08.03.1948
Efri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í C-deild Alþingistíðinda. (2757)
62. mál, menntaskólar
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :
Herra forseti. Klippt var það. Skorið var það. Svo má lengi deila. Ég er sammála hv. 4. landsk. þm. um það, að hv. þm. ættu að kynna sér þau gögn, sem er að finna í þessu máli. Þá mun sannast, að bæjarstjórn Rvíkur hefur ekki tafið fyrir þessu máli. En bæjarstjórnin var ekki í standi til þess að taka land, sem annar aðili hafði á leigu, Golfskálahæðina og var ætlað til annars. Það kom og bein neitun frá Golffélaginu, að landið yrði tekið.
Um afskipti mín sem borgarstjóra af málinu er þar skemmst frá að segja, að ég var á fundum Sameinuðu þjóðanna, er mál þetta var á döfinni, og ég var skamma hríð borgarstjóri eftir að ég kom aftur. Ég hafði því lítil skipti af málinu. (BrB: Þetta eru hrein ósannindi). Nú, hvað er þetta? Hv. þm. virðist ekki ráða við sig og velur um gólf og hrópar og æpir. Ég skil ekki, hvað þetta er. Það kann að vera, að samvizkan sé farin að hafa einhver slæm áhrif á hv. þm., að hún sé farin að segja til um ósannindin. Hv. þm. mun komast hjá því að velta því á mig, að ég hafi á samvizkunni einhvern ódugnað í málinu. Það var skylda hans að koma málinu áleiðis. Eftir að hann hafði sent menn út um heim til þess að skoða skólahús, féllst hann loks á það í fullri alvöru að athuga þann möguleika að nota gamla skólastaðinn sem framtíðarstað fyrir menntaskóla í Rvík. Þá var loks fallizt á í alvöru að láta athuga, hvort ekki væri hægt að nota gamla staðinn, en vegna þess, hve seint þetta var gert, dróst málið. Ef skynsamlega hefði verið á málinu haldið — og enginn neitar því, að hv. 4. landsk. er vel viti borinn maður — þá hefði verið byrjað með þessari rannsókn, er gerð var fyrst í lokin. Það hefur verið sannað af sérfræðingum, að vel er hægt að láta skólann standa á gamla staðnum, þótt ekki þyrfti sérfræðinga til að sanna það. Skólinn hefur staðið þarna í 100 ár og getur staðið þar í 100 ár enn, eða jafnvel 1000.
Allt ráðlag hv. 4. landsk. í þessum málum hefur verið eins og engin skynsemi kæmist að, líkt og áðan, er hann óð hér um í d. og hellti úr sér ónotum. Það var vaðið holt af holti og helzt á staði, er áður voru uppteknir.
Reykjavíkurbær tók þessu máli vinsamlega, en hitt er vitanlegt, að skipulagsmál þarfnast tíma, áður en þau verði leyst. Það var hægt að hugsa sér fleiri staði en Laugarnes og Golfskálahæðina, t. d. hæðina fyrir ofan þvottalaugarnar, og ég sagði rektor, að ég væri því hlynntur. Túnin fyrir sunnan Háteig gátu líka komið til greina. Þannig var um óteljandi staði að ræða, en hv. 4. landsk. skorti viljann. Eftir að hafa setið í tvö og hálft ár sem menntmrh. skildi hann þannig við málið, að skólinn er nú sístækkandi í gömlu húsi, sem talið er heilsuspillandi fyrir nemendur. Svona frammistaða gefur ekki góða samvizku, en mér skal ekki um kennt, skömmin er hans.