12.02.1948
Efri deild: 60. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (2776)
66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Í ræðu minni áðan gat ég þess, að ríkisaðstoð að 2/5 hlutum við hreppinn væri mikils virði og einnig, að ríkissjóður ábyrgist hinn hluta lánsins til hafnargerðarinnar. En nú er sýnt, að lánsstofnanir vilja ekki leggja fram fé þetta, sem þó Landsbankanum ber að gera samkv. l. Það gæti verið, að það væri einhver staður í héraði hv. þm. Barð., sem líkt væri ástatt um. Það er skjalfest, að Landsbankinn hefur neitað að lána til hafnar í Höfn, a. m. k. á þessu ári. En er það ekki samkvæmt lögum um hinar almennu hafnir, að ríkissjóður á að leggja fram fé það, sem til þarf? Þetta er næg ástæða til þess að sýna, að það er rétt, sem ég hef haldið hér fram.
Hv. þm. Barð. talaði mjög um það, hversu miklir vesalingar Austfirðingar væru, en ég spyr hv. þm. Barð., hvort það séu þá ekki álíka vesalingar í Njarðvíkum, sem heimtuðu landshöfn þar. Í því héraði stóðu þá sjálfstæðismenn að því verki. Eru það þá ekki tómir vesalingar? Þetta er dómur hv. þm. Barð., en ekki minn. Andúð hv. þm. Barð. á máli þessu er sú, að þm. finnst, að kjördæmi sitt hafi engra hagsmuna að gæta í sambandi við byggingu landshafnar í Höfn. Hvað viðkemur ummælum hæstv. samgmrh., þá hef ég ráðið af þeim, að hæstv. ríkisstj. sé á móti málinu og hæstv. samgmrh. muni vera maður til þess að viðurkenna ummæli sín, að hann sé á móti því að samþykkja frv. þetta. Þótt hæstv. ráðh. hafl látið í ljós þessa skoðun, er hann ekki á móti því, að hafnarmannvirki verði gerð í Höfn í Hornafirði. Það vissi ég vel, en hann vill ekki styðja málið nú.
Þá talaði hv. þm. Barð. um píslargöngur, sem hæstv. fjmrh. (JJós) hefði orðið að ganga til landsbankastjórnarinnar. Það kæmi nú lítið þessu máli við, þá að hæstv. fjmrh. hefði orðið að ganga einhverjar píslargöngur í Landsbankann — og þetta voru orð hv. þm. Barð., en ekki mín. Það sem fram kom í ræðu hv. þm. Barð., bar helzt að skilja svo, að fyrir lægi lán með ábyrgð ríkissjóðs, en því er nú ekki til að dreifa.
Enn fremur lét hv. þm. á sér skilja, að á Austfjörðum væri allt í kalda koli sökum þess, að Hornfirðingar hefðu rekið af höndum sér athafnamanninn Þórhall Daníelsson. Þórhallur á þakkir skilið fyrir dugnað sinn, en hann var ekki flæmdur í burtu eða amazt við honum á neinn hátt. Þessi maður mun kunna hv. þm. Barð. litlar þakkir fyrir slík ummæli.
Einnig er það ósatt hjá hv. þm., að ekki væri hægt að greiða nauðsynlegt byggingarefni. Því að það, sem strandað hefur á, er það, að ekki hefur reynzt hægt að útvega lánsframlagið, sem ríkissjóði ber að greiða á móti framlagi úr héraði. (GJ: Hefur ríkisstj. algerlega neitað því?) Ég veit ekki til, að málið sé komið svo langt enn þá. Ég veit, að þessir menn ætluðu að reyna allt til þess að fá framlag á móti, eins og lög standa til.
Það er rétt, að aðstaðan er þannig, eins og hv. þm. Barð. sagði, að það þarf að eyða fé til þess að flytja burt fiskinn. Það er þess vegna, sem þörf er á framkvæmdum, fyrst og fremst hafnarframkvæmdum.
Þá sagði hann, að það væri betra fyrir viðkomandi sveitarfélög að eiga þessi mannvirki sjálf, og ég efa það ekki, enda er víst, að margir stærri bæir kæra sig ekki um hjálp. En það er viðurkennt, fyrst af mþn. og síðan af Alþ., er það samþykkti landshafnirnar í Keflavík og Njarðvíkum, að nauðsynlegt sé, að ríkið geri þetta fyrir útgerðina: Þetta liggur til grundvallar. Þessar framkvæmdir eru nauðsynlegar til þess að tryggja vertíðina á Austurlandi, svo að fiskimiðin notist til fulls.
Þá má minna hv. þm. á það, að till. um þurrkvína, sem hann flutti sjálfur, stangast við rök hans í þessu máli. Hann notar rökin eins og honum hentar, en samræmið vantar hjá honum.
Hann minntist á skiptingu vitamálastjóra á hafnarfé og að Hornafjörður hefði bara fengið 100 þús. kr. á þessu ári. Það er eðlilegt. Fyrst ekkert var unnið síðastliðið ár, kemur það fé til góða á þessu ári. Það er byggt á núgildandi hafnarl., en vitamálastjóri hefur sagt, að hann telji eðlilegt, að ríkið taki að sér þessar framkvæmdir.
Þá vil ég aðeins minnast á umsögn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, sem er mjög einkennileg, og hv. þm. Barð. lýsti því sjálfur, hve mikil fjarstæða hún væri. Þar eru ræddir allt aðrir staðir en spurt er um, og því svarið út í hött.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta meira, nema sérstök ástæða gefist til. Ég vænti þess, að d. sýni eins og á síðasta þingi, að hún sé þessu máli fylgjandi, og að það verði samþ.