, þó að þar sé skóli með viðbótarkennslukröftum annars vegar og með viðbótarverksviði fyrir fasta kennara við menntaskólann hins vegar. Meira að segja kom hv. þm. Barð. nú inn á þá hugmynd, að héraðsskólarnir allir færu nú að bæta við sig smátt og smátt bekkjum menntaskóla og halda þannig áfram, unz að því kæmi, að unnt yrði að ljúka stúdentsprófi við þá heima í héraði. Hvað segja menn um nýtingu kennslukraftanna í þessu sambandi? Í 300 manna héraðsskóla væru kannske 15 nemendur í framhalds- eða menntaskólanámi og 3–5 í 100 manna skóla hjá þeim kennurum, sem ættu að heita menntaskólakennarar. Þetta væri hin ópraktískasta meðferð kennslukrafta, sem hægt væri að hugsa sér. Auk þess vil ég benda á, að ef erfitt er að útvega kennara til reglulegra menntaskóla úti á landi, hversu erfitt yrði þá ekki að útvega hæfa kennara að þessum fámennu menntadeildum, þar sem menntaskólakennslan væri beinlínis aukahlutverk? Það yrðu fyrst vandræði að eiga við það og óhyggileg sóun á kennslukröftum á fáeina nemendur, eða að góðir kennarar fengjust beinlínis ekki til starfsins. Nei, ég held, að í framkvæmd yrðu þeir agnúar á þessari hugmynd, að hún komi ekki til greina.
Með nýju fræðslulögunum var áreiðanlega meginhugsunin sú að gefa gáfuðum unglingum, hvar sem þeir eru á landinu, færi á að njóta gáfna sinna og krafta, og fyrir því er vel séð í l. allt fram að miðskólaprófi. En þegar því er lokið, verður unglingurinn að hafa getu til að ráðstafa sér til framhaldsnáms í Rvík eða á Akureyri. Ef hann ætlar til Rvíkur, hvað kostar það hann? Ekki minna en 8–10 þús. kr. yfir veturinn. (GJ: Hvað kostar það á Ísafirði?). Þar hefur þetta ekki komið til greina enn þá. m. a. vegna þess, að hv. þm. Barð. hefur verið á móti því að reyna það, en þeir sem komast þar til náms, gera það oftast í skjóli skyldmenna og kunningsskapar, en þá aðstöðu hafa þeir ekki í Rvík yfirleitt. Kunningsskapar- og fjölskylduböndin eru af eðlilegum ástæðum nánari innan hvers fjórðungs en úti í frá. Sú aðstaða auðveldar námssóknina að geta komið börnum sínum fyrir hjá kunningjum og skyldfólki, og það sannast hvarvetna, að úr næsta nágrenni skólanna er námssóknin alltaf mest, og þetta er vel skiljanlegt. Þessi aðstaða mundi notast miklu betur fyrir Vestfirði t. d., ef menntaskóli væri á Ísafirði. Í gagnfræðaskólanum þar eru nú upp undir 300 nemendur. Um 20% af þeim eru víðs vegar af Vestfjörðum. og nokkrir lengra að komnir, flestir gegnum kunningsskaparsambönd.
Ég held, að það bezta, sem felst í nýju skólalöggjöfinni, sem hv. 4. landsk. á mestan heiðurinn af sem fyrrv. menntmrh., sé það, að mönnum er gert sem jafnast undir höfði um aðstöðu til að ná miðskólaprófi og öðlast rétt til að setjast í menntaskóla. En ef gera á aðstöðuna sem jafnasta áfram til stúdentsprófs, þá er ekki önnur leið fær en að stofna litla menntaskóla í hverjum landsfjórðungi, og mér er það óskiljanlegt, hví ekki á að fylgja anda löggjafarinnar áfram til stúdentsprófs, og fæ ekki skilið, að hv. 4. landsk. geti verið á móti því á eftir því, sem á undan er gengið. Það kom mér alveg á óvart og er alveg í mótsögn við hans fyrri aðgerðir í þessu máli.
Það er nú alger óþarfi að svara þeirri ræðu, sem hv. þm. Barð. (GJ) hélt hér í gær. Af mörgum fáránlegum ræðum, sem ég hef heyrt hann flytja hér í þessari hv. d., var ræða hans í gær langfáránlegust. Hann hafði allt á hornum sér. Nál. var svo ófullkomið og stutt. Frsm. hafði haldið svo stutta framsöguræðu. Annar maður hafði haldið of langa og ýtarlega ræðu um málið og hafði komið með upplýsingar, sem ekki voru í nál. Hvernig ætli það sé annars? Ætli allar upplýsingar, sem koma fram við umr. um mál, verði að koma fram í nál.? Skyldu allar upplýsingar, sem hv. þm. Barð. (GJ) hefur í hinum löngu ræðum sínum, koma fram í þeim nál., sem hann gefur út? Ég held ekki. Það yrði þá aðeins lengd á þeim nál., því að einhverjar upplýsingar hljóta þó að slæðast með í hinum löngu ræðum hv. þm. Barð., sem samanlagt munu vera jafnlangar og ræður allra annarra dm. til samans. Hann hafði allt á hornum sér. Allt var öðruvísi en það átti að vera. Hann vildi kenna forseta þessara d., hv. 1. þm. Eyf. (BSt), hvernig hann ætti að ganga frá nál. Það mátti ekki kalla það álit frá n., ef meiri hl. gekk frá því. Hann kunni ekki við það, að hv. 2. þm. Árn. (EE) hafði áskilið sér að gera grein fyrir atkv. sínu. Þetta kom þó fram í nál. Hv. þm. Barð. (GJ) áskildi sér líka rétt til að gera grein fyrir atkv. sínu, og það gerði hann með löngum skýringum, sem ég botnaði ekki neitt í fremur venju.
Svo þegar hv. þm. hafði látið í ljós, hvað hann væri óánægður með allt, sem gert hafði verið af hálfu n., gerði hann grein fyrir afstöðu sinni til málsins, og það var hreint og skýrt og ólíkt mennilegra en aðferðir sumra hv. þdm. til þessa máls, að hliðra sér hjá því að láta afstöðu sína til málsins koma fram. Hann sagðist hreint og klárt vera á móti þessu máli. Og hvers vegna? Af því að Ísafjörður væri bara fiskiðjuver og ætti því ekki skilið að fá slíka stofnun sem menntaskóla. Þar væru ekki nokkur skilyrði til skólahalds. Um lífsskilyrðin sagði hann, að þar væri ekki nokkurt ræktanlegt land, alla mjólk þyrfti að kaupa að og Ísafjörður væri óbyggilegur staður. Ekkert væri óeðlilegra en að þar kæmi menntaskóli. Þar þyrfti að koma grútarbræðsla, og það er alveg satt. Það er engin ný uppgötvun hjá hv. þm. Barð. (GJ). Þar þarf að koma grútarbræðsla, en þess þarf líka á Bíldudal. En rétta lausnin sagði hann, að væri ef nemendur úr Rvík færu að Skálholti, af því að það væri sögufrægur staður, og svo að Rafnseyri. Það er víst enginn á móti því, að þar komi upp menntasetur, og það var víst n. sem átti að unga einhverju út í því skyni að koma upp menningarstofnun á Rafnseyri, en það bara örlar ekki á því enn þá. En er aðstaða til menntaskólaseturs þar? Það yrðu að koma fram einhver rök fyrir því, að þangað yrði hægt að fá kennara og að eitthvað yrði fyrir þá að gera. Það yrðu að koma fram fyrir þessu einhver rök, sem ekki hafa komið fram hjá hv. þm. Barð. og hv. 4. landsk. þm. (BrB). eitthvað annað en það, sem þeir hafa þegar sagt. En sé það svo, að lítið yrði að gera fyrir menntaskólakennara á Ísafirði, yrði að líkindum enn þá minna að gera fyrir góða sérfræðikennslukrafta við menntaskóla á Rafnseyri.
Menn hafa dregið mjög í efa þörfina fyrir menntaskóla víðar en í Rvík og á Akureyri. Þessir menn hugsa áreiðanlega ekki um það, að við setningu nýju skólalöggjafarinnar hefur orðið gerbreyting við það, að hægt er að útskrifa nemendur með miðskólaprófi um gervallt landið, þannig að nú fjölgar mjög þeim mönnum, sem rétt hafa til menntaskólanáms. Ef menntaskólar eru ekki fyrir austan og vestan, verður að segja þessu fólki að sækja um skólavist á Akureyri og í Rvík. Þeir, sem ekki geta það, sitja heima og gjalda þannig efnahags síns. En hinir, sem hafa aðra aðstöðu, fara í þessa skóla, og þeir eru þandir út eftir þörfum með byggingu heimavista og nýrra skólahúsa í Rvík, og þar með er tryggt, að skólarnir verði bundnir við Akureyri og Rvík og kannske við nágrenni Rvíkur. Nei, af nýja skólakerfinu leiðir fjölgun nemenda í menntaskólunum, og þá er spurningin: Á að hafa menntaskóla eingöngu norðanlands og sunnan, eða á að hafa þá líka í Austfirðinga- og Vestfirðingafjórðungi, sem ég tel engin rök hafa komið á móti, sem gagn er í?
Annað var það, sem hv. þm. Barð. (GJ) sagði. Hann sagðist ekkert skilja í forseta þessarar d., hv. 1. þm. Eyf. (BSt). að hafa ekki borið fjárhagslegar áhyggjur af framkvæmd þessa máls. Nú eru till. n. á þá leið, að engin fjárhagsleg skuldbinding er lögð á ríkið í sambandi við þetta á næstu áruml og þingið getur kannske spornað við framkvæmdum langa tíð, vegna þess að fjárveitingar til menntaskóla þessara eiga að ákveðast með ákvæðum fjárl. á sínum tíma. Ég held því, að núv. form. fjvn., ef hann heldur ekki, að hann verði það eilíflega, þurfi ekki að hafa þungar áhyggjur af fjárhagshlið málsins. Ég held ekki heldur, að hv. 1. þm. Eyf. (BSt) hafi áhyggjur af fjárhagshlið málsins, þegar það er framkvæmt á þennan hátt. Ef málið verður samþ., stendur til boða ókeypis lóð undir menntaskólahús, því að bæjarstjórn Ísafjarðarkaupstaðar hefur sent tilboð um það til þingsins. Gagnfræðaskólinn mundi reyna að fá kennslukrafta til þess að taka við af miðskólaprófinu og kennsla yrði hafin fyrir 1. bekk menntaskóla — við skulum segja næsta vetur — og í framhaldi af því síðan 2. bekkjar kennsla og á 3 ári 3. bekkjar kennsla. Og þetta væri hægt í þeim góðu húsakynnum, sem gagnfræðaskólinn býr við, án þess að byrja þyrfti að byggja. En eftir að allir árgangarnir fjórir væru komnir í gang, þyrfti nýtt hús. Það eru því ekki horfur á öðru, þótt undinn yrði að þessu bráður bugur, en að það yrði ekki fyrr en eftir 4 ár, sem ríkið þyrfti að fara að standa straum af byggingu. Það yrði að vísu nokkuð aukinn kennslukostnaður, og síðar, eftir því sem kennslan ykist, mundi sá kostnaður fara hækkandi. Svona hygg ég, að þetta mundi gerast á Ísafirði og sennilega líka á Eiðum. Það þyrfti hvorki að gerast í ár né að ári, og sennilega yrði árabil þangað til þetta yrði komið í kring á báðum stöðunum.
Mér finnst, að eina atriðið, sem hægt er að deila um eins og nú stendur, sé það hvort það sé rétt, að þeirri útþenslu, sem fyrirsjáanleg er og verður í aðsókn að menntaskólunum, sé svarað með byggingu menntaskóla vestanlands og austan, eða hvort stefnan eigi að vera sú að færa út kvíar menntaskólanna í Rvík og á Akureyri, hvort það á að byggja heimavist í Rvík, auka stúdentafjöldann þaðan. Verzlunarskólinn er nú að byrja að byggja, sjálfsagt með tilliti til þess að útskrifa stúdenta. Á þá að byggja þrjá menntaskóla hér í Rvík og þann fjórða á Akureyri og svo á Laugarvatni og í Skálholti? Þetta er sennilega þróunin, og þá sjá menn væntanlega, hvert verður jafnrétti æskunnar í landinu til náms. Ef þetta yrði, mundu nemendur skólanna ekki koma frá Austfirðingafjórðungi og Vestfirðingafjórðungi, og framvegis eins og hingað til yrðu embættismenn þjóðarinnar úti um landið valdir úr Rvík og af Akureyri, en það sýnir skýrsla fræðslumálastjóra og mþn. í skólamálum, að hefur verið venjan.