08.03.1948
Efri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í C-deild Alþingistíðinda. (2751)

62. mál, menntaskólar

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Það er mikið og margt, sem ég hef að segja út af ræðu hv. síðasta ræðumanns, sem persónulega lýsti því yfir, að ég væri haldinn andlegum sjúkdómi og hefði framið einhvern verknað, sem mundi nema ævilöngu fangelsi, og eftir valdatöku hans flokks þyrfti ekki einu sinni að draga mig fyrir dóm, heldur tafarlaust hægt að loka mig inni á geðveikrahæli. Þessi sjúkdómur átti helzt að koma fram í því, að ég við öll möguleg tækifæri —flytti till. um, hvar menntaskólinn í Reykjavík ætti að standa. Ég hef vikið nokkrum sinnum að þessu, en ekki flutt aðra till. heldur en í sambandi við frv. eða till. um menntaskóla. Og hvar á það frekar við að ákveða honum stað heldur en einmitt í sambandi við frv. til l. um menntaskóla? Ég held einmitt, að það sé sá rétti vettvangur til að hreyfa því máli á og ég er hissa á svo miklum málaflutningsmanni og stjórnmálamanni eins og hv. 9. landsk. er, að hann skuli telja það bera vott um andlegt bilunarmerki, þó að ég flytji þessa till. Þetta sýnir betur en flest annað, hvaða þröngsýni hefur gripið þennan gáfaða og mikilhæfa þm. En þótt það sé rangt, sem hann hefur látið uppi, þá skiptir það ekki máli, því að hann hélt, að ég flytti þessa till. af einhverri illkvittni til sín. Það er ein furðulegasta staðhæfing, sem ég hef heyrt, því að ég hef miklar mætur á þessum þm. og álít hann einn hæfasta mann, sem situr á Alþ. Íslendinga, eftir því, sem gerist í þeim flokki. Hitt er annað mál, að ég álít skoðanir hans varhugaverðar, og ber því að gjalda meiri varúð við því, sem hann heldur fram, hvaða mál sem það er, jafnvel þótt það sé ekki annað en lóð undir hús. Þetta sýnir, hve slæmar skoðanir geta leitt til þröngsýni eða skilningsleysis.

Hæstv. forseti hefur með till. sinni um, að þessari umr. yrði frestað. bersýnilega sýnt, að hann telur þetta réttan vettvang til að flytja till. á, því að ef hún kæmi ekki þessu máli við, þá væri hægt að fella hana athugasemdalaust. Sannleikurinn er því sá, að hv. 4. landsk. veit, að margir af fremstu mönnum þjóðarinnar hafa bundizt félagsskap, sem ég er hvergi nærri, um að reyna að fá því áorkað. að menntaskólinn fái að vera á sínum gamla stað.

Meðan hv. 4. landsk. var í stjórn sem menntmrh., þá hafði hann með þetta mál að gera, en hann gerði enga till, um það, og því ber hann allra manna mest ábyrgðina á því, að húsnæðismál skólans eru komin í meira öngþveiti og niðurníðslu en þau hafa nokkurn tíma verið áður. Ef hann hefði þá haft þann áhuga, sem hann læzt hafa nú, þá væri ekki svo illa komið í þessum málum eins og nú er. En Þjóðviljinn, blað hans flokks, segir að það hafi verið ég, sem hindraði ráðh. í að koma skólanum upp, og þá sem borgarstjóri Reykjavíkur. Ég verð því miður að segja það, að saga blaðsins af því máli er í flestum atriðum röng, því að það var svo fjarri, að ég stæði á móti því sem borgarstjóri, að menntaskóli yrði reistur á öðrum stað heldur en ég tel, að hann eigi að vera á. En að ég hef ekki lagt mig fram í að útvega þann stað, sem ráðh. óskaði, var af þeirri ástæðu, að ég ætlaði ekki sem borgarstjóri að taka ákvörðun eða ráða, hvar skólinn yrði settur í Rvík. Ég vildi ekki gefa neinum færi á mér sem borgarstjóra, að ég spillti málinu, og mér þótti rétt, að stjórnarvöldin fengju því ráðið, sem þau hefðu heimild til að ráða. Þess vegna beitti ég mér fyrir því í bæjarstjórn, að bæjarráð féllist á að ætla skólanum fyrst í stað að vera í Laugarnesi, en þegar horfið var frá þeirri ákvörðun, þá barðist ég eindregið fyrir því, að skólinn fengi annan stað, og þá meðal annars þar, sem golfskálinn er nú. En vegna þeirra mannvirkja, sem búið var að gera þar, var erfitt að taka þann stað. Ég var einu sinni hlynntur því, að ríkið fengi þennan stað í þessu skyni, en fyrir ráðleysi þessa hv. þm., þegar hann var ráðh., þá hef ég reynt að hafa áhrif hér og reyni enn þá um, að skólinn verði settur á hinn rétta stað, sem ég tel vera.

Hitt er annað mál, sem ég held að menn ættu að hætta að deila um eftir grein Einars Magnússonar, að það er ekki hægt að komast af með einn menntaskóla til frambúðar í bænum. Þar er sýnt fram á, að eðlilegast væri að láta skólann halda áfram þar, sem hann er nú, og eftir því sem stækkunar þyrfti við, þá að gera ráð fyrir hæfilega stórum skóla í úthverfi, í stað þess skólahúss, sem ætlað var að reisa undir stjórn fyrrv. menntmrh., og það er tilgangslaust og máttlaust að reyna að kenna mér það, sem hv. þm. gat ekki gert í sínu ráðuneyti, og hann gerir lítið úr sér með því að finna slíka afsökun fyrir ódugnaði sínum.