13.02.1948
Efri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í C-deild Alþingistíðinda. (2781)

66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Þetta mál hefur nú verið rætt nokkuð mikið, og skal ég ekki fara mikið út í efnishlið þess, en drepa á nokkrar aths., sem fram hafa komið á þessum fundi.

Hv. 3. landsk. þm. (HV) lagði aðaláhersluna á það, að þetta frv. ætti sérstaklega mikinn rétt á sér vegna þess, hve mörg önnur héruð nytu góðs þar af vegna hinna auðugu fiskimiða á þessum stað. En ef þetta sjónarmið væri látið ráða, kæmu til greina miklu fleiri staðir en Höfn í Hornafirði. Má þar til nefna Þorlákshöfn, en þar er mjög heppilegt að hafa bæði stóra viðleguhöfn og uppskipunarhöfn. Má í þessu sambandi nefna marga fleiri staði, sem til greina gætu komið, t. d. Rif á Snæfellsnesi, og svo sannarlega mætti nefna Sandgerði, en þar hefur verið mjög mikill reipdráttur um það að fá landshöfn. Þarna kæmi líka til greina Akranes, sem hefur lagt einna mest fram til hafnarmannvirkja. Þarna kæmi líka til greina Selárdalur, Hafnarfjörður og Hvallátrar. — Ég bendi aðeins á þetta, því að allir þessir staðir hafa skilyrði vegna auðugra fiskimiða, þar sem þeir eru enn fiskauðugri en Hornafjörður.

Þá minntist hv. 3. landsk. á afstöðu vitamálastjóra, þar sem hann enn dregur allt úr samhengi. Vitamálastjóri sagði, að hann vildi ekki taka afstöðu til þess, hvort þetta yrði raunverulega byggt sem landshöfn. Hann sagði, að hann ætlaðist til, að þar sem fé væri ekki fyrir hendi, hjálpaði ríkið til þess að gera það, annaðhvort með því að byggja landshöfn eða styrkja á annan hátt, og vill jafnvel, að það sé opið að þetta sé gert að héraðshöfn á eftir. Og nú stendur svo á, að fyrir eru 300 þús. kr., sem liggja fyrir til Hafnar í Hornafirði, og er þá hægt að koma þessu mannvirki í það horf, að það sé mjög vel við unandi á næstu árum, fyrir 1 millj. kr., eftir þeim áætlunum, sem fyrir liggja, og þarf þá ekki annað en útvega ríkissjóðsábyrgð, fyrir 600 þús. kr. Og ég er viss um að þetta yrði fljótlegast fyrir Hornafjörð. Ummæli vitamálastjóra, að á hvorugum staðnum þurfi að binda mikið fé, sanna þetta, að með þessu fé megi koma upp þessum framkvæmdum, sem hann telji viðunandi.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta mál meira, en legg til fyrir hönd meiri hl., að frv. verði fellt.